Þjóðmál - 01.12.2011, Page 75
74 Þjóðmál VETUR 2011
hafi hefði ekki verið talið líklegasta leiðin
fyrir kínverskt skáld til að sýna ríkidæmi sitt .
Huang Nubo er þó ekki aðeins skáld . Hann er
einnig einn þekktasti fasteignafjárfestir lands
síns, fjallaáhugamaður og innanbúðarmaður í
Kommúnistaflokki Kína . Opinbera skýringin
er sú að þessi sérstæðu kaup á hluta af Íslandi
sem er jafnstór og fjórðungur stærðar Hong
Kong sé leið hans til að sanna sig sem einn
fremsta ferðaþjónustufrumkvöðul Kína .
Á málinu er einnig önnur skýring: að þetta
bruðl með eignakaupum sé ekki síður skylt
stórhuga áformum stjórnvalda í Peking um að
ná undirtökunum í alþjóðaviðskiptum með
því að koma á nýrri siglingaleið milli Asíu og
Vesturlanda — en í sömu andrá kunna þau að
ógna fullveldi Íslands .
Þetta er ef til vill skýringin á því að
fréttunum um að Huang, sem í Forbes-
tímaritinu er skráður sem 161 . í röð ríkustu
manna í Kína, að virði 564 milljónum punda,
hefur ekki verið tekið með fyrirvaralausri
ánægju í Reykjavík . Þótt kaupin á þeim hluta
Grímsstaða á Fjöllum sem er í einkaeign hafi
gengið eftir hafa þau ekki hlotið nauðsynlegt
opinbert samþykki .
„Eign á landi er mikilvæg fyrir sjálfstæði
hvers lands,“ sagði Ögmundur Jónasson,
innan ríkisráðherra Íslands, við The Independent
í gær . „Það hefur ekki farið fram hjá mér að
Kínverjar hafa verið mjög virkir við kaup á
Atlants hafseignum .“
Meðal efasemdarmanna hafa einnig vaknað
spurningar um hvort 200 fermílna [sem
eru nálægt 500 ferkílómetrum en í raun er
um 300 ferkílómetra að ræða] landareign sé
nauðsynleg fyrir umhverfis-ferðamennsku og
golfvöll, sama hversu glæsilega sem menn vilja
hafa alla aðstöðuna . Þá hefur það ekki heldur
farið fram hjá mönnum að landið er nálægt
hugsanlegu hafnarstæði fyrir stórskip . „Þetta
land er mjög stórt og auðvitað nokkuð rúmgott
fyrir hótel,“ sagði Ögmundur Jónasson . Þegar
hann var hvort eitthvað annað kynni að hanga
á spýtunni með kaupunum svaraði hann: „Ég
veit það ekki, ég veit það ekki . Ég hef ekki
neina hugmynd um það .“
Það eru ekki allir svona áhyggjufullir .
Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra sagði
frétta mönnum að það þyrfti augljóslega að
„stíga varlega“ til jarðar af Íslands hálfu . Hún
bætti hins vegar við að það væri „engin ástæða
til að fyllast móðursýki vegna þess að einn
kínv erskur kall vildi kaupa eitthvað af landi
og festa fé í ferðaþjónustu á Íslandi“ .
Spyrja má: Er þetta aðeins áhugi eins
manns? Til að leita svara við þessu og skýringa
á viðskiptunum munu margir líta á hina miklu
viðskiptahagsmuni Kínverja . Í Peking eru
menn sífellt að leita að leiðum til að stækka
viðskiptanet sitt um heim allan; Ísland er á
mikilvægum stað á jörðinni milli Evrópu og
Norður-Ameríku og gæti hugsanlega þjónað
sem umskipunarstaður fyrir varning frá Asíu
yrði hlýnun jarðar til þess að siglingar hæfust
um Norður-Íshaf . Íslendingar og Kínverjar
hafa þegar rætt um samvinnu um Norður-
Íshafssiglingar af því að Kínverjar vilja flytja
vörur úr verksmiðjum sínum þessa leið til
Evrópu og Bandaríkjanna, yfir Norðurpólinn
þegar heimskautaísinn hverfur .
Kínverjar hafa ekki einir áhuga á þessu .
Heimskautaþjóðir, þar á meðal Rússar og
Norðmenn, hafa kannað kostina við nýjar
flutningaleiðir þegar ísinn bráðnar . Norður-
leiðin sem liggur með norðurströnd Rúss-
lands og er núna lokuð mánuðum saman ár
hvert gæti stytt venjulega 20 daga ferð frá
austurströnd Kína suður fyrir Indland, um
Súez-skurðinn til norðurhluta Evrópu um
eina viku að sögn Christophers Palssonar hjá
fyrirtækinu IHS Fairplay sem sérhæfir sig í að
fylgjast með siglingum og skipaferðum .
Hann segir að enn sé erfitt að færa sterk
fjárhagsleg rök fyrir því að nota norðurleiðina
þar sem hanna þurfi og smíða sérstök skip
og ísbrjótar verði að aðstoða þau og ekki
sé tryggt að unnt verði að koma skipum til
hjálpar í neyð þar sem nauðsynlegan búnað
og aðstöðu skorti til þess . „Ég held að enginn
geti farið og rætt við banka um lán með slíka
viðskiptaáætlun,“ sagði hann .
Hver sem sannleikurinn er má telja líklegt
að kínverska ríkisstjórnin standi heilshugar
að baki viðskiptum frumkvöðuls á borð við
Huang . Hinn 55 ára gamli auðmaður lýsir sér
gjarnan sem skáldi sem yrki undir dulnefninu
Louying og hann er einnig frægur fyrir