Orð og tunga - 01.06.2005, Blaðsíða 66

Orð og tunga - 01.06.2005, Blaðsíða 66
64 Orð og tunga Indíalanda frá 1492 til 1493, en þar er að finna orð eins og til dæmis canoa, hamaca, cacique, cazabi, caribe/caníbal.* * 7 Förin vestur um haf hófst þann 6. september 14928, og rúmlega mánuði síðar, föstudaginn 12. október, náðu Kólumbus og menn hans landi á vesturströnd Guanahaníeyju.9 í dagbók sinni lýsir Kólumbus samskiptum aðkomumanna og heimamanna, sem voru Taínóar af stofni Aravak-indíána, umhverfinu sem og nýjum hlutum; þann 13. október skrifar hann: [Indíánar] reru út til skipanna á eikjum10 sem eru gerðar af trjábolum og af einu tré aðeins, frábærlega tilhöggnu að hætti heimamanna. Nokkrir bátanna eru svo stórir að 40 til 45 menn rúmuðust í sumum þeirra, en aðrir eru minni, svo litlir reyndar að þeir báru aðeins einn mann. Bátum þessum róa þeir með einskonar bakaraspaða og ná miklu skriði, en hvolfi bátnum synda þeir allir á aðra hlið hans og velta á réttan kjöl og ausa síðan með graskerskálum sem þeir hafa meðferðis (Kólumbus 1992:31). Það líða hinsvegar nokkrir dagar þar til hann skrifar hjá sér og not- ar heiti þessa farartækis frumbyggja. Hann er þá kominn til Kúbu og indíánar sem hann hafði með í för frá Guanahaní útskýra fyrir honum með látbragði að „þama væru tíu stórfljót og ekki gætu þeir siglt um- hverfis eyna á 20 dögum á kanóum sínum" (1992:47) og stuttu seinna segir að „þegar hann hélt til lands á skipsbátunum komu tvær eikj- ur eða kanóar frá landi" (s.st.). Frá 7. desember notar aðmírállinn al- mennt orð innfæddra, canoa,u fyrir eikju í dagbók sinni (sjá López Morales 1998:12). Ekki leið á löngu þar til orðið canoa hafði öðlast ungshjónunum með lýsingu á fjórðu og síðustu ferð sinni hefur einnig varðveist og er nú í eigu Háskólabókasafnsins í Salamanca (Colón 1996:9—42). 7'Kanó', 'hengirúm', 'höfðingi', 'kassavajurt', 'mannæta'. sKólumbus hélt í fyrstu til Kanaríeyja, en leiðangurinn vestur um haf hófst þann 6. september. 9Þetta mun hafa verið ein af Bahamaeyjunum. Fræðimenn greinir hinsvegar á um hvaða eyju sé nákvæmlega um að ræða. Kólumbus nefndi eyjuna San Salvador. 10Kólumbus notar hér orðið almadía 'fleki'. Orðið er upprunalega úr arabísku (Corominas og Pascual 1991:182). nFriederici (1960:127) telur að orðið sé tökuorð í aravakmáli Antillueyja og að það eigi rætur að rekja til karíbamáls. Rökin eru að orðið fyrirfannst ekki í aravakmállýsk- um meginlands Rómönsku-Ameríku.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144

x

Orð og tunga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Orð og tunga
https://timarit.is/publication/1210

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.