Þjóðmál - 01.12.2011, Side 97

Þjóðmál - 01.12.2011, Side 97
96 Þjóðmál VETUR 2011 hefur orðið metsölubók víða um heim . Dauðinn í Dumbshafi er mikið eljuverk Magnúsar Þórs Hafsteinssonar, fyrrverandi alþingismanns, sem hann hefur unnið að í frístundum árum saman . Þar er sögð heillandi en ógnvænleg saga sjóhernaðar í norðurhöfum á árum heimsstyrjaldarinnar síðari í tengslum við íshafsskipalestirnar í Hvalfirði . Það er alltaf hætta á því í auglýsingaskrum inu fyr ir jól in að góðar bækur verði und - ir fargi jóla bókaflóðsins . Tvær for vitni legar bækur frá minni for lög unum hefur rekið á fjör- ur Þjóðmála . Báðar eiga það skilið að ná til sem flestra, en það gætu hæglega orðið örlög þeirra að leggjast undir fargið . Þetta eru bæk urnar Stalínsbörn eftir Owen Matthews, sem Urður bókafélag gefur út, og Dauð inn í Dumbs hafi eftir Magnús Þór Haf steins son, sem Hólar gefa út . Stalíns­ börn segir áhrifamikla fjölskyldusögu í Rússlandi Stalíns, en höfundurinn er hálf rúss neskur breskur blaðamaður sem starfar fyrir bandaríska tímaritið Newsweek . Hann kynntist sög unni um ástir og örlög ættmenna sinna þegar hann gerðist blaða- maður í Moskvu og skrifaði þessa bók sem Tvær forvitnilegar í jólabókaflóðinu Ein af bókum ársins . . . R osabaugur yfir Íslandi eftir Björn Bjarnason var met-sölubók sumarsins . Þar er rakin saga Baugstímans í sögu Íslendinga, árin 2002 til 2008, þegar stórfyrirtækið Baugur reyndi að ná heljartökum á íslensku samfélagi í krafti auðs síns og fjölmiðlaeignar . Linnulaus áróður í fjöl miðlum Baugsveldisins hafði mikil áhrif á almennings- álitið í landinu, andstæðingar Baugs voru miskunnarlaust rægðir og á endanum náði þetta díabólíska afl tangarhaldi á öllum stjórnmálaflokkunum í krafti fégjafa sinna . Það er með ólíkindum að rifja upp þessa sögu í hlutlausri frásögn Björns, sem lætur heimildirnar tala sínu máli og leyfir les- and anum að draga sínar eigin ályktanir .

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.