Þjóðmál - 01.12.2011, Side 59

Þjóðmál - 01.12.2011, Side 59
58 Þjóðmál VETUR 2011 í Eistlandi . Hvorki staðsetningin né tíma- setn ingin er tilviljun . Forgangsröðun NATO í þessari þróun er að fyrirbyggja tölvuárásir og tryggja varnir tölvukerfa . Þá er það einnig markmið að geta boðið fræðslu og þjálfun fyrir aðildar- ríki þegar á þarf að halda . NATO hefur undanfarin ár þróað tölvuþjónustu (e . Cyber Services) og tölvuvarnir (e . Cyber Protection) og gert aðgengilegar aðildar- ríkj um . Takmarkið er að geta numið árásir, komið í veg fyrir þær og aðstoðað við að takmarka skaðann og byggja síðan upp ef skaðinn er skeður . NATO getur nú sent út svokallaðar hrað- viðbragðssveitir (e . rapid response teams) en þær eru skipaðar tölvu- og öryggis sér fræð- ingum frá bandalaginu sem mæta á vett- vang ef í óefni fer . Þessi teymi voru þróuð eftir að varnarmálaráðherrar bandalags ins endurskoðuðu tölvuöryggisstefnu banda- lagsins í júní á þessu ári . „Tölvuárás er alvöruárás sem ber að mæta með vopnavaldi“ Ég sótti Lissabonráðstefnuna í nóv-ember í fyrra þar sem ný öryggis- málastefna bandalagsins var kynnt . Þar var áberandi hve miklu meiri áhersla var lögð á tölvuöryggi en áður . Enn á eftir að koma í ljós hversu farsæll tölvuöryggisarmur NATO verður en þó nokkru fjármagni og afli er eytt í að magna þessa getu banda- lagsins . Að lokum má benda á að Bandaríkin hafa hvatt bandalagsríki NATO til að íhuga að ef tölvuárás verður gerð á eitt af aðildar- ríkjunum skuli litið á slíkt sem árás á öll ríkin og mætt af afli, jafnvel með hefð- bundnu vopnavaldi . Þessi yfirlýsing Banda- ríkjastjórnar, sem mörg önnur aðildar ríki taka undir, gefur til kynna hversu alvar- legum augum þessar árásir eru litnar . Hver er skaðinn? Tölvuvopn eru vissulega skaðlegust í hönd um öflugra ríkja en vegna þess að þau eru ódýr kunna þau að nýtast best í höndum lítilmagnans . Það er aðkallandi verkefni á Íslandi að bæta fræðslu og getu á sviði tölvuvarna til þess að minnka líkurnar á að fyrirtæki í landinu, rafmagnskerfið, fjár málakerfið og stjórnsýslan verði ekki stór skemmd vegna einhvers sem væri jafn- vel tóm stundagaman illviljaðra manna . Fræðsla sem myndi t .a .m . beinast að fyrir - tækj um myndi fljótlega afvopna litlu aðilana í tölvu stríð inu, litlu aðilana sem þó eru ábyrgir fyrir flestum árásum og valda lík lega, þegar sam an safnast, mestum efnahags skaða . Barak Obama Bandaríkjaforseti hefur sagt að tölvu glæpir kosti bandarískt efnahags - líf yfir billjón dollara (1 .000 .000 .000 .000 USD) á ári . Engar tölur eru til sem meta skað ann af tölvu árásum fyrir íslenskt efna- hags líf en líklegt er þó að hann sé nokkur . Talið er að um 40 þúsund einingar af við kvæm um fjármálagögnum fari kaup- um og sölum á svörtum markaði á netinu á hverjum degi, upplýsingar eins og kredit- korta númer, aðgangsorð og reikn ings upp- lýsingar .* Þessi iðnaður er vaxandi hluti af starfsemi skipulagðra glæpagengja og Ís- lendingar hafa ekki sloppið við afleið ing arnar af þessari þróun, sbr . til dæmis um fangsmikil greiðslukortasvik erlendra manna í hrað- bönkum landsins og þjófnað á per sónu upp- lýsingum Íslendinga í gegnum netið . Staðan á Íslandi Varla þarf að fara mörgum orðum um skaðann sem tölvuárásir gætu valdið í landi eins og Íslandi . Fjármálakerfið gæti verið undir og það sama mætti segja um getu * William Hague, „Munich Security Conference“, 4 . febrúar 2011 .

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.