Þjóðmál - 01.12.2011, Page 43

Þjóðmál - 01.12.2011, Page 43
42 Þjóðmál VETUR 2011 Gunnar Rögnvaldsson Áhlaupið á íslensku krónuna Íslenska krónan er undir áhlaupi . Þetta áhlaup er hið fyrsta og eina sem krónan hefur orðið fyrir . Áhlaupið kemur ekki frá fjármálamörkuðum . Það kemur frá skynsemi manna, eða réttara sagt, frá skorti á skynsemi og heilbrigðri hugsun . Það kemur frá stjórnmálamönnum, hags- muna samtök um og hópum sem vilja leggja ís lensku krónuna niður og gera „eitthvað annað“ án þess að gera sér grein fyr- ir afleiðing un um . Veruleikafirringin varð- andi mynt mál in á Íslandi er hættuleg sjálf- stæði, full veldi og framtíð Íslands . Misstu skipin, misstu gengið, misstu myntina, sjálfstæðið og fullveldið Nokkrum árum áður en fullveldi, sjálfstæði og lýðræðislegri sjálfsstjórn Nýfundnalands og 380 þúsund íbúa þess sjálfstæða ríkis var hent sem endanlegu veði inn í bankahólfin í sambandsríki Kanada árið 1949, hafði landið misst allt bankakerfi sitt til útlendinga . Það sama gerðist með fragtskipaflotann og alla vinnu þjóðarinnar við hann . Það sama gerðist í myntmálum Nýfundnalendinga . Þeir höfðu álpast til bindast við og taka síðar upp Kanadadal . Ein afleiðing þess að bankakerfi Ný- fundna lands komst alfarið á erlendar hend- ur, og gengið hvarf með gengisbindingu Ný fundna landsdals við Kanadadal, varð sú að Evrópa og Bretland versluðu frekar við Ís lendinga, því þeir voru skyndilega komn ir með vélknúin gufuskip og gátu af- hent fiskinn á samkeppnishæfu verði sam- kvæmt stundaskrá . Þetta gátu Nýfundna- lend ingar ekki því að þeir réðu ekki lengur yfir samkeppnishæfum skipaflota, gátu ekki endurnýjað hann, því að þeir höfðu misst gengið, bankakerfið og þar með mark- að ina . Þeir gátu lítið annað gert en það sem Grikk land, Spánn, Portúgal og Ír land hafa nú orðið fyrir — að deyja lokuð inni innan eigin landamæra við umsátur þeirra sem ráða orðið al farið peningamálum þessara landa . Undir myntum annarra ríkja á Íslandi yrði erfitt að starfrækja alvörubankakerfi sem þjónað gæti íslenska hagkerfinu eins og er frómasta hlutverk alvörubankakerfa . Ný- fundnaland missti bæði fullveldi og sjálfstæði sitt sem ríki árið 1949 vegna skulda . Í aðdraganda ferlis, sem hófst með þátttöku Nýfundnalands í heims styrjöld- inni fyrri og í kjölfar mikillar skuld setningar landsins vegna hennar, lenti Nýfundnaland í svipuðu skulda fangelsi og Grikkland og fleiri mynt banda lagslönd Evrópusambandsins

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.