Skagfirðingabók - 01.01.2010, Side 175
175
SKÍN VIÐ SÓLU SKAGAFJÖRÐUR
Þetta er upphaf:
Thou mighty eternal spirit,
which all space and being transcends,
thine is the majesty
thine is the power
to thee all glory ascends.
Hér er um að ræða eiginhandarrit tón
skáldsins, sem varðveitt er í Bókhlöðu
Bandaríkjaþings í Washington. Hand
ritið er 15 blaðsíður í hálfarkarbroti.
Er nafn og heimilisfang Sigurðar efst á
forsíðu: „Helgi S. Helgason, 3750
Oak Hill ave. Los Angeles. – Californ
ia“. Trúlega hefur lagið ekki verið
gefið út.78
Árið 1947 lá leið Sigurðar Helgasonar
og Hildar til Íslands. Látið er að því
liggja, að hann hafi komið í boði
þjóðarinnar, þar eð eitt laga hans hafi
verið valið sem þjóðsöngur og stjórn
völd vildu heiðra hann fyrir! Einnig
segir í blaðinu, að hljómleikar hafi
verið haldnir í minningu tónskáldsins
föður Sigurðar um sumarið og hafi
hann stjórnað þeim. (Úrklippa úr
banda rísku blaði, eins konar
dánarminn ing, sem höfundur kann
ekki frekari skil á.) Hér er sitthvað
málum blandið.
Þau hjón dvöldust hérlendis í nokkr
ar vikur, fóru m.a. norður í land og
gistu Skagafjörð. En ekki má af heim
ildum marka, að þau hafi ferðast í boði
Skagfirðinga. En nokkrum árum áður
en þetta var sendi Kaupfélag Skag
firðinga Sigurði peningagjöf í viður
kenningar og þakklætisskyni fyrir
hið gullfallega lag hans „Skín við sólu
Skagafjörður“…79
Hinn 18. september 1947 var auka
fundur sýslunefndar Skagfirðinga
hald inn á Sauðárkróki. Í fundarlok var
bókað:
Oddviti skýrði sýslunefndinni frá því,
að 19. júlí sl. hefði hann fengið vitn
eskju um, að hr. tónskáld Sigurður
Helgason frá Vesturheimi myndi þá
fara um Skagafjörð og koma við á
Sauðárkróki. Leiddi þetta til þess, að
oddviti bauð tónskáldinu, sem er höf
undur sönglagsins „Skín við sólu
Skaga fjörður“, til miðdegisverðar,
ásamt konu hans og tveim frændum
og forseta bæjarstjórnarinnar á Sauð
árkróki.
Við þetta tækifæri afhenti Sigurður
Helgason oddvita eiginhandarafrit
sitt af ofangreindu sönglagi, sem er
gjöf til Skagfirðinga, og með kveðju
til sýslunefndar og bæjarstjórnar
Sauð árkróks. Verður handrit þetta
varð veitt í Héraðsskjalasafni Skaga
fjarðarsýslu.80
Fleiri urðu til að heiðra þau hjón. Á
síðustu árum var Sigurður titlaður
pró fessor. Trúlega má rekja þá nafnbót
til íslenzku landsstjórnarinnar, en
hvort hún tengist heimkomu hans árið
1947 eða fremur áttræðisafmæli,
1952, skal ósagt látið.
Minningar um Íslandsferðina urðu
þeim hjónum sífrjór gleðigjafi. Hildur
minntist Skagafjarðar í bréfi: „How
Siggi and I loved that scenery!“81
Næstu árin unnu þau að söngmálum
af sama kappi og fyrr. Sigurður bar
ell ina vel. Á áttræðisafmæli hans 12.
febrúar 1952 var honum haldið veg
legt samsæti í Blaine og þess minnzt,