Þjóðmál - 01.12.2011, Síða 71
70 Þjóðmál VETUR 2011
3 . 4/5 hlutar hlutafjár félagsins skulu vera
í eigu íslenskra ríkisborgara .
4 . Íslenskir ríkisborgarar skulu fara með
meirihluta atkvæða á hluthafafundum .
Samkvæmt 2 . tölul . 2 . mgr . 1 . gr . laga nr .
19/1966 getur innanríkisráðherra, svo sem
fyrr greinir, veitt leyfi til að víkja frá skilyrðum
1 . mgr . 1 . gr . laganna ef annars þykir ástæða
til . Er hér um að ræða undanþáguákvæði sem
ber samkvæmt almennum lögskýringarreglum
að túlka þröngt . Telur ráðuneytið mikilvægt
að við beitingu þess sé litið til markmiðs laga
nr . 19/1966 og forvera þeirra, samnefndra
laga nr . 63/1919, en af lögskýringargögnum
verður ráðið að talið hafi verið að takmarkanir
útlendinga til þess að öðlast réttindi yfir
fasteignum á Íslandi væru nauðsynlegar til
þess að standa vörð um sjálfstæði eða fullveldi
landsins og möguleika Íslendinga til að njóta
sjálfir arðs af auðlindum sínum .
Að mati ráðuneytisins verður ekki horft
framhjá því hversu stórt landsvæði er um að
ræða sem félagið hyggst kaupa, eða 30 .639
hektarar, og að engin fordæmi eru fyrir því
að jafnstórt landsvæði á Íslandi hafi verið
fært undir erlend yfirráð . Telur ráðuneytið
það ekki samrýmanlegt tilgangi og markmiði
laga nr . 19/1966 að ráðherra veiti leyfi til þess
að víkja frá skilyrðum 1 . mgr . 1 . gr . laganna
þegar um jafnstórt svæði er að ræða .
Einnig ber að hafa í huga að ákvæðið
setur fyrir því ströng skilyrði að hlutafélög
megi öðlast eignarrétt eða afnotarétt yfir
íslenskum fasteignum og er ljóst að umrætt
félag uppfyllir ekkert þeirra . Telur ráðuneytið
því að í máli þessu séu aðstæður með þeim
hætti að ef leyfi væri veitt til undanþágu
frá lögunum væri vikið svo langt frá þeirri
meginreglu sem 1 . mgr . 1 . gr . mælir fyrir um,
að ekki sé réttlætanlegt .
Niðurstaða ráðuneytisins er sú að ekki þyki
ástæða til fyrir innanríkisráðherra að veita
Beijing Zhongkun Investment Group leyfi til
að víkja frá skilyrðum 4 . tölul . 1 . mgr . 1 . gr .
laganna og kaupa 72,19% eignarhlut í óskiptri
heildareign jarðarinnar Grímsstaða á Fjöllum .
Er beiðni félagsins þar að lútandi því hafnað .
*
Eftir að Ögmundur Jónasson hafði kynnt niðurstöðu sína opinberlega sætti
hann gagnrýni Jóhönnu Sigurðardóttur
forsætisráðherra sem sagði ákvörðun
innanríkisráðherra „vonbrigði“ . Jóhanna
óttaðist þó ekki að ákvörðunin hefði
„varanleg áhrif á stjórnarsamstarfið“, hins
vegar styrkti hún „samstarfið ekki heldur“ .
Í samtali við RÚV 25 . nóvember 2011
sagði Jóhanna ekki fara á milli mála að
Ögmundur færi með stjórnskipulegt vald
í þessu máli . Hún hefði hins vegar kosið
að hann hefði haft meira samráð við aðra
ráðherra vegna ákvörðunarinnar og orðrétt
sagði hún, svo að vitnað sé í ruv.is:
Ég tel það óheppilegt hvað ráðherra hélt
þessu máli fyrir sjálfan sig og var búinn að
tilkynna hana viðkomandi aðila áður en hann
kom á ríkisstjórnarfund í morgun og það var
auðvitað afar óheppilegt .
Þarna fann Jóhanna ekki aðeins að efnis-
legri niðurstöðu ráðherra í ríkisstjórn sinni
heldur gagnrýndi hann einnig fyrir að stilla
ríkisstjórninni upp við vegg í málinu, hann
hefði kynnt Huang Nubo niðurstöðu sína
á undan ríkisstjórninni . Jóhanna hafði hins
vegar ekki á orði að Ögmundur viki úr
ríkisstjórn vegna þessa .
Á forsíðu Morgunblaðsins sagði 26 . nóv-
ember 2011:
Árni Páll Árnason efnahags- og viðskipta-
ráðherra sagði niðurstöðuna [synjun Ög-
mundar] óhjákvæmilega vekja spurningar
um stjórnarsamstarfið og framhald þess .
Ög mund ur Jónasson innanríkisráðherra
segir aðspurður að mikið hugarflug þurfi
til að komast að þeirri niðurstöðu að málið
ógni stjórnarsamstarfinu . „Þetta snýst ekki
um pólitík heldur um það eitt að fara að
landslögum,“ segir hann .
En eru líkur á að stjórnin falli vegna
máls Huangs? „Menn eru misjafnlega fúlir
yfir þessu,“ sagði Össur Skarphéðinsson