Stjórnartíðindi fyrir Ísland: B-deild - 01.12.1880, Blaðsíða 181
171
1880
Samkvæmt því, sem þannig er tekið fram, vil jeg hjer með þjónustusamlega skora 180
á yður, herra landshöfðingi, að taka umgetin atriði með því, sem stendur í sambandi 4 des'
við þau til íhugunar og að láta ráðgjafanum í tje þóknanleg ummæli yðar um málið, svo
og ef til vill frumvarp til þeirra nýju lagaákvarðana, er ástœða gæti verið til að leggja
fyrir alþingi til þess að koma skipulagi á þetta málefni».
Jafnframt því að tjá yður þetta, herra amtmaður, til þóknanlegrar leiðbeiningar
vil jeg hjer með þjónustusamlega skora á yður að brýnu fyrir lögreglustjórum í þeim
hjeruðum umdœmis yðar, þar sem Norðmenn stunda umgetna síldarveiði að fara ná-
kvæmlega eptir fyrirmælum mfnum í brjefum frá 3. maí og 7. júní þ. á. (Stjórnartíð. B.
82 og 95) um skyldur utanríkismanna, ervilja stunda fiskiveiðar hjer við iand í landhelgi,
til að gjörast þegnar hins danska ríkis og útvega sjer lögheimili hjer á landi í raun og
veru, svo og eptir því sem segir í bijefi mínu frá 26. júlí þ. á. (Stjtíð. B. 115) um spít-
alagjald af nefndri síldarveiði. liinnig vil jeg biðja yður að útvega og senda hingað
sem fyrst nákvæma skýrslu um, hvort og hvernig Norðmenn þeir, er á yfirstandandi ári
hafa stundað síldarveiðar á fjörðum landsins hafa fullnœgt nefndum fyrirmælum.
— Brjef lanclshöfðingja til stiptsyfirvaldanna nm aldu rsleyfi við Möðru- 481
vallaskólann. — Út af brjefi stiptsyíirvaldanha frá 3. f. m. fellst jeg hjer með á, að
stiptsyfirvöldin, þegar sjerstakar ástœður mæla fram með því, samþykki undanþágur frá
fyrirmælum 3. greinar C. reglugjörðar fyrir gagnfrœðaskólann á Möðruvöllum frá 12.
júní þ. á. nm aldurstakmörk fyrir inntöku í skóla þennan.
— Brjef landsliöfðingja til bcejarfágetans í Ileyltjavík um lán til að byggja 182
barnaskóla. — í þóknanlegu brjefi frá 15. f. m. haíið þjer, herra bœjarfógeti, fyrir 7' des'
hönd bœjarstjórnarinnar farið þess ú leit, að bœjarstjórninni verði veitt 20—25000 kr.
lán af viðlagasjóði með 6% árlegri afborgun og leigu til þess næsta ár að byggja
barnaskólahús.
Sökum þessa vil jeg samkvæmt tilskipun 20 apríl 1872, 19. gr., um bœjar-
stjórn í lteykjavík hjer með veita samþykki mitt til að taka nefnt lán, og bœti jeg því
við, að lánið mun fást útborgað úr viðlagasjóöi næsta sumar, svo framarlega sem þá
verða uœg peningaráð til þess fyrir höndum.
— Brjef lnildsliöfðingja tU nmtmanmins yfir suðvr og vesturumdccminu um |$,‘i
þóknun handa þjóðjarðarlandseta. — í brjefi frá 9. þ. m. hafið þjer, herra 10-des-
umtmaður lagt það tii, að ábúanda Kirkjnbœjarklaustnrs jarðarinnar Breiðabólsstaðar
Kristófer forvarðssyni verði veitt uppgjöf á hálfrí landskuld sinni um 1 ár sem þóknun
fyrir þá endurbót, er hann hefir gjört á býli sínu með því að flytja bœinn úr votlendri
lægð upp á hæzta túnið, og getið þjer þess, að þessi þóknun muni eptir núgildandi
verðlagsskra nema 14 kr. 65 a.
Samkvæmt því, sem þjer þannig hafið tekið fram, fellst jeg eptir atvikum á, að
beiðandinn fái uppgjöf þá, er hann hefir sótt um.