Þjóðmál - 01.12.2011, Síða 80
Þjóðmál VETUR 2011 79
Ég verð að segja alveg eins og er að ég varð
undrandi á þeim að hann skuli ætla okkur að
gera eitthvað slíkt og skuli ákveða að dylgja
um slíkt án þess að tala við kóng eða prest
áður en það er gert . Og mér fannst það ekki
sanngjarnt hjá félaga mínum, Ögmundi
Jónassyni, í ríkisstjórn að gera það . En það er
kannski ekkert skrítið að hann átti sig ekki á
því hversu opið Ísland er í raun og veru fyrir
fjárfestingum í atvinnustarfsemi enda kannski
erlendar fjárfestingar ekki beint verið á hans
sviði hingað til, eins og menn vita .
Þegar Þjóðmál fóru í prentun var ekki vitað
hvernig þessum deilum ráðherranna mundi
lykta eða á hvern hátt Katrín Júlíusdóttir
ætlaði að láta leiða Huang Nubo um
völundarhús íslenskra laga inn í fyrirheitna
landið .
*
Hvaða lærdóm má draga af því sem hér hefur verið lýst? Nefnd skulu fimm
atriði:
1) Ríkisstjórn sem situr þrátt fyrir að hafa
tapað tveimur þjóðaratkvæðagreiðslum um
Icesave mun sitja áfram þótt annar flokkur
hennar verði undir í máli Huangs . Staða
stjórnarflokkanna er of veik til að þeir þori
að rjúfa þing og efna til kosninga . Sam fylk-
ingin hefði beitt ráðherravaldi til að heimila
Huang kaupin hefði ráðherra hennar
setið í innanríkisráðuneytinu, það sýnir
minnisblað Árna Páls Árnasonar, efnahags-
og viðskiptaráðherra .
2) Hópur manna innan Samfylkingar-
innar, í tengslum við Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttur og Össur Skarphéðinsson,
hefur átt beina aðild að því að auðvelda
Huang Nubo að koma á viðskiptasambandi
við Ís lendinga með milligöngu eiginmanns
Ingi bjargar Sólrúnar, lögfræðilegri aðstoð
Lúðvíks Bergvinssonar og aðstoð sendi-
ráðs Íslands í Peking undir forystu Krist ínar
Árnadóttur og fulltingi Ragnars Baldurs-
sonar sendiráðsstarfsmanns .
3) Utan Íslands litu menn á áhuga Huangs
á að eignast Grímsstaði á Fjöllum sem
viðleitni af hálfu Kínverja til að koma ár sinni
fyrir borð á mikilvægum stað, hvort heldur
litið væri til viðskipta, alþjóðastjórnmála
eða hernaðarhagsmuna . Forseti Íslands setti
áformin í þetta samhengi þegar hann gaf til
kynna að Evrópumenn og Bandaríkjamenn
gætu sjálfum sér um kennt að Íslendingar
vildu efla tengsl sín við Kína og Indland .
Huang sagðist hafa fengið hvatningu frá
Ólafi Ragnari til að fjárfesta á Íslandi,
Ólafur Ragnar segir þetta ekki rétt .
4) Áður en innanríkisráðherra birti niður-
stöðu sína lét Huang Nubo eins og fyrir
sér vekti það eitt að festa fé á Íslandi . Eftir
höfnunina setur Huang hana í víðtækara
samhengi . Reynsla hans af samskiptum við
Íslendinga eigi að verða víti til varnaðar fyrir
aðra kínverska fjárfesta sem hafi áhuga á að
reyna fyrir sér á Vesturlöndum .
5) Við lyktir kalda stríðsins, hrun Sovét-
ríkjanna og gjörbreyttar aðstæður í al þjóða-
stjórnmálum dró mjög úr land fræðilegu
og stjórnmálalegu (geopólitísku) gildi Ís-
lands . Við það minnkaði slagkraftur ís-
lenskra stjórnvalda á alþjóðavettvangi og
gagnvart nágrannaríkjum austan hafs og
vestan . Umræðurnar vegna kaupanna á
Grímsstöðum á Fjöllum sýna að landið
er að öðlast fyrra aðdráttarafl gagnvart
þeim sem vilja gæta hnattrænna hagsmuna
sinna .