Stjórnartíðindi fyrir Ísland: B-deild - 01.12.1880, Page 39
29
1880
sarakvæmt því, er nánar er tiltekið í ferðaáætlun, er þingið hafði samið, og þar að auki
er óskað eptir, að stjdrnin vilji sjá svo fyrir, að seglskip verði sent til íslands með póst
í byrjun yfirstandandi mánaðar. Eptir að hafa meðtekið þetta brjef, ritaði ráðgjafinn
fyrir ísland innanríkisstjórninni og mæltist til þess, að hún yrði við óskum alþingis.
Innanríkisstjórninni virtist samt sem áður, að sjer bæri að halda föstum tor-
merkjum þeim, er hún áður hefði talið á hinni eptirœsktu ferðaáætlun, og neitaði því að
eiga sjálf nokkurn hlut að ferðaáætlun þessari. par á móti hafði hún ekki neitt á móti
því, að ráðgjafinn fyrir ísland reyndi að semja við hið sameinaða gufuskipafjelag um, að
fjelag þetta tœki að sjor allar póstferðirnar milli Danmerkur og íslands samkvæmt ferða-
áætlun þeirri, er alþingi hafði mælt með, og hefir ráðgjafinn gjört þar eptir samning
þann við nefnt fjelag, er hjer með fylgir eptirrit eptir, um gufuskipaferðirnar millum Dan-
merkur, Færeyja og íslands frá 1. janúar 1880.
liáðgjafinn lætur ekki undan falla að senda yður til afnota á venjulegan hátt
nokkur expl. af ferðaáætlun þeirri, er samþykkt hefir verið fyrir yfirstandandi ár, og
skal þess jafnframt getið, að nokkur expl. af fargjaldsskránni fyrir farþegja og góz muni
verða send yður, herra landshöfðingi, með póstskipi því, er fer hjeðan 1. marz þ. á.
— Brjef ráðgjafans fyrir ísland til landshöfdingja um lögsókn gegn lands-
sjóði. — Með þóknanlegu brjefi yðar, herra landshöfðingi, frá 26. nóvbr. f. á. var hingað
sent bónarbrjef Lárusar Blöndals sýslumanns í Húnavatnssýslu, þar sem hann beiðist
leyfis til þess að lögsœkja landshöfðingja, fyrir hönd hins íslenzka landssjóðs í máli
því, er hann ætlar að höfða gegn landssjóðnum út af rjetti hans til að fá viðbót fyrir
sjálfan hann við laun þau, sem embættinu fylgja samkvæmt 7. gr. í lögurn frá 14. desem-
ber 1877 um laun sýslumanna og bœjarfógeta. Fyrir því skal yður til þóknanlegrar
leiðbeiningar og birtingar þjónustusamlega tjáð, að hið uinbeðna leyfi er hjer með veitt.
— Brjef ráðg'jafans fyrir ísland til landshöfðingja um mæling á Húnaflóa.
— Með þóknanlegu brjefi frá 8. október f. á., sonduð þjer, herra landshöfðingi, eptirrit
eptir 2 brjefum frá foringja herskipsins Ingólfs, Mourier skipherra, sem síðastliðið sumar
hefir eptir áskorun yðar rannsakað, hvernig ástatt væri á Ilúnaflóa, einkum að því er lýtur
að hafskipaleið til kauptúnsins Borðeyrar, og fóruð þjer fram á það, að ráðgjafinn vildi
semja svo við sjóliðsstjórnina, að gjörð yrði tilraun til að mæla upp hinn nefnda lióa, á
þann hátt, er Mourier skipherra hefir bent á, þar som slíkt verk gæti haft mikla
þýðingu fyrir siglingar hafskipa og einkum póstgufuskipaferðirnar.
Eptir að skrifað hafði verið sjóliðsstjórninni út af þessu, hefir ráðgjafinn með-
tekið brjef það frá 8. þ. m., er eptirrit fylgir eptir, og má þóknanlega sjá af því, að það
mun verða lagt fyrir herskipsforingjann í ár að mæla upp Ilúnaílóa að svo miklu leyti,
sem sjóliðsstjórnin álítur nauðsynlegt, til þess að póstgufuskipin geti komið við á Borð-
eyrar kauptúni.
— Brjef ráðgjafans fyrir Island til landshöfðingja um sálmabókarnefndina.
— Með þóknanlegu brjefi frá 11. nóvbr. f. á., liafið þjer, herra landshöfðingi, sent mjer
brjef frá biskupnum ytir íslandi, þar sem hann fer fram á, að útveguð verði staðfesting
35
15. jan.
36
15. jan,
37
15. jan1
38
15. jan.