Þjóðmál - 01.12.2011, Page 46
Þjóðmál VETUR 2011 45
stórum hluta þeirra sigra sem náðst hafa .
Ágætt er að muna að viðskiptabönn á þjóðir
geta náð til afhendingar mynta og seðla sem
þau ríki ráða yfir sem setja slík bönn . Slíkt
hefur gerst . Afhending seðla og mynta
til myntbandalagsríkja er einnig hægt að
stöðva eftir geðþótta .
Já, en Bandaríkin?
er þá spurt
Þegar hingað er komið í umræðunni um gjaldmiðilsmál er oft gripið til þeirra
raka, að fyrst myntbandalag Banda ríkja-
dals virki mjög vel að þá eigi mynt banda-
lag evru Evrópusambandsins að geta virkað
álíka vel . Þetta er mikil vanhugsun . Best
er að útskýra málið með því að snúa því
á haus . Hvernig getum við búið til evru-
svæði úr Bandaríkjunum? Það er reynd ar
mjög auðvelt: fyrst fjarlægjum við forseta-
embætti Bandaríkjanna, vald þess og
sjálfa ríkisstjórn forsetans . En við skiljum
seðla banka Bandaríkjanna eftir . Ásamt með
forsetanum og ríkisstjórninni hurfu sam-
eigin leg ríkisfjárlög Bandaríkjanna sem nema
næstum því 30 prósentum af allri lands-
framleiðslu þeirra . Þarna höfum við búið
til bandarískt evrusvæði . Frá og með þeirri
stundu þurfa 50 fylki Bandaríkjanna að koma
sér saman og samþykkja hvern einasta dal sem
sameiginlegur seðlabanki þeirra gefur út . Sjá
menn fyrir sér að 50 fylkis stjórar Bandaríkj-
anna hefðu getað tekist á við öll þau verk og
vandamál sem Bandaríkin hafa staðið frammi
fyrir og sem þau hafa leyst síðustu 237 árin
frá því að þau lýstu yfir sjálfstæði sínu? Nei,
svo sannarlega ekki . Það sem gerði Bandaríkin
að stórveldi var sameining þeirra í eitt ríki .
Bandaríkin eru eitt land, eitt ríki . En það var
fyrst þá, eftir stofnun þeirra, að þau fengu
þann sameigin lega gjaldmiðil sem heitir
Banda ríkjadalur .
Þetta er ástæðan fyrir því að 50 fylki
Bandaríkjanna geta búið við sömu myntina,
eina stýrivexti og eitt gengi . Þegar áföll ríða
yfir í Nevada eða Flórída sökum fjármála bólu
svipaðri þeirri sem reið yfir Spán, Írland,
Grikkland og fleiri ríki ESB undir yfirum-
sjón m .a . seðlabanka Evrópusambands ins,
þá gerir það ekki svo mikið til, því að heil-
brigðis- og félagsmálin eru fjármögnuð af
al ríkisstjórninni í Washington . Þess utan þá
hefðu laun og kostnaður ekki farið svona
úr böndunum í Nevada eða Flórída því
vinnuaflið hefði einfaldlega flutt þangað
sem hlutirnir voru að gerast og þannig
minnkað áhættuna á bólumyndun frá
byrjun . Þetta þekkjum við vel frá Íslandi .
Hér bera menn sig eftir björginni og flytja
þangað sem atvinnu er að fá . Þannig
reis minn gamli heimabær, Siglufjörður .
Þegar áföllin dynja yfir í landshlutum hér
á landi þá eru það sameiginleg ríkisfjárlög
íslenska ríkisins sem koma til bjargar í
formi útgjaldaliða . Öll vandamálin lenda
ekki á sveitarstjórnum landsins .
Gengisbinding:
afneitun veruleikans
Það peningapólitíska fyrirbæri sem á undan evrunni kom og sem hélt Evrópu
í greipum sams konar stöðnunar og háu
atvinnuleysi til langs tíma, var fyrirbærið
„gengisbinding“ . Fyrirbærið var kallað ERM
eða „Exchange Rate Mechan ism“ og
var hluti af því gengis- og peninga fyrir-
bæri Efnahagsbandalagsins sem kallaðist
EMS eða „European Monetary System“, áður
en sjálft myntbandalag Evrópu sam bandsins
kom til sögunnar . ERM fólst í bindingu gjald-
miðla margra landa Evrópu gagnvart hver
öðrum . Þetta var innbyrðis gengisbinding,
annaðhvort sem gagnkvæm binding eða
einhliða binding . ERM endaði sem stórslys
árið 1992, en þá hrundi þetta gengis- og
gjald miðla samstarf Evrópusambandsins svo