Þjóðmál - 01.12.2011, Side 82
Þjóðmál VETUR 2011 81
Baugs málinu . Höfund ur vísar þó einnig til
annarra mála sem óneit an lega hafa þýðingu
þegar það er metið hvort dómstólar og
rann sóknaraðilar hafi gengið fram með
nauðsynlegum hætti á upp hafs ára tug
aldarinnar .
Þegar bókin er virt í heild
þá felur hún í sér ákveðinn
áfellisdóm yfir dóm stólum,
en einnig og ekki síður yfir
fjölmiðlum og fjöl miðla-
umræðunni varðandi Baugs-
málið sérstaklega . Höf undur
tæpir líka á öðrum atriðum
sem vissulega eiga erindi inn í
umræðuna þegar reynt verður
að meta heild stætt ábyrgð
einstakra aðila á því hvernig á
því stóð að fjár málamenn og
fjármálafyrirtæki gátu haft jafn frjálsar hendur
og raun bar vitni fyrir hrun .
Í því sambandi bendir höfundur t .d .
á ummæli umboðsmanns Alþingis í maí
2007, þar sem umboðsmaður viðhafði orð
sem verða ekki skilin með öðrum hætti
en svo að hann telji að eftirlitsaðilar, þar
á meðal Fjármálaeftirlitið, gangi fullhart
fram gagn vart bönkum og öðrum fjár mála-
fyrir tækjum . Bankamenn hentu þetta á
lofti, eins og sást á viðtali við lögfræðinga
Kaupþings í Viðskiptablaðinu sumarið
2007 . Þessi sami maður settist ári síðar í
dómara sæti einn þriggja í Rannsóknarnefnd
Alþingis þar sem hann gaf út palladóma
ásamt meðnefndarmönnum sínum, m .a .
um þá sem hann greinilega taldi að gengið
hefðu of hart fram árið 2007 .
Ég lít á þessa umfjöllun höfundar, þar
sem hann varpar, fyrstur bókahöfunda eftir
hrun, kastljósinu sérstaklega á hlutverk og
ábyrgð dómstóla og fjölmiðla, sem mikilvægt
innlegg í hlutlæga umræðu, sem verður að
fara fram, og mun fara fram, þegar betri
greining fæst á því hvað gerðist í raun, og
flett hefur verið ofan af þeim gapuxum sem
farið hafa mikinn og vegið að fjölmörgum
fyrrverandi ráðamönnum persónulega í
fjölmiðlum eftir hrun . Bók Óla Björns
Kárasonar er því kærkomið og gott innlegg í
vitræna málefnalega umræðu
um aðdraganda hrunsins .
Það er rétt ályktun hjá
höfundi að dómstólar og
fjölmiðlar hafa mjög mikil
áhrif við mótun þjóðfélaga
og hvaða stefnu mál taka .
Þau lausatök sem urðu í
Bandaríkjunum og Evrópu
á lagareglum varð andi
fjármálafyrirtæki í heim-
inum, og eiga upptök sín
í stjórnartíð Bill Clinton
Banda ríkjaforseta, eru helsta
orsök þess bankahruns sem varð víða í
Evrópu og Bandaríkjunum árið 2008 . En
aðrir leikendur léku líka stórt hlutverk .
Margir halda því fram að hér hafi gerst
eitthvað sérstakt sem hafi verið eðlisólíkt
því sem gerðist annars staðar . Það er rangt .
Helsti munurinn hér var að bankakerfið var
hlutfallslega stærra, sem leiddi til annarra
úrlausna á Íslandi en annars staðar . Eftir á
að hyggja sem betur fer fyrir okkur .
Sú umræða sem höfundur byrjar með
bók sinni, Síðustu vörninni, er nauðsynleg
og sýnir það mikilvægi sem dómstólar hafa
við að móta eðlilegar leikreglur á viðskipta-
sviðinu sem og öðrum í samræmi við þau
lög sem þeim er gert að starfa eftir . Þá sögu
má segja með ítarlegri hætti og verður það
vafalaust gert í framtíðinni .
Höfundur nefnir réttilega Baugsmálið
sem stóra málið þar sem dómstólar gerðu
mjög strangar kröfur bæði til forms og
efnis, og að því er mér virðist strangari en í
sumum öðrum tilvikum þar sem dómstólar
hafa haft sakamál til meðferðar . Þá gættu
dómstólar þess ekki að viðhafa eðlilega