Þjóðmál - 01.12.2011, Síða 50

Þjóðmál - 01.12.2011, Síða 50
 Þjóðmál VETUR 2011 49 við það án sinnar eigin myntar . Í þýskri þjóðmenningu þýðir hugtakið ábyrgð aðeins eitt; sparnaður . Hann liggur djúpt og dýpra í þýsku þjóðarsálinni en hjá flestum öðrum þjóðum . Þýskaland myndi svelta sig til að við- halda samkeppnishæfni útflutnings greina landsins . Vert er að minnast þess að meira en helmingur þýskra kjósenda eru orðinn sextugur eða eldri . Í öldrunarhagkerfi eins og því þýska hefur neysla þjóðarinnar að miklum hluta þegar farið fram og þjóðinni fækkar hratt vegna lítilla barnsfæðinga áratugum saman . Þetta er gjörólíkt því sem Íslendingar eiga að venjast . Hvað ætti Ísland að gera með mynt, peningapólitíska stefnu og stýrivexti eins stærsta ellihagkerfis heimsins? Það sama á við um Íra . Þessi tvö hagkerfi eru gjörólík því þýska . Ég endurtek: það eina sem lönd eins og Þýskaland skilja er gengisfelling . Það er engin algild og eina-heilaga-sann- leiks-ástæða til að ætla að verðbólga yrði svo miklu lægri á Íslandi þó að við værum með evru eða aðra erlenda mynt . Það er veðmál sem enginn ætti að hætta sér í . Ég er handviss um að verðbólgan yrði ekki til muna lægri, því að Ísland er svo ólíkt flestum löndum ESB og sérstaklega löndum evrusvæðis . En ef Ísland væri með evru sem gjaldmiðil er ég hins vegar 100 prósent viss um að Ísland myndi mjög hratt verðleggja sig út úr myntbandalaginu og reyndar heiminum öllum og gæti ekki lengur selt svo mikið sem einn fisksporð til útlanda sökum innri verðbólgu sem ekki væri lengur hægt að lagfæra gegnum gengið . Hér er ekki um 77 sardínur í 28 Banda ríkjadala dós á mann að ræða, eða 2000 tonn á ári eins og aflinn er t .d . á Möltu . Hér er um að ræða 1,3 milljónir tonna af fiski á hverju ári . Þetta eru þeir fjármunir sem notaðir eru til að byggja íslenska hagkerfið upp með, grunnur efnahagslegrar til veru Íslendinga . Sjávar- útvegur er mun mikil væg ari at vinnu- grein fyrir Ísland er allur iðnaður er fyrir Þýskaland . Eina leiðin til að nýta land- helgi og auðæfi sjávar Íslands væri þá að láta útlendinga um að veiða fiskinn okkar . Þeir einir gætu keppt á mörkuðunum með því að borga lág laun, lítinn kostnað, miklu lægri skatta og með því að sigla um íslensku landhelgina í ryðdöllum . Þetta yrði ekki skínandi falleg útgerð, heldur þrælakista . Þá myndu Íslendingar brátt þurfa að flytja inn fisk sér til matar, einungis vegna ógæfulegrar framtíðarsýnar heimskra stjórnmálamanna og hagsmunasamtaka sem myndu banna Íslendingum að fella gengið, því þá væri ekki lengur til neitt gengi sem hægt væri að fella . Það væri horfið . Horfið um alla eilífð til Þýskalands og kæmi aldrei þaðan aftur . Það er því sannarlega mikið í húfi hér fyrir land okkar og þjóð . Sjálf tilvera þjóðarinnar er hér í húfi . Var það þetta sem árið 1944 snerist um? Snerist það um afsal á framtíð Íslands? Mynt önnur en okkar eigin króna hefði oft og iðulega hindrað framkvæmdir og uppbyggingu á Íslandi eftir að fullt sjálfstæði vannst árið 1944 . Bandaríkin væru getu- og varnarlaus og hefðu aldrei orðið stórveldi ef þau hefðu orðið að evrusvæði . Ísland hefði aldrei orðið svo ríkt land sem raun ber vitni án sjálfstæðrar myntar . Við hefðum aldrei getað nýtt auðlindir okkar án eigin myntar . Samanlagðar beinar erlendar fjárfestingar á Íslandi eru sem dæmi enn stærra hlutfall af landsframleiðslu en í t .d . Danmörku . En beinar erlendar fjárfestingar eru hins vegar að vissu leyti óæskilegar því að þær loka á eignarhlutdeild Íslendinga nema að þær séu skráðar á hlutabréfamarkað opnum almenningi . Og það verða fjárfestingar fyrrverandi yfirmanns úr áróðursráðuneyti Kína líklega aldrei .
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.