Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.1998, Page 41
Jto'fMH-A.s Amm haaý
á Rsp. og SHR
Aðdragandi samninganna
Eins og hjúkrunarfræðingum er kunnugt var gengið frá
samningi í aðlögunarnefnd fyrir Ríkisspítala (Rsp.) og
Sjúkrahús Reykjavíkur (SHR) 30. júní sl. Aðlögunarnefndir
félagsins, SHR og Rsp. höfðu um nokkurra mánaða skeið
reynt árangurslaust að komast að samkomulagi um reglur
um röðun hjúkrunarfræðinga í nýju launakerfi, en það átti
að taka gildi 1. febrúar 1998.
i mars 1998 tóku um 700 hjúkrunarfræðingar á SHR
og Rsp. hins vegar ákvörðun um að segja upp starfi sínu
frá og með 1. apríl 1998 vegna óánægju með launakjör.
Þá þegar hafði komið í Ijós að hugmyndir stofnananna um
röðun hjúkrunarfræðinga í nýtt launakerfi myndu leiða til
þess að hjúkrunarfræðingar hefðu mun lægri taxtalaun en
margir aðrir háskólamenn í opinberri þjónustu. Þá lágu fyrir
margir samningar aðlögunarnefnda hjá öðrum háskóla-
mönnum og í þeim kom í Ijós mikill launamunur milli hjúkr-
unarfræðinga og margra annarra háskólamanna, sérstak-
lega hópa sem eru að meirihluta til skipaðir körlum, s.s.
verk- og tæknifræðingar. Þessi launamunur varð fyrst sýni-
legur í hinu nýja launakerfi vegna þess að í því gafst
tækifæri til að færa yfirborganir ýmissa hópa háskóla-
manna inn í launataxta. Almennir hjúkrunarfræðingar á
höfuðborgarsvæðinu hafa hins vegar yfirleitt ekki notið
yfirborgana. Uppsagnir hjúkrunarfræðinga áttu að taka
gildi 1. júlí 1998. Stofnanirnar höfðu heimild lögum sam-
kvæmt til að framlengja uppsagnarfrest hjúkrunarfræðinga
til 1. október en þær ákváðu að nýta sér ekki þá heimild.
í byrjun apríl var samningsgerð félagsins vísað til
úrskurðarnefndar en vinnu nefndarinnar var frestað um
miðjan maí þar sem ákveðið var að bíða eftir niðurstöðu í
máli Félags íslenskra náttúrufræðinga fyrir Félagsdómi.
Þegar nær leið 1. júlí skipaði ríkisstjórnin nefnd þriggja
manna til að leita lausna í deilu hjúkrunarfræðinga og við-
komandi stofnana. Þessi nefnd var skipuð ráðuneytis-
stjórum í heilbrigðis- og fjármálaráðuneyti og hagstofustjóra
og var hún nefnd ráðuneytisstjóranefndin í fjölmiðlum.
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga lá ekki á þeirri
skoðun sinni að það væri reiðubúið hvenær sem er að
taka upp viðræður við fulltrúa stofnananna eða stjórnvöld í
þeim tilgangi að Ijúka gerð stofnanasamninga og taldi það
reyndar skyldu sína, yrði það til lausnar deilu hjúkrunar-
fræðinga og viðkomandi stofnana. Slík beiðni kom til
félagsins frá sk. ráðuneytisstjóranefnd tæplega tveimur
vikum fyrir 1. júlí. Voru óformlegar viðræður í gangi þar til
helgina fyrir 1. júlí að ráðuneytisstjóranefndin ákvað að
leita annarra leiða til að vinna að lausn málsins. Við það
tilkynnti stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga að
afskipti félagsins af málinu væri úr sögunni enda var
félagið mjög ósátt við starfsaðferðir ráðuneytisstjóra-
nefndarinnar til lausnar deilunni og reyndar kom í Ijós að
þær leiddu ekki til árangurs.
Á hádegi 30. júní kom fram beiðni til félagsins frá ráðu-
neytisstjóranefndinni um að félagið kæmi aftur að málinu
með það að markmiði að Ijúka aðlögunarnefndarsamningi.
Að höfðu samráði við trúnaðarmenn og viðræðunefndir
hjúkrunarfræðinga tók stjórn félagsins ákvörðun um að
verða við beiðni ráðuneytisstjóranefndarinnar. Aðlögunar-
nefndarsamningur var síðan undirritaður kl. 16. samdæg-
urs og hann kynntur fyrir hjúkrunarfræðingum á fundum á
báðum sjúkrahúsunum.
Efni samningsins
í samningnum er kveðið á um að störfum og starfs-
mönnum skuli raðað í launaramma að teknu tilliti til þess
hvers starfið krefst af starfsmanni og því skuli raðað í
launaflokka að teknu tilliti til þátta eins og umfangs starfs,
verkefna, umfangs faglegrar ábyrgðar, álags, áhættu og
hæfniskrafna. Einnig skuli tekið mið af umfangi stjórnunar-
legrar-, rekstrarlegrar og fjárhagslegrar ábyrgðar. í 4. grein
samningsins er kveðið á um að á næsta ári skuli tekið upp
nýtt framgangskerfi fyrir hjúkrunarfræðinga:
Hjúkrunarstjórnendur innan Rsp. og SHR munu í
samráði við fulltrúa Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
vinna að mótun nýs framgangskerfis fyrir hjúkrunar-
fræðinga. Þetta kerfi byggi m.a. á klínískum stiga, mati á
álagi og menntun, þar með talið sérleyfa. Byrjað verði að
taka kerfið í notkun 7. janúar 1999 og stefnt að því að það
verði að fullu komið til framkvæmda í lok þess árs. í
upphafi verði lögð sérstök áhersla á mat á störfum
hjúkrunarfræðinga sem ganga þrískiptar vaktir. Jafnframt
felur kerfið í sér framgang innan hvers launaramma og að
auki geta hjúkrunarfræðingar sótt til hjúkrunarforstjóra um
breytingu á starfi og þar með flutning milli ramma. Sú
Tímarit hjúkrunarfræðinga ■ 4. tbl. 74. árg. 1998
233