Orð og tunga - 01.06.2005, Page 37
Jón Hilmar Jónsson: Aðgangur og efnisskipan í ísl.-erl. orðabókum 35
Með því að skilyrða hugtaksbundna leit við málfræðilega þætti má
draga fram sambönd af tiltekinni setningargerð. Leit að ópersónuleg-
um samböndum undir hugtaksheibnu árangur leiðir m.a. í ljós eftir-
talin sambönd:
<honum, henni> tekst/tókst <þetta> (<vel>)
<honum, henni> tekst/tókst ætlunarverkið
<honum, henni> heppnast/heppnaðist <þetta> (<ágætlega>)
<honum, henni> lukkast/lukkaðist <þetta> (<að lokum>)
<honum, henni> verður/varð að ósk sinni
Tegundarflokkun orðasambandanna gefur einnig færi á sérhæfðri leit.
Undir hugtaksheitinu árangur koma m.a. fram eftirtalin orðtök:
dæmið gengur/ gekk upp
halda í horfinu
klífa þrítugan hamarinn
sigla heilu skipi í höfn
vera kominn yfir erfiðasta hjallann
<starfið> ber/hefur borið ávöxt
Hér eru leitarskilyrðin þrengd en gera má ráð fyrir að erlendir not-
endur hafi ekki síður þörf fyrir að víkka það svið sem hugtaksheit-
ið afmarkar, ekki síst í ljósi þess að þeir geta átt erfitt með að rata á
viðeigandi heiti í upphafi leitar. Við þær aðstæður geta notendur að-
gætt hvemig vísað er frá hugtakinu til skyldra hugtakaheita og eftir
atvikum svipast um í lýsingu þeirra. Frá hugtakinu árangur er t.d.
vísað til 18 skyldra hugtakaheita, m.a. heitanna framvinda, velgengni,
HAPP/HEPPNI, FENGSÆLD, BATNAÐUR, UMBÆTUR/ÚRBÆTUR, FRAMFÖR Og NIÐ-
URSTAÐA.
í Orðaheimi er lögð sérstök áhersla á að koma til móts við þarfir
erlendra notenda að þessu leyti með því að birta sjálfstæða skrá með
enskum jafnheitum við íslensku hugtakaheitin, svo að þeir eigi þess
kost að hefja leitina út frá kunnuglegra máli en íslensku.
2.4 í átt til erlend-íslenskrar orðabókar?
Þær leitaraðgerðir sem hér hefur verið lýst miðast við það að erlend-
um notendum sem vilja fá innsýn í íslenskan orðaforða og auka vald