Þjóðmál - 01.03.2013, Blaðsíða 70
Þjóðmál voR 2013 69
Vinstrimenn hafa þróað áætlanagerð sína í fjölmarga áratugi . Í því felst að búa til
ímyndaða hættu, afla stuðnings meðal fræði-
manna sem fá ausið úr gríðarlegum sjóðum til
að rannsaka hættuna, tala niðrandi um þá sem
andmæla og bjóða upp á 5 eða 15 ára áætlun til
að leysa vandann . Þið þurfið bara að þrauka í
nokkur ár og styðja okkur í þessu góða málefni,
segja þeir . En áætlunin heldur ekki vatni . Því
er bráðnauðsynlegt að aftengja lýðræðið þannig
að fólk geti ekki kosið sig frjálst, eða reisa vegg
þannig að það kjósi síður með fótunum . „Það
var náttúrulega hrun!“ er dæmi um áætlun
vinstri manna, hún heitir 20/20-áætlunin og
hættan er einhver ljóslifandi „frjálshyggja“ sem
átti að hafa lagt landið í rúst undir stjórn Sjálf-
stæð is flokksins . Hér má líta texta af vef for sætis-
ráðu neytisins um áætlun Dags B . Egg erts sonar
um „sönn lífsgæði“ frá því í nóvember 2010:
Ríkisstjórnin hefur samþykkt að unnið verði áfram
að verkáætlun um hvernig best verði lagður grunnur
að nýrri sókn í íslensku atvinnulífi og samfélagi .
Verkefnið er liður í efnahagslegri endurreisn
þjóðarinnar og hefur að markmiði að Ísland skipi
sér á ný í fremstu röð í verðmætasköpun, mennt un,
velferð og sönnum lífgæðum . Áætlunin hefur feng-
ið nafnið „20/20 — Sóknaráætlun fyrir Ísland .“
Dagur B . Eggertsson er formaður stýrihóps þessa
verkefnis en aðrir sem hópinn skipa eru; Katrín
Jakobsdóttir menntamálaráðherra, Karl Björnsson,
fram kvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga,
Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjar full trúi á Akureyri, og
Svafa Grönfeldt, rektor HR . Gert er ráð fyrir að fleiri
ráðherrar komi að verkefn inu og taki þátt í störfum
hópsins þegar fram líða stundir . Ríkisstjórnin mun á
þessu ári verja 10 milljónum króna af sameiginlegu
ráðstöfunarfé sínu til verkefnisins .
Sóknaráætlun Dags snýst að miklu leyti um að
halda þjóðfundi, eða svokallaðar mauraþúfur (þetta
virðist allt snúast um skemmtileg orð og eitt hvað
þvíumlíkt) . Niðurstöður úr 1 .200 manna þjóð-
fundi árið 2009 er eins og búast mátti við . Heill
hellingur af stikkorðum og fallegum setn ingum .
Reynd ar 11 .775 setningar, nánar tiltekið: „Um-
búð ir sem eyðast“; „50% konur, 50% karlar í allar
stjórn ir fyrirtækja“ (áhugavert í ljósi þess að fjöldi
stjórn armanna er iðulega oddatala); „húsnæði á
við ráð anlegu verði“; „afnema ofurlaun“; „auka
íbúa lýðræði“; „útrýma fátækt“; „góð lífskjör“;
„sjálf bærni í orkugjöfum“ o .s .frv . Ég lýg þessu ekki,
hægt er að skoða þetta á www .thjod fundur2009 .is
(sjá líka myndina að neðan) .
5 ára áætlun Stalíns var í boði í Sovét ríkj-
unum (13x5 ár), og hættan, sem lá í leyni, var
kapítalismi . Maó bauð líka 5 ár í Kína (12x5
ár) . ESB býður betur, eina áætlun til 2050 til
að draga úr stórhættulegri loftslagsmengun .
Allar þessar áætlanir skortir trúverðugleika . Það
eina trúverðuga er að þær kosta skattgreiðendur
stór fé . Evrópuelítunni sárnar ef henni er líkt við
kommún ista, en hvað er við því að gera? Vaclav
Klaus, forseti Tékklands, útskýrir þetta svona:
„The topic is different, the logic is the same .“
Áætlunarbúskapur
Ein af þessum vinsælu, en
gagnslausu orðamyndum sem
sýnir áherslur þjóðfundar Dags B .
Eggertssonar árið 2009 .