Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.1998, Blaðsíða 30
þátttöku allra starfsstétta, einnig ófagiærðra starfsmanna.
Hún segir: „Mér finnst mikilvægt að allir skilji um hvað
verkefnið snýst. Við byrjuðum á námskeiðum fyrir ófag-
lærða starfsmenn og síðan sjúkraliða. Þeir eru oft í mjög
nánum tengslum við fólkið sem býr á heimilunum og finnst
oft að ekki sé á þá hlustað þegar þeir rekast á eitthvað
sem gengur ekki nógu vel. Það er mjög mikilvægt að fá þá
til samstarfs og að hlusta á hvað þeir hafa fram að færa.
Þeir geta bent á algjör grundvallaratriði sem eru forsenda
þess að hægt sé að lagfæra þjónustuna. Þessir starfs-
menn hafa fagnað verkefninu og finnst það gera starf sitt
innihaldsríkara. Ég veit að stéttarfélög hjúkrunarfræðinga
og sjúkraliða hafa átt í útistöðum og það getur verið að
sem háskólakennari sé ég þannig sett að ég skilji ekki um
hvað deilurnar snúast. En mér finnst að ósætti þeirra megi
ekki koma niður á þjónustunni sem þessar stéttir eiga að
veita.“
Marit reiknar með að reynsla verði komin á verkefnið
eftir fjögur ár en hugsanlegt er að hún heimsæki ísland
aftur fyrr en varir og geti þá leyft íslenskum hjúkrunarfræð-
ingum að fylgjast með hvernig henni gengur að hagnýta
hjúkrunarrannsóknir í framtíðinni.
BAND'AID
BRAND ADHESIVE BANDAGES
Antiseptic
u/nshoroof
Ný lína, fjórar mismunandi tegundir
Eyrnahlífar
Notendurýmiss konar
hlífðarhjálma, t.d. hjól-
reiðahjálma, reiðhjálma
og skíðahjálma, vita að
slík höfuðföt veita ekki
gott skjól gegn veðri og
vindum þó þau verndi
höfuðið gegn höggi.
Þeir vita líka að ef
hjálmarnir eru notaðir
utan yfir húfur þá er
hætta á að þeir skekkist svo að þeir komi ekki að
gagni í slysi. Nú hefur Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir,
hjúkrunarfræðingur, séð við þessu vandamáli. Hún
framleiðir sérhannaðar eyrnahlífar úrflísefni til að
festa á böndin á hjálminum. Hlífarnar verja eyrun
fyrir kulda og trekki þannig að hjálmurinn situr réttur
og gegnir öryggishlutverki sínu eins og best verður á
kosið. Eyrnahlífarnar fást í reiðhjólaverslunum víða
um land og í sérverslunum fyrir hestamenn.
Guðrún Jóna Guðlaugsdóttir, hjúkrunarfræðingur,
veitir upplýsingar um eyrnahlífarnar í síma 554 5765.
Námskeið fyrir
leiðbeinendur
Sálræn skyndihjálp
Námskeiðið veróur haldið 4.-8. nóvember. Þaó er 50 klukku-
stundir og byggist á fyrirlestrum, hópvinnu, umræðum og
kennsluæfingum. Það er eingöngu ætlað fagfólki, þ.e.
sálfræðingum, læknum, hjúkrunarfræóingum, prestum o.s.frv.
Stjórnendur:
Kolbrún Þórðardóttir, hjúkrunarfræðingur og kennari
Sæunn Kjartansdóttir, hjúkrunarfræðingur og sálgreinir
ISkyndihjáLp
Námskeiðið verður haldið 4.-14. febrúar 1999 og er ætlað
fólki úr heilbrigðisstétt og félögum í björgunarsveitum.
Námskeiðinu Lýkur meó prófi og að þvi Loknu öðtast þátt-
takendur leiðbeinendaréttindi í skyndihjálp.
Nánari upplýsingar um námskeiðin eru
veittar á skrifstofu Rauða kross íslands
í síma 570 4000 virka daga kl. 8.30-16.30.
RAUÐI KROSS ÍSLANDS
www. redcross.is
222
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 4. tbl. 74. árg. 1998