Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.1998, Page 33
WENR í Helsinki
/ júlf síðastliðnum var haldin ráðstefna á vegum
WENR „Workgroup of European Nurse
Researchers“ í Helsinki. Ráðstefnuna sóttu um
600 hjúkrunarfræðingar frá 26 þjóðlöndum í
Evrópu og utan. Ráðstefnan var á allan hátt
mjög vönduð og fyrirlestrar áhugaverðir og
fræðilega vel unnir.
Óvenjumargir aðalfyrirlesarar voru á ráðstefnunni og voru
þeir með fyrirlestra bæði fyrir og eftir hádegi þá þrjá daga
sem hún stóð. Auk þess voru þrír fyrirlestrar á tilkomumik-
illi opnunarhátíð. Meðal aðalfyrirlesara má nefna Marianne
Arndt, frá Háskólanum í Sterling í Bretlandi, sem haldið
hefur fyrirlestra á ráðstefnum hér á íslandi. Aðrir aðalfyrir-
lesarar voru Ada Sue Hinshaw frá Háskólanum í Michigan,
Miriam J. Hirschfeld frá Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni í
Genf, Alison Kitson frá Royal College of Nursing í London,
Hanneke van Maanen frá Háskólanum í Bremen í Þýska-
landi og Afaf Meleis frá Háskólanum í Kaliforníu í Banda-
ríkjunum. Tveir aðalfyrirlesarar voru frá Finnlandi en það
voru Marianne Tallberg og Katri Vehviláinen-Julkunen frá
Háskólanum í Kuopio. Þessir frábæru fyrirlesarar fjölluðu
um kenningar í hjúkrun, þekkingarþróun í hjúkrun og
hvernig tengja má rannsóknir og niðurstöður þeirra við
hjúkrun sjúklinga. Síðast en ekki síst má nefna Carol Helm-
stadter frá Hjúkrunarfélaginu í Ontario í Kanada. Hún hélt
afar skemmtilegan fyrirlestur við opnunarhátíðina þar sem
hún rakti þróun hjúkrunar í tvær aldir. í fyrirlestrinum greindi
hún meðal annars frá aðferðum sem hjúkrunarfræðingar
notuðu á 19. öld við meðferð sjúklinga sinna. Notaðar voru
blóðtökur, blóðsugur, loftæmd glerglös á húð og sinneps-
bakstar sem framkölluðu brunasár á húð sjúklinganna. Var
ekki laust við að hrollur færi um viðstadda við lýsingarnar
enda Ijóst að aðferðirnar hafa ekki verið þægilegar fyrir
sjúklingana. Á milli þess sem aðalfyrirlestrar voru fluttir
voru rannsóknarverkefni kynnt með fyrirlestrum í sex söl-
um og með veggspjöldum í stórum sal.
Mjög áhugaverðar pallborðsumræður fóru fram einn
daginn þar sem ritstjórar fagtímarita og rannsakendur leiddu
saman hesta sína. Ritstjórarnir, sem voru á pallborði, voru
Veronica Bishop frá NT Research, Steve Black frá Nurse
Researcher og Nancy Vatre frá Nursing Review. Rannsak-
endur sem voru á pallborði voru: Helena Leino-Kilpi frá
Háskólanum í Turku, Alison Tierney frá Háskólanum í Edin-
borg og William Holzener frá Háskólanum í Kaliforníu. Auk
þess að vera rannsakandi sagði William Holzener einnig
frá reynslu sinni af því að vera ritrýnir fyrir fagtímarit. Meðal
áheyrenda voru einnig fleiri ritstjórar. Miklar og góðar um-
ræður spunnust á milli pallborðs og áheyrenda. Rætt var
um vanda þeirra er ekki hafa ensku að móðurmáli, bæði
hvað varðar þýðingar og þörf fyrir birtingu rannsóknar-
greina í fagtímaritum í heimalandi viðkomandi rannsak-
anda. Fram kom vilji hjá ritstjórum til að birta aftur greinar
sem áður hefður verið birtar í tímaritum á öðrum tungu-
málum. í þeim tilfellum yrði tekið fram að greinin hefði verið
eða yrði birt í öðru tímariti. Einnig komu fram ráðleggingar
frá ritstjórum um að láta minnst þrjá aðila lesa greinar yfir
m.t.t. málfars og innihalds áður en þær eru sendar til
tímarits. Ritstjórar lýstu sig síðan tilbúna til að vera hjálp-
legir við minniháttar málfarsleiðréttingar.
Miklar umræður urðu um ritrýni, hversu langan tíma
það tæki að fá greinar birtar og kom sú skoðun fram að
höfundar ættu að setja tímamörk á tímaritin. Hefði tímaritið
ekki gefið svar um hvort það ætlaði að birta greinina eftir
tvo mánuði, eða tæki lengri tíma en sex mánuði í ritrýni, þá
ætti höfundur að draga greinina til baka og birta í öðru
tímariti. Einnig komu fram varnaðarorð frá rannsakendum
um að ekki væri ráðlegt að birta heilu mælitækin í tíma-
ritsgrein því að þá myndi tímaritið öðlast birtingarrétt
„copyright“ á mælitækinu.
WENR ráðstefnan að þessu sinni var afar áhugaverð
og segja þeir er til þekkja það bera vott um miklar framfarir
frá því fyrir 10 árum. Næsta ráðstefna verður haldin í
Reykjavík 25. - 27. maí árið 2000. Umgjörð hennar verður
sérstök því sama ár verður Reykjavík ein af menningar-
borgum Evrópu og haldið verður upp á 1000 ára afmæli
kristni á íslandi.
Ingibjörg Hjaltadóttir
WENR á íslandi
25. - 27. maí 2000
10. ráðstefna starfshóps
hjúkrunarrannsakenda í Evrópu
Efni ráðstefnunnar er:
Verkefni hjúkrunarfræðinga á 21. öld:
Heilsuefling, fyrirbygging, afskipti
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 4. tbl. 74. árg. 1998
225