Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.1998, Síða 46
vYAwimAurvíð tr
Nýr samningur Félags íslenskra hjúkrunarfræð-
inga við Tryggingastofnun ríkisins var undirrit-
aður 30. apríl sl. Samningsgerð hafði tekið
langan tíma þar sem óvissa ríkti um áframhald
starfsemi sjálfstætt starfandi hjúkrunarfræðinga.
Fyrsti samningur um greiðslur fyrir hjúkrun í heimahúsum
vegna alvarlegra og langvinnra sjúkdóma og slysa var
gerður árið 1989. Fram til ársins 1993 gilti samningurinn
um almenna heimahjúkrun en því voru gerðar á honum
grundvallarbreytingar. Samkvæmt þeim skyldi þjónustan
fela í sér tiltekin sérsvið hjúkrunar, þ.e. hjúkrun dauðvona
sjúklinga, hjúkrun sjúklinga með alnæmi, geðhjúkrun, barna-
hjúkrun, hjúkrun aldraðra, hjúkrun fjölfatlaðra, hjúkrun sjúkl-
inga með kviðraufun (stómíu), og hjúkrun sjúklinga með
sár. Samningurinn gilti fyrir 20 stöðugildi hjúkrunarfræð-
inga. Flann var undirritaður 22. febrúar 1993 en var sagt
upp af Tryggingastofnun ríkisins og var hann laus frá því í
maí 1995. 20. febrúar 1997 var hann framlengdur óbreytt-
ur til 31. desember 1997. Viðræður um gerð nýs samings
hófust í ágúst 1997 eins og samkomulag var um.
í desember 1996 skilaði nefnd skipuð af heilbrigðisráð-
herra áliti um „Starfssvið og starfsleyfi sjálfstætt starfandi
hjúkrunarfræðinga í heimahúsum" og var útdráttur úr því
birtur ÍTÍmariti hjúkrunarfræðinga, febrúarhefti 1997. Helstu
niðurstöður nefndarinnar voru að þjónusta sjálfstætt starf-
andi hjúkrunarfræðinga væri sérhæfð hjúkrunarþjónusta í
háum gæðaflokki og að stefna bæri að frekari þróun hennar.
í samninganefnd félagsins voru eftirtaldir: Hjúkrunarfræð-
ingarnir Ásta Möller, Aðalbjörg Finnbogadóttir, Bryndís
Konráðsdóttir, Erna Haraldsdóttir, Kristín Vigfúsdóttir, auk
Vigdísar Jónsdóttur, hagfræðings félagsins. Þá var leitað
ráðgjafar Birgis Björns Sigurjónssonar framkvæmdastjóra
BHM og hjúkrunarfræðinga sem eru starfandi skv. samn-
ingnum.
Hjúkrunarfræðingarnir Ágústa Benný Herbertsdóttir,
Helga H. Bjarnadóttir, Maríanna Haraldsdóttir og Bryndís
Konráðsdóttir unnu að skilgreiningum á hjúkrunarálagi
sem er fylgiskjal með samningnum.
Helstu breytingar í hinum nýja samningi eru eftirfarandi:
• Samningurinn gildir til 1. maí árið 2001 en honum má
segja upp með 6 mánaða fyrirvara frá 1. janúar árið
2000.
• Gerð var ný gjaldskrá sem byggist á nýjum skilgrein-
ingum á hjúkrunarálagi l-IV, sjá meðfylgjandi gjaldskrá
og skilgreiningar á hjúkrunarálagi.
• Gjaldskráin hækkar um 5% 1. janúar 1999, 4% 1.
janúar 2000 og 2,5% 1. janúar 2001.
• Nýr gjaldskrárliður bætist við um eftirfylgd sem veitir
hjúkrunarfræðingi, sem starfar skv. samningnum, heimild
til að fara í eina stuðningsvitjun til aðstandenda sjúkl-
ings eftir fráfall hans. Markmið vitjunar er að veita ráð-
gjöf og stuðning á fyrstu stigum sorgarferlis og draga
úr líkum á óeðlilegum sorgarviðbrögðum og leiðbeina
aðstandendum með áframhaldandi stuðning.
• Starfsleyfi miðast við tiltekinn fjölda vitjana á mánuði
(hámark 60 vitjanir á mánuði sem er fullt starfsleyfi) í stað
þess að miðað var eingöngu við fullt eða hálft starfsleyfi.
• Hjúkrunarfræðingur með starfsleyfi getur ráðstafað allt
að 15% af hámarksfjölda vitjana sinna til annarra hjúkr-
unarfræðinga vegna orlofa. Hjúkrunarfræðingar, sem
sinna þessum afleysingum, skulu sækja um tíma-
bundið leyfi til TR vegna þeirra.
í reglum Tryggingaráðs sem fylgja samningnum, eru
auk þess eftirtalin nýmæli:
• Beiðni um þjónustu skal berast frá hjúkrunarforstjóra
heilsugæslustöðvar, hjúkrunarfræðingi á sjúkrastofnun
eða lækni. Afrit af beiðni skal berast til heilsugæslu-
stöðvar viðkomandi sjúklings. Þetta ákvæði kemur í
stað ákvæðis um að samráð skuli haft við hlutaðeig-
andi heilsugæslustöð áður en sjúklingur fær þjónustu
frá sjálfstætt starfandi hjúkrunarfræðingi.
• Hjúkrunarfræðingur, sem hefur starfsleyfi getur lagt leyfi,
sitt tímabundið inn þegar fyrir liggja gildar ástæður s.s.
veikindi, barnsburðarleyfi eða námsleyfi, þó aldrei
lengur en 2 ár. Leyfi, sem lagt er inn tímabundið, má
veita öðrum hjúkrunarfræðingum innan sama sviðs til
jafnlangs tíma og leyfið hefur verið lagt inn.
Með undirritun þessa samnings í lok apríl sl. var samn-
ingi félagsins við TR, um hjúkrun í heimahúsum vegna
langvinnra sjúkdóma og slysa, komið af tilraunastigi. Með
samningnum gefast hjúkrunarfræðingum með starfsleyfi
fleiri tækifæri til að tengjast heilbrigðisstofnunum og
sérdeildum þeirra. Þar með geta þeir tryggt sjúklingum,
sem vilja vera heima en þurfa að vera í tengslum við
sjúkrastofnanir, samfelldari þjónustu.
238
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 4. tbl. 74. árg. 1998