Þjóðmál - 01.12.2011, Qupperneq 62
Þjóðmál VETUR 2011 61
ríkisfjármála . Svíþjóð hefur aldrei fengið
eina krónu frá ESB . ESB-aðildin hefur hins
vegar kostað Svíþjóð samtals 20 miljarða
evra í greiðslur til ESB .
Í pakka Austur-Evrópu árið 2004 voru
bæði landfræðileg lega landanna og pólitísk-
ur ótti við rústir Sovétríkjanna .
Evrópusambandið stækkar í hræðslu-köstum . Gríska ríkið er orðið gjald þrota
eftir 30 ára aðild að Evrópu sambandinu
og 92 miljarða beinar greiðslur frá ríkari
löndum sambandsins, eins og til dæmis frá
Finnlandi og Svíþjóð . Var Grikkjum þetta
til góðs? 30 ár á spen anum og ekkert hefur
lag ast til muna . Fleiri þjóðir munu verða
Grikklandi samferða til grafar í ESB .
Enga þessara þjóða myndi dreyma um að
sækja um inn í Evrópusambandið ef þær
nytu landfræðilegrar staðsetningar, nátt-
úru auðlinda og kosta Íslands .
Á dagskrá sambandsins er nú verið að
taka ríkisfjárlagavald og skattheimtu af ríkj-
unum í skrefum . Tvær ríkisstjórnir hafa á
einni viku, án þess að hafa verið kosnar,
undir yfir skini björgunar, verið settar til
valda í tveim lönd um sambandsins að
beiðni Brussels .
Hvað hefur aðild að Evrópusamband-inu í för með sér og hvað myndi hún
þýða fyrir Ísland?
Sá pakki mun trúlega valda vonbrigðum
þegar hann verður opnaður .
1) Aðild myndi þýða hörmulegt af sal á
full veldi og sjálfstæði lýðveldis Ís lend inga .
2) Við missum allt fullveldi Íslands í pen-
inga-, vaxta- og myntmálum .
3) Að okkur yrði skylt að leggja niður
okkar eigin mynt og taka upp evru og
gætum aldrei aftur gefið út eigin mynt .
4) Við missum stjórn Íslands yfir fisk veið-
um og landbúnaði .
5) Við missum sjálfræði Íslands yfir við-
skiptum við umheiminn .
6) Við glötum fullveldi Íslands og yfir-
ráða rétti yfir æðstu löggjöf . Brussel hefur
alltaf síðasta orðið .
7) Við glötum fullveldi Íslands yfir laga-
smíðum . Brussel hefur síðasta orðið .
8) Við glötum stórum hluta fullveldis Ís-
lands yfir refsilöggjöf .
9) Við glötum næstum öllu fullveldi Ís-
lands yfir löggjöf atvinnumarkaðar .
10) Við glötum næstum öllu fullveldi
Íslands yfir viðskiptaeftirliti .
11) Við glötum stækkandi hluta af full-
veldi Íslands í skattamálum .
12) Við glötum öllu fullveldi Íslands yfir
utanríkisstefnu .
13) Við glötum stórum hluta fullveldis
Íslands yfir varnarmálum .
14) Við glötum stærstum hluta full veldis
Íslands í innflytjenda- og flótta manna-
málum .
15) Við glötum stórum og stækkandi
hluta fullveldis Íslands yfir ríkisfjár mál -
um og þar með fullveldi okkar í velferðar -
málefnum Íslands .
Litla þjóð“, láttu ekki glepjast af því að allt sé gull sem glóir . Íslendingar misstu
sjálfstæði sitt í margar aldir þegar þeir gengu
Noregskonungi á hönd árið 1262 . Þjóðin
stríddi öldum saman við ýmsar hörmungar,
þangað til hún hlaut sjálfstæði sitt árið 1944 .
Litla þjóðin mín varð fyrir áfalli 6 . október
2008, en gerið ekki þau mistök að afsala
ykkur fullveldi í annað sinn . Enginn veit
hvað átt hefur fyrr en misst hefur, gerum
ekki forfeðrum okkar þá skömm .
A fi minn, Kjartan Ólafsson skáld (f . 6 . mars 1895, d . 22 . október 1971),
hafði áhyggjur af landi sínu og þjóð um
áramótin 1928 . Mér finnst það eiga jafn vel
við um áramótin 2011/2012 . Hann orti: