Þjóðmál - 01.12.2011, Page 53

Þjóðmál - 01.12.2011, Page 53
52 Þjóðmál VETUR 2011 Að kvöldi 23 . febrúar 1921 hélt Sigurður Grímsson á braut með Gullfossi og hafði meðferðis eina ferðatösku, þriggja pela flösku af neftóbaki og helstu nauðsynjar .5 Í Höfn fór Brynjólfur með honum til fundar við danska ungkommúnista, en síðan hélt Sigurður í skoðunarferðir um borgina, fór á söfn, í leikhús og á tónleika . Hann talaði á fundi í Félagi íslenskra stúdenta 16 . mars og sagði frá pólitíkinni heima á Íslandi, skáldskap og andlegu lífi, einkum jóga og guðspeki .6 Hinn 20 . mars héldu Sigurður og Brynjólfur með lest til Gedser á Falstri, þar sem þeir gistu um nóttina . Þaðan fóru þeir með járnbrautarferju til Warnemünde og áfram með lest til Berlínar, en á leiðinni hittu þeir marga skrítna fugla . Um þetta leyti hófst bylting kommúnista í Þýskalandi, „marsuppreisnin“ svokallaða, en með henni ætlaði Komintern að steypa þýsku ríkisstjórninni .7 Þjóðverjar voru í uppnámi vegna aðgerða kommúnista og mátti víða sjá lögreglumenn á ferli í Berlín . Í marsmánuði einum handtók lögreglan 3 .470 komm- ún ista, felldi 145 þeirra í bardögum og tölu verður fjöldi særðist . Nefna má til samanburð ar, að í Spartakus -uppreisninni 1919–1920 féllu 32 kommúnistar .8 Willi Münzenberg og félagar hans höfðu verið andvígir marsuppreisninni, því að aðstæður væru óheppilegar til byltingar .9 Sigurður og Brynjólfur urðu þó ekki varir við átök, þegar þeir komu til Berlínar 21 . mars og fengu herbergi á Nordland-gistihúsinu við Invaliden-stræti . Sigurður fylgdist fyrsta kvöldið með iðandi mannfjöldanum á Unter den Linden og naut lifandi tónlistar á troðfullu Café Bauer, sem þá var eitt vinsælasta kaffihús borgarinnar . Næsta dag heimsóttu þeir félagarnir aðalskrifstofu KJI til að láta vita af sér og innheimta risnuféð . Þar var þeim sagt, að vegna óeirða, sem kommúnistar hefðu verið viðriðnir, væri ófært að halda þingið á Ítalíu og ætti að flytja það til Þýskalands, þótt ástandið þar væri eldfimt og kommúnistar undir smásjá lögreglunnar . „Sögðu þeir okkur að gæta hinnar meztu varúðar, og koma ekki í bækistöðvar þeirra nema í brýnustu nauðsyn .“10 Á skrifstofu KJI í Berlín var Sigurður kynntur fyrir helstu foringjum ung komm- ún ista, þeirra á meðal Münzenberg og hægri hönd hans, gjaldkeranum Leo Flieg .* En sameiginleg vegferð Íslendinganna var á enda . Brynjólfur sagðist ekki hafa ætlað að sitja hið eiginlega þing, heldur koma Sigurði „á framfæri og taldi þar með lokið erindi sínu“ . Hélt hann því aftur til Danmerkur, eftir nokkurra daga dvöl í Berlín .11 Annað * Flieg féll í ónáð um svipað leyti og Münzenberg og lést í fangelsi Stalíns 1939 . (Branko Lazitch, Milorad Drachkovitch: Biographical Dictionary of the Comintern (Stanford, 1986), 102 .) „Leo var afar einkennilegur maður, grannur á vöxt, kinnfiskasoginn og fátæklega búinn,“ sagði Sigurður Grímsson . „Hann er alvörugefnasti maðurinn, sem ég hef fyrir hitt á lífsleiðinni, enda var aldrei svo glatt á hjalla með hinum ungu mönnum, er ég var þar staddur, að þá setti ekki hljóða, er hann bar að . Münzenberg var hins vegar mesti galgopi, síkátur, fyndinn og skemmtilegur, enda stórgáfaður .“ (Sigurður Grímsson: „Þegar ég vann björninn“ í Blaðamannabókinni (1949), 81–82 .) Sigurður Grímsson .

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.