Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.1998, Síða 5
Sumarið '98 verður mörgum hjúkr-
unarfræðingum sunnanlands minnis-
stætt. Ekki fyrst og fremst fyrir fá-
dæma veðurblíðu heldur mun fremur
stormasama baráttu hjúkrunarfræð-
inga á stóru sjúkrahúsunum og nokkr-
um heilsugæslustöðvum í Reykjavík
fyrir bættum kjörum. Þeirri orrahríð
lauk með verulegum kjarabótum þeim
til handa þótt ekki væru allir sáttir.
Kjaradeilan í sumar var að mörgu
leyti einstök. Hjúkrunarfræðingar
stóðu betur saman en nokkru sinni
fyrr. Þeir náðu að kynna málstað sinn
á málefnalegan máta, og það skilaði
sér m.a. í meðbyr og stuðningi frá
samfélaginu og jákvæðri umfjöllun
fjölmiðla um mikilvægi hjúkrunar í
heilbrigðisþjónustunni.
Samstaða stéttarinnar byggðist
ekki eingöngu á einarðri réttlætiskröfu
um hækkun launa heldur einnig þeirri
víðtæku skynjun hjúkrunarfræðinga
að vegið væri að sjálfsvirðingu stéttar-
innar með því að skilgreina almenn
störf þeirra í A-ramma í nýju iaunakerfi.
Með stuðningi frá samfélaginu
fengu kröfur hjúkrunarfræðinga byr
undir báða vængi. Væntingar um
25% launahækkun, sem margir
hjúkrunarfræðingar byggðu ákvörðun
sína um uppsögn á, jukust eftir því
sem nær dró 1. júlí. Hjúkrunarfræð-
ingar trúðu því að með samstöðu
stéttarinnar og áframhaldandi stuðn-
ingi almennings fengist launahækkun
sem næmi mörgum tugum prósenta.
Ýmsir hjúkrunarfræðingar voru
ósáttir við að félag þeirra skyldi verða
við beiðni stjórnvalda um að Ijúka
gerð aðlögunarnefndarsamnings
nokkrum klukkustundum áður en
uppsagnarfrestur rann út. Ákvörðunin
byggðist á mati stjórnar félagsins,
trúnaðarmanna og viðræðunefnda
hjúkrunarfræðinga á þessum
stofnunum um að frekari ávinningur
fengist ekki með því að ganga út.
Það er staðreynd að hjúkrunarfræð-
ingar hafa með baráttu sinni náð veru-
legum kjarabótum. Samningsbundnar
launahækkanir skv. kjarasamningi
félagsins frá júní 1997, auk launa-
hækkana í kjölfar uppsagna hjúkrunar-
fræðinga, færa þeim u.þ.b. 35-40%
hækkun launa á samningstímabilinu
sem er frá maí 1997 til október árið
2000. Laun gætu þar að auki hækk-
að meira vegna nýs framgangskerfis
sem tekur gildi á næsta ári. Hjúkrunar-
fræðingar mega því vel við una miðað
við aðstæður.
Þrátt fyrir verulegar launahækkanir
eru sumir hjúkrunarfræðingar ósáttir
við sinn hlut. Sérstaklega á það við
um þá hjúkrunarfræðinga sem enn
eru í A-ramma í nýju launakerfi. Því
miður tóku margir hjúkrunarfræðingar
ákvörðun um að hverfa frá störfum
vegna þess.
Kjarabarátta tekur aldrei enda.
Stöðugt er stefnt fram á við. Hjúkr-
unarfræðingar tóku stórt skref í sumar
og sýndu hvers þeir eru megnugir
þegar þeir standa saman. Sú þekk-
ing, sem hjúkrunarfræðingar öðluðust
á kjaramálum sínum, mun nýtast
þeim um langan tíma. Þeir eru farnir
að feta sig á þeirri braut að verðleggja
störf sín og gera kröfur um laun sem
eru í samræmi við menntun þeirra,
sérhæfni og ábyrgð. Hjúkrunarfræð-
ingar eru á réttri leið og geta horft
bjartsýnir fram á veginn.
Zofran
Glaxo Wellcome
STUNGULYF iv;
1 ml inniheldur: Ondansetronum INN, klónð, díhýdrat, 2,5
mg, samsvarandi Ondansetronum INN 2 mg, Acidum citri-
cum mónóhýdrat, 0,5 mg, Natrii citras 0,25 mg, Natrii
chloridum 9 mg, Aqua ad iniectabilia q.s. ad 1 ml.
TÖFLUR: Hver tafla inniheldur: Ondansetronum INN,
klórið, díhýdrat, 5 mg eða 10 mg, samsvarandi Ondanse-
tronum INN 4 mg eða 8 mg.
Eiginleikar: Ondansetrón er sértækur, mjög virkur 5-HT3
viðtækja-blokkari. Verkunarmáti lyfsins er annars ekki vel
þekktur, en það virðist hindra losun á 5-HT (serótónín), bæði í
miðtaugakerfi og útlægum taugum. Lyfið hefur enga slæv-
andi verkun. Frásog frá meltingarvegi er um 60%; helm-
ingunartími er u.þ.b. 3 klst. Lyfið er umbrotið að mestu í lifur.
Niðurbrotsefni útskiljast bæði í saur og þvagi.
Abendingar: Til að fyrirbyggja og til meðferðar á ógleði og
uppköstum af völdum krabbameinslyíja eða geislameðferðar.
Til vamar ógleði og uppköstum eftir skurðaðgerðir.
Frábendingar: Ofnæmi fyrir lyfinu. Ondansetrón veldur
ekki fósturskemmdum í dýrum, en engin reynsla er af notkun
Iyfsins hjá bamshafandi konum. Því á ekki að nota lyfið á
meðgöngu, sérstaklega ekki á fyrstu 3 mánuðunum, nema
brýna nauðsyn beri til. Lyfið hefur fundist í mjólk í rottum. Er
því mælt með því, að mjólkandi konur gefi bömum ekki
brjóst meðan á lyfjameðferð stendur.
Aukaverkanir: Aukaverkanir eru sjaldséðar. Höfuðverkur,
hitatilfinning í höfði og hægðatregða koma fyrir auk of-
næmisviðrigða, sem geta verið alvarleg. Tímabundin hækkun
lifrarenzýma hefur sést. Tímabundnar sjónUuflanir eftir hraða
inngjöf í æð.
Athugið: Stungulyfmu má blanda í allar algengar, tærar inn-
rennslislausnir og skal lausnin varin Ijósi.
Skammtastærðir handa fullorðnum: Við mikla hœttu á
ógleði, t.d. við cisplatíngjöf: 8 mg gefín hægt (15 mín.) í æð
rétt fyrir krabbameinslyfjagjöf: síðan 1 mg/klst. í sídreypi í
allt að 24 klst. eða 8 mg á 4 klst. fresti tvívegis í 15 mínútna
dreypi. Einnig má gefa einn skammt, 32 mg, þynnt í 50-100
ml af ísótónísku saltvatni og gefíð á 15 mínútum rétt fyrir
krabbameinslyfjagjöf. Eftir það 8 mg til inntöku tvisvar
sinnum á dag í allt að 5 daga. Við minni hœttu á ógleði, t.d.
við cýklófosfamíð- eða doxórúbicíngjöf: Eins og áður fyrir
lyfjagjöf, síðan 8 mg til inntöku tvisvar sinnum á dag í allt að
5 daga. Við geislameðferð: 8 mg til inntöku tvisvar sinnum á
dag. Fysta skammt skal gefa 1-2 klst. fyrir fystu geisla-
meðferðarinnar. Verkun lyfsins eykst, ef sterar eru gefnir sam-
tímis, t.d. dexametasón 20 mg í æð rétt fyrir krabbameins-
lyQagjöf. Niðurbrot lyfsins minnkar talsvert við lifrarbilun og
hjá slflkum sjúklingum á heildardagsskammtur ekki að fara
yfir 8 mg. Skert nýmastarfsemi hefur hins vegar engin áhrif á
útskilnað lyfsins. 77/ vamar ógleði og uppköstum eftir skurð-
aðgerðir: 8 mg til inntöku 1 klst. fyrir svæfingu og síðan tvis-
var sinnum á 8 klst. fresti eða 4 mg með hægri inngjöf í æð
við upphaf svæfíngar. Engin reynsla er af notkun lyfsins hjá
bömum við þessari ábendingu og takmörkuð reynsla við
notkun hjá öldruðum.
Skammtastærðir handa bömum: Reynsla af lyfínu er lítil
hjá bömum, en virðist gefa góða ráun hjá bömum yfír 4 ára
aldri. 5 mg/nv líkamsyfirborðs gefíð í 15 mínútna dreypi rétt
fyrir krabbameinslyljagjöf, síðan 4 mg til inntöku tvisvar
sinnum á dag í allt að 5 daga.
Pakkningar og verð:
Stungulyf 2 mg/ml: plastlykja 2 ml x 5 - 6.262 kr.;
plastlykja 4 ml x 5 - 9.375 kr.
Töflur 4 mg: 100 stk. - 69.800 kr.
Töflur 8 mg: 15 stk. (þynnupakkað) - 16.540 kr.; -
100 stk. 99.691 kr.
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 4. tbl. 74. árg. 1998
197
Ljósm.: Lára Long