Þjóðmál - 01.03.2013, Síða 14

Þjóðmál - 01.03.2013, Síða 14
 Þjóðmál voR 2013 13 1 . Er kapítalisminn óstöðugur? Stutta svarið við þeirri spurningu, hvort kapítalisminn sé óstöðugur, er já . Hann er undirorpinn hagsveiflum, þenslu og samdrætti á víxl . En hvers vegna er það sakarefni? Menn kvarta undan veðrinu, en gera ekkert til að bæta það . Hvers vegna eru hagsveiflur óæskilegar? Vegna þess að þá er högum fólks raskað á margvíslegan ófyrirsjáanlegan hátt . Í þenslu fyllast menn bjartsýni og fjárfesta umfram það, sem skynsamlegt getur talist . Í kreppu verða fyrirtæki gjaldþrota og fólk missir vinnuna . En þá er þess að gæta, að ríkið er venjulega miklu óstöðugra en kapítalisminn . Í hinum föllnu alræðisríkjum nasista og kommúnista voru allir háðir duttlungum harðstjórans . Í vestrænum lýðræðisríkjum streyma frá stjórnvöldum lög, sem breyta skilyrðum fólks, trufla lífsbaráttu þess og torvelda . Og þrátt fyrir allt auðveldar kapítalisminn fólki aðlögun að nýjum aðstæðum . Sá, sem missir vinnuna, getur til dæmis á sveigjanlegum vinnumarkaði lækkað launakröfur sínar eða aflað sér nýrrar þekkingar, og þá fær hann fyrr eða síðar nýtt starf . Markaðsöflin leita ætíð jafnvægis: Ef einhver vara selst ekki, þá lækkar verð hennar, og þá eykst eftirspurnin . Þegar þetta gerist ekki hratt, er skýringin iðulega sú, að ríkið kemur með einhverjum aðgerðum í veg fyrir nauðsynlega aðlögun, til dæmis þegar það aðstoðar verkalýðsfélög við að meina ungu fólki að komast út á vinnumarkaðinn á öðrum kjörum en þeim, sem félögin hafa auglýst . Eina ráðið við frelsinu er meira frelsi . Hvað olli fjármálakreppunni 2008? Hún var kröpp hagsveifla niður á við eftir mikla hagsveiflu upp á við árin á undan, en þenslan þá stafaði af lánsfjárbólu, sem átti sér uppruna í seðlabönkum, viðskiptabönkum og öðrum fjármálafyrirtækjum á Vesturlöndum . Því má öðrum þræði líta á fjármálakreppuna sem leiðréttingu: Bólan sprakk, eins og bólur gera jafnan (Ferguson, 2009) . Einn orsakavaldurinn var undirmálslánin á bandarískum húsnæðismarkaði . Annar var stefna bandaríska seðlabankans, sem bauð lengi upp á peninga á allt of lágum vöxtum, en menn fjárfesta jafnan ógætilega, ef þeir eiga kost á hræódýru lánsfé . Hið sama gerðist í Evrópu . Þar var opinbert aðhald í peningamálum og ríkisfjármálum allt of lítið, sérstaklega í suðurhluta álfunnar, svo að aðilar í atvinnulífi fylltust bjartsýni og ætluðu sér um of . Jafnframt var áhætta af útlánum og verðbréfaviðskiptum van metin á fjármálamörkuðum . Með nýrri fjár málatækni átti að dreifa áhættu, en svo virðist sem aðeins hafi tekist að fela hana (Booth, 2009) . Bankahrunið íslenska átti sér umfram allt alþjóðlegar orsakir . Fjármálakreppan skall hins vegar fyrr og verr á Íslendingum en mörgum öðrum þjóðum vegna þess, að fjármálakerfið íslenska var hlutfallslega stórt . Áhætta var hér einnig vanmetin umfram það, sem gerðist á alþjóðlegum mörkuðum, vegna ónógra upplýsinga um skuldunauta bankanna og flókin, innbyrðis tengsl þeirra . Þegar bankamenn töldu sig vera að lána mörgum ólíkum aðilum, voru þeir í raun og veru að lána einum og sama aðila undir mörgum ólíkum nöfnum . Sömu eignir voru víðast að veði . Þetta er ekkert nýtt . Margir muna eftir íslenska bankastjóranum, sem lánaði fé í andabú og K apítalisminn hefur aldrei átt marga vini, og furðaði Jósep Schumpeter sig raunar á því einu sinni, að honum skyldi ekki hafa verið kennt um jarðskjálftana í Tókíó 1923 . . .
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97

x

Þjóðmál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.