Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.1998, Side 20
Ýmist er verið að athuga tilkomu/nýgengi eða tíðni/
algengi þessara atriða. Gæðavísar eru mikilvægur þáttur
innan RAI-mælitækisins og gefa starfsfólki tækifæri til að
sjá á hvaða sviðum vel er unnið og hvar betur má gera.
Gæðavísar eru kjörviðmið þegar aðferðafræði gæðastjórn-
unar er notuð við að setja upp umbótaverkefni og þegar
mæla á árangur af þjónustu. Sömuleiðis eru gæðavísarnir
mikilvægur þáttur í þjónustusamningum við stofnanir þar
sem nota má þá sem mælikvarða á þá þjónustu sem verið
er að kaupa af stofnunum.
Tölvuskráning
Alfred Styrkársson, kerfisfræðingur, og greinarhöfundar
hafa samið tölvuforrit sem ætlað er til notkunar á öldrunar-
stofnunum við skráningu matsupplýsinga. Notkun þess
auðveldar alla skráningu og styttir tíma sem fer í endur-
mat.
Tölvuforritið RAI 2,0, sem skrifað er í „Visual Basic“
gagnagrunni, gerir kleift að tengja gagnasafnið við önnur
stærri kerfi sem notuð eru við skráningu upplýsinga fyrir
hjúkrun, hjúkrunarferli og framvindu sem og önnur kerfi
eins og legudeildarkerfi stofnana. Slík tenging er fram-
tíðarverkefni og getur stuðlað að tölvuvæðingu sjúkraskráa
á öldrunarstofnunum. Tenging og flutningur gagna úr for-
ritinu yfir í algengustu ritvinnslu-, töflureiknis- og tölfræði-
forrit, s.s. Word, Exel og SPSS, eru auðveld og það eykur
möguleika á nánari úrvinnslu gagna bæði fyrir stofnanir og
ráðuneyti.
Matslyklar
Matslyklar eða RAP (Resident Assessment Protocols) er
enn annar hluti RAI-mælitækisins. Með matslyklunum eru
teknir fyrir algengustu heilsufarsþættir sem fengist er við á
öldrunarstofnunum (sjá töflu 4).
Tafla 4. Matslyklar fyrir heilsufarsþætti íbúa öldrunarstofana
Bráðarugl Félagsstarf-virkni
Skerðing á vitrænni getu Byltur
Skynjun Næring
Tjáning Sondugjöf
ADL-færni og endurhæfingar- möguleikar Vökvaþurrð
Þvagleki Tannumhirða
Andleg og félagsleg velferð Þrýstingssár
Hugarástand Geðlyfjameðferð
Hegðunan/andi Notkun öryggisbúnaðar/fjötra
Matslyklarnir eru hjálpartæki fyrir þverfaglegan hóp
heilbrigðisstarfsmanna er nýta sér mælitækið. í mats-
lyklunum er viðfangsefnið skilgreint, helstu áhættuþættir
þess og þau atriði innan gagnasafnsins sem benda til
þess að íbúinn eigi við viðkomandi vandamál að stríða eða
hvort hann er í áhættuhópi. Ef matslyklar eru tengdir við
RAI- tölvukerfi getur tölvan gefið til kynna hvaða vandamál
eru til staðar og þá áhættuhópa sem íbúinn er líklegur til
að vera í. Eins og er verður að gera þetta handvirkt.
Þessar vísbendingar eru ætlaðar sem stuðningur við
faglega vinnu en koma ekki í staðinn fyrir hana. í
matslyklunum er bent á hvaða viðbótarupplýsingasöfnun
sé nauðsynleg í tengslum við hvert viðfangsefni og bent á
hugsanlega meðferð.
Niðurlag
RAI-mælitækið er viðamikið og margþætt eins og að
framan greinir og gefur marga möguleika til rannsókna.
Fyrir atbeina heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytisins,
öldrunarsviðs Sjúkrahúss Reykjavíkur og öldrunarþjón-
ustudeildar Félagsmálastofnunar Reykjavíkurborgar hafa
höfundar unnið með mælitækið síðastliðin 5 ár í náinni
samvinnu við hjúkrunarfræðinga og forsvarsmenn öldrunar-
stofnana á íslandi. Notagildi er ótvírætt og bætir árangur
umönnunar, vellíðan og ánægju íbúa og aðstandenda
þeirra sem og kostnaðarvitund heilbrigðisstétta, yfirvalda
og almennings. Margvísleg umbótaverkefni hafa fæðst á
hinum ýmsu öldrunarstofnunum í kjölfar RAI-mælinga sem
komið hafa skjólstæðingum nú þegar að gagni og verður
gerð grein fyrir þeim síðar. Loks má geta þess að for-
rannsókn á notkun hliðstæðs mælitækis fyrir aldraða, er
njóta heimahjúkrunar á fjórum heilsugæslustöðvum í
Reykjavík og fá þjónustu dagspítala Sjúkrahúss Reykja-
víkur, Landakoti, er nýlokið. Niðurstöður úr þeirri rannsókn
voru kynntar á ráðstefnu í maí 1998.
Heimildir:
na Birna Jensdóttir, Hlíf Guðmundsdóttir, Hrafn Pálsson, Ingibjörg
Hjaltadóttir, Pálmi V. Jónsson, Ómar Harðarson, Sigurbjörg Sigur-
geirsdóttir. (1995). Daglegt líf á hjúkrunarheimili. Heilsufar- og hjúkrunar-
þörf íbúa á öldrunarstofnunum. Reykjavík: Heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytið, rit 2. ISBN 9979-872-00-4.
Pálmi V. Jónsson, Anna Birna Jensdóttir, Hlíf Guðmundsdóttir, Hrafn
Pálsson, Ingibjörg Hjaltadóttir, Ómar Harðarson, Sigurbjörg Sigur-
geirsdóttir. (1997). Mat á heilsufari og hjúkrunarþörf á elli- og hjúkrunar-
heimilum. RAI mælitækið, þróun þess og sýnishorn af íslenskum niður-
stöðum. Læknablaðið, 83, 640-644.
Karon, S.L., og Zimmerman, D.R. (1996). Using Indicators to structure
Quality Improvement Initiatives in Long-Term Care. Quality Manage-
ment in Health Care, 4(3), 54-66.
Morris, J.N., Hawes C., Fries, B.E., Phillips, C.D., Mor, V., Katz, S.
(1990). Designing the national resident assessment instrument for
nursing homes. The Gerontologist, 30, 293-307.
Morris, J.N., Murphy, K., Nonemaker, S. (1997). Leiðbeiningar fyrir
gagnasafn um heilsufar og hjúkrunarþörf íþúa á öldrunarstofnunum.
íslensk þýðing og staðfæring: Anna Birna Jensdóttir, Hlíf Guð-
mundsdóttir, Ingibjörg Hjaltadóttir. Reykjavík: Heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytið, 2. útgáfa, apríl.
Zimmerman (1994). Quality Indicators. Center for Health Systems
Research & Analysis. University of Wisconsin - Madison, júlí 1994.
212
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 4. tbl. 74. árg. 1998