Orð og tunga - 01.06.1998, Blaðsíða 59
Dóra Hafsteinsdóttir: Fagorðaforðinn
47
Islensk orðabók
ÍO er eina íslenska almenna einmála orðabókin. Hún er um 85 þús. flettiorð eða um 20
þús. flettiorðum minni en fyrirhuguð íslensk orðabók. Fagorðaforði er í bókinni en val
hans tilviljanakennt, eins og ritstjórinn tiltekur í formála; þar segir:
í fyrri útgáfu var misræmi milli fræðiorða úr einstökum greinum. Sumir
aðstoðarmenn höfðu reynst þar afkastameiri en aðrir og á ýmsum sviðum
engir fengist. Ekki þótti okkur ástæða til að draga úr slíku orðafari og mun
því enn nokkurt misræmi milli fræði- og starfsgreina. Þannig eru ýmsu úr
verkfræði og handiðnaði lítileða engin skil gerð, enda fæst skráð í tiltækar
bækur(Árni Böðvarsson: 1983:VIII).
Orðið bróm er flettiorð í ÍO og þar er skýringin: „frumefni, tákn Br. rauðbrúnn, þefillur
vökvi“. Þarna fá menn að vita hvað orðið bróm merkir og knappa skýringu á hvað bróm
er. Skýringin er alfræðileg, samkvæmt lýsingu Svenséns, og miðað við það er hægt að
flokka 10 sem alræna orðabók.
Collins English Dictionary
CED er svipuð að stærð og fyrirhuguð íslensk bók og liðlega helmingi stærri en danska
bókin, eða um 110 þús. flettiorð. í CED er yfirgripsmikill fagorðaforði. í formála hennar
segir, í lauslegri þýðingu:
Þegar velja á hvað taka skuli með í orðabókina hefur leiðarljós ritstjóranna
alltaf verið hvort líklegt sé að almennur lesandi rekist á orðið og vilji
fletta því upp. En með tilliti til þess hve hinn svonefndi almenni lesandi í
nútímaþjóðfélagi er vel að sér, og að sífellt flæða yfir nýjar upplýsingar og
þar af leiðandi nýr fagorðaforði á ótal sviðum, þá er málið ekki eins einfalt
og ætla mætti við fyrstu sýn (1991:vii).
í CED er bróm flettiorð. Þar er greint frá sætistölu, atómmassa, efnatákni, eðlismassa,
bræðslumarki og suðumarki frumefnisins og síðan er sagt frá helstu einkennum og
efnasamböndum þess. Ritstjórnin gerir ráð fyrir að almennur lesandi láti sér til hugar
koma að fletta upp orðinu bróm, bæði til að vita hvað það merkir og til að vita hvað
bróm er. Upplýsingarnar sem hann fær eru í samræmi við það. Skýringin er alfræði-
leg samkvæmt skilgreiningu Svenséns. Ritstjórar bókarinnar taka fram að í henni sé
yfirgripsmikill fagorðaforði. Það er ótvírætt að CED er alræn orðabók.
Islenska alfræðiorðabókin
ÍA er eina íslenska alfræðiorðabókin. Hún er 35 þús. flettiorð, um þriðjunguraf stærð
fyrirhugaðrar íslenskrar orðabókar. I formála ÍA segir: