Þjóðmál - 01.12.2011, Side 84
Þjóðmál VETUR 2011 83
þeirra og afstaða mótast með sama hætti
og okkar hinna . Í öllum átökum verður
síðasta vörnin þeim mun veikari því fyrr
sem útvirkin falla .
Bók sem ristir inn að
hjartarótum
Ayn Rand: Uppsprettan . Þorsteinn Siglaugsson
þýddi . Almenna bókafélagið, Reykjavík 2011,
524 bls .
Eftir Ásgeir Jóhannesson
Skáldsagan Uppsprettan (e . Fountainhead) fékk litla umfjöllun í fjölmiðlun þegar
hún kom út árið 1943 og hinir fáu ritdómar
sem birtust voru heldur dræmir . Viðtökurn-
ar voru í samræmi við niðurstöður þeirra
tólf útgefenda sem höfðu hafnað bókinni
áður en höfundurinn, hin rússnesk-ættaða
Ayn Rand, fann forlag sem var reiðubúið
að gefa hana út . Forlagið hét Bobbs-Merrill
Company og ákvörðunin var tekin eftir að
nýráðinn starfsmaður forlagsins hótaði að
segja upp ef bókin yrði ekki samþykkt til
útgáfu .
En líkt og gildir um gæfuna, þá má segja
að ógæfan sé fallvölt . Í þann mund sem
útlitið var hvað dekkst fyrir Uppsprettuna og
feril höfundarins, byrjaði að sjást til sólar .
Atburðarásin hljómar kunnuglega: Upp
sprett an hitti ýmsa lesendur beint í hjarta-
stað og þeir mæltu með bókinni við vini og
kunningja; þannig spurðist hún hægt og
rólega út á meðal fólks . Fyrr en varði seldist
hún í skipsförmum og komst á lista yfir
met sölubækur . Á þeim tæpu sjö áratugum
sem liðið hafa frá útgáfu bókarinnar hafa
selst tæplega sjö milljón eintök .
Uppsprettan færði Ayn Rand frægð og
frama — bókin reyndist þau mikilvægu
tímamót sem lögðu grunninn að farsælum
ferli höfundarins, sem síðar varð einn vin-
sælasti kvenrithöfundur allra tíma . En
Uppsprettan hefur einnig reynst vera mikil-
væg tímamót í lífi lesenda; mörgum þeirra
færði hún ekki aðeins ómælda ánægju,
heldur stuðlaði gjarnan að varanlegri breyt-
ingu á viðhorfum og lífsstíl . Í raun lagði
bókin grunninn að nýjum hugsunar hætti
og er iðulega nefnd sem ein af helstu „költ“-
bókum tuttugustu aldar . Kvikmynda-
gerð bókarinnar, byggð á hand riti eftir
Rand sjálfa og með Hollywood-leikar ann
góðkunna Gary Cooper í aðal hlut verki,
birtist á hvíta tjaldinu árið 1949 .
Þó að Ayn Rand sé af mörgum þekkt
fyrir ögrandi stjórnmálaskoðanir, þá er
Uppsprettan ekki pólitísk bók, heldur
ristir hún dýpra í vissum skilningi . Segja
má að bókin sé tilvistarleg eða lífsspekileg
í grunninn . Hún fæst við valkostina sem
skyn semis verur standa frammi fyrir og
varpar ljósi á ýmis grundvallarmálefni:
hverskonar líf sé eftirsóknarvert, hvernig
hugarfar stuðli að lífvænlegri breytni,
hvaða hlutir gefi lífinu merkingu og ljái
því gildi, og svo framvegis . En slíkur
heimspekilegur skilningur á bókinni er
aðeins ein hlið hennar . Önnur mikilvæg
hlið, sem er vafa laust fullnægjandi fyrir
marga lesendur, er einfaldlega fléttan, sú
saga sem er sögð, ljóslifandi persónur, ástir
þeirra og örlög .
Í Uppsprettunni lýsir Ayn Rand nokkrum
ólíkum manngerðum og hvernig þær takast
á og farnast í lífinu . Sú manngerð sem birtist
í aðalsöguhetjunni, arkitektinum Howard
Roark, kallar hún skapara (e . creator) .
Skaparar eru frumkvöðlar í vísindum,
tækni, listum, heimspeki, viðskiptum og
fleiru . Þeir beita skynsemi sinni á heiminn,
eru óháðir og fara sínar eigin leiðir, en skeyta
engu um viðhorf og skoðanir annarra .
Uppspretta sköpunargáfunnar, að mati