Þjóðmál - 01.12.2011, Síða 76
Þjóðmál VETUR 2011 75
ævintýralegar fjallaferðir sínar í Kína . Hitt
skiptir þó meira máli að hann er alkunnur
kapítalisti með skínandi vitnisburð frá
Kommúnistaflokki Kína . Hann er fyrrverandi
deildarstjóri í áróðursmálaráðuneyti flokksins
og hefur einnig unnið sem stjórnandi í deild
mannvirkjaráðuneytisins, það er í einni af
þeim stofnunum sem bera ábyrgð á varðveislu
sögulegra minja .
Fyrirtæki hans, Zhongkun, sem hann
stofnaði árið 1995, rekur þjónustu á mörgum
af frægustu ferðamannastöðum Kína, þar
á meðal Hongchun í Anhui-héraði og
Zhongdian í nágrenni Tíbets . Reksturinn
gengur frábærlega vel vegna þess að fólk í
vaxandi millistétt í Kína streymir á helstu
sögustaði lands síns . Auðugir Kínverjar hafa
jafnframt áhuga á að ferðast til annarra landa
og innan fárra ára verður Kína mesta ferða-
mannaland heims . Zhongkun vinnur nú að
verkefnum í Nashville í Tennessee og Los
Angeles auk þess að láta að sér kveða í Japan .
Áhugi Huangs á Íslandi er alkunnur . Síðasta
ár sagðist hann ætla að skipuleggja ljóðahátíð
í Reykjavík og hann gaf eina milljón dollara í
„Kínversk-íslenska menningarsjóðinn“ . Huang
segir að öll áform sín um útþenslu erlendis miði
að því að koma til móts við frí stundakröfur
forystusveitar Kína . Fyrir tækið hefur komið
á fót „Hawthorn Vacation Club“, hágæða
frístundaþjónustu fyrir gæða-viðskiptavini .
Um þessar mundir miðast hagsmunagæsla
Kínverja á erlendum vettvangi einkum að því
að tryggja hráefni og þeir hafa engan áhuga
á að eignast meira af Rússlandi, Mongólíu
eða Indlandi en þeim er kappsmál að efla
viðskiptasambönd . Þeir hafa greinilega séð
tækifæri á Íslandi og hafa stofnað til sam-
starfs við ríkisstjórn eyjunnar um að þróa
jarð hitatækni . Eftir að fjármálahrunið mikla
varð í Reykjavík hefur viðleitni Kínverja til
að skapa tengsl magnast til mikilla muna .
Íslendingar berjast síðan í hruninu af örvænt-
ingu við að tryggja aðgang sinn að alþjóð-
legum gjaldmiðlum, í júní á síðasta ári gerði
Seðla banki Íslands 66 milljarða króna gjald-
miðla skiptasamning við Kína .
Einhliða samskipti af þessu tagi geta meira
að segja vakið óþægilegar tilfinningar hjá ríkis-
stjórn Íslands . „Að sjálfsögðu hef ég mikinn
áhuga á að styrkja efnahag Íslands,“ sagði Ög-
mundur Jónasson . „ Ég vil hins vegar gæta
mikillar varúðar þegar veittar eru undanþágur
til að kaupa stór landsvæði eða til að fá aðgang
að mikilvægum náttúruauðlindum .“
Að lokum ákveða Ögmundur Jónasson og
félagar hans hvort af kaupunum verður . Sama
er hvaða ákvörðun þeir taka, hún mun hafa
áhrif á miklu meira en það sem snertir vinsælan
frístundastað fyrir fyrirfólk frá Peking .“
Í tilefni af þessari grein skrifaði Ben Chu
sem er leiðarahöfundur við The Independent
á vefsíðu blaðsins:
Vesalings Ísland . Uppgangur þess var stór-
fenglegur . Fallið sársaukafullt . Og nú sitja ný-
lendusinnar greinilega um það . Huang Nubo,
kínverskur auðjöfur, vill kaupa 300 ferkílómetra
af landi á norðausturhluta eyjunnar fyrir 5,4
milljarða punda [svo] til að opna lúxushótel og
umhverfistengda ferða þjónustu .
Hið svala orðspor Íslendinga varð að engu
þegar bankar þeirra hófu að kaupa helming-
inn af breskum verslunarkeðjum . Og nú
ríkir móðursýki . Nú er talað um það hvernig
þessi kaup munu gera Kínverjum kleift að ná
strategískri fótfestu í Norður-Atlantshafi .
Vísað hefur verið fyrra starfs Huangs í
áróðurmálaráðuneyti Kína því til sönnunar að
um einhvers konar samsæri sé að ræða . Ög-
mundur Jónasson, innanríkisráðherra Íslands,
hefur lýst áhyggjum yfir því að Kínverjar séu
að „kaupa upp land um heim allan“ .
Hver er eiginlega hættan við þetta allt saman?
Mun Kína breyta frístundastað í stór skipahöfn?
Yrði með því að ýta á hnapp unnt að breyta
hóteli Huangs í vígbúið virki, eins konar Tracy-
eyju? [Tracy-fjölskyldan í sjón varpsþáttaröðinni
Thunderbirds bjó á eyju í Suður-Kyrrahafi,
raunverulega var eyjan felustaður fyrir dulbúna
alþjóðlega björg unar sveit .]
Með því að eignast land öðlast erlendir
ríkisborgarar ekki rétt til að gera það sem
þeim sýnist við eignina . Það er fyrst þegar þeir
taka til við að þrýsta á breytingar á íslenskri
löggjöf sem Íslendingar þurfa að gæta sín .
Íslendingar ættu að láta sitja við það eitt núna