Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.07.1999, Qupperneq 18

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.07.1999, Qupperneq 18
Einnig þarf að leggja sérstaka áherslu á að þátttakendur vaði ekki úr einu í annað (Burnside og Haight, 1994). í upp- hafi ætluðu hjúkrunarfræðingarnir að skiptast á hlutverkum. Annar ætlaði að ieiða hópinn en hinn að vera ritari og síðan öfugt. Á fyrsta fundi kom í Ijós að báðir þurftu að vera virkir og hvetja þátttakendur til að tala. Því fór skráning fram eftir fundina. Mælingar og gagnagreining Mælitæki Rosenberg á sjálfsáliti (Rosenberg’s Self-Esteem Scale) og mælitæki Becks á þunglyndi (Beck Depression Inventory) hafa verið notuð við mælingar á árangri upprifj- unar endurminninga (sjá m.a. Bass og Greger, 1996; Bramlett og Gueldner, 1993). Þessi mælitæki hafa verið þýdd á íslensku og stöðluð (mælitæki á sjálfsáliti) og eru þau notuð með góðfúslegu leyfi viðkomandi aðila2. Auk þessa var hjúkrunarferli hvers einstaklings notað þar sem hjúkrunargreiningar og markmið voru skráð og gæðabundið mat lagt á breytingar á þeim fyrir og eftir meðferðina. Þessu til viðbótar voru tekin einstaklings- bundin hálfstöðluð viðtöl við þátttakendur. Áherslur í við- tölunum voru á hvað viðkomandi var minnisstæðast frá því að taka þátt í viðtölunum, hvernig honum leið á fundunum og eftir þá og hvort þátttakan hafi breytt einhverju fyrir hann sem einstakling. Viðtölin tóku 15 mínútur að meðal- tali, voru vélrituð orðrétt upp og síðan innihaldsgreind frá sjónarhorni þematúlkunar (Baxter, 1994). Af tólf þátttakendum var einungis hægt að leggja fyrrgreind mælitæki fyrir fimm sjúklinganna bæði á undan og eftir meðferð. Unnt reyndist að leggja mælitækin fyrir meðferð fyrir fjóra einstaklinga til viðbótar, alls níu sjúkl- inga. Jafnframt liggja fyrir mælingar hjá þremur einstakling- um eingöngu eftir að meðferð lauk, alls átta sjúklingum. Sjö konur tóku þátt í hálfstöðluðu viðtölunum og fóru þau öll fram eftir að meðferðinni var lokið. Niðurstöður Niðurstöðum er lýst með hliðsjón af rannsóknartilgátum, mati á markmiðum hjúkrunargreininga og þemum sem fram komu í viðtölum við þátttakendur. Þunglyndi Tilgáta 1, einkenni þunglyndis hjá fólki með langt gengna langvinna lungnasjúkdóma minnka við þátttöku í reglulegum fundum þar sem rifjaðar eru upp minningar, var ekki studd. Þó svo að þunglyndi yrði vægara eftir meðferð en fyrir reyndist munurinn ekki tölfræðilega marktækur hjá þeim fimm einstaklingum sem mælingar liggja fyrir um (sjá töflu 1). 2 Rúnar Vilhjálmsson, prófessor hefur þýtt mælitæki Rosenberg um sjálfsálit og Eiríkur Örn Arnarson, sálfræðingur, hefur þýtt mælitæki Becks um þunglyndi. 162 Ekkert samband reyndist vera þegar samanburður var gerð- ur á þátttakendahópnum sem heild fyrir og eftir meðferð. Fyrir liggja upplýsingar um notkun lyfja sem áhrif hafa á geðslag hjá sjö af níu þátttakendum fyrir meðferðina. (sjá töflu 2.) Þar kemur fram að meirihluti þátttakenda notaði róandi lyf, þunglyndislyf og prednisolon. Sjálfsálit Tilgáta 2, sjálfsálit fólks með langt gengna langvinna lungnasjúkdóma eykst við þátttöku f reglulegum fundum þar sem rifjaðar eru upp minningar, var ekki studd. Enginn tölfræðilegur munur var á sjálfsáliti fyrir og eftir meðferð hjá áðurnefndum fimm einstaklingum (sjá töflu 3). Hins vegar kom fram tilhneiging til auknins sjálfsálits þegar þátttak- endahópurinn sem heild var borinn saman fyrir og eftir meðferð (sjá töflu 3). Mat á markmiðum hjúkrunargreininga Hjúkrunargreiningarnar félagsleg einangrun og kvíði voru þær greiningar sem flestir þátttakenda höfðu. Markmið um að ná betri tengslum við aðra náðust hjá öllum þátt- takendum. Markmið þess efnis að minnka kvíða náðust ekki. Álit þátttakenda á meðferð í viðtölunum við konurnar sjö komu eftirfarandi þrjú þemu fram: a) Ánægjulegt og skemmtilegt, b) að líða vel og c) opnari samskipti, aukin samkennd og viðkynning. Tafla 1 Samanburður á þunglyndi fyrir og eftir meðferð* Fyrir meðferð Eftir meðferð n M SF n M SF t P Þunglyndi (paired t-test) 5 19,0 8,94 5 16,0 11,09 2.12 .101 Þunglyndi (group t-test) 8 18,25 7,56 8 16,38 9,86 .43 .676 *Munur á þessum útreikningum felst í því að sá fyrri felur í sér saman- burð á mælingum á sömu einstaklingunum fyrir og eftir meðferð. Sá síðari felur í sér að mælingar á meðferðarhópnum í heild fyrir meðferð eru bornar saman við mælingar á hópnum í heild eftir meðferð. Tafla 2 Fjöldi þátttakenda sem notaði lyf sem hafa áhrif á geðslag (n=7) Tegund lyfja Hlutfall Hundraðshlutfall Róandi 5/7 71% Þunglyndislyf 4/7 57% Önnur geðlyf 1/7 14% Sterar (prednisolon) 6/7 86% Tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 75. árg. 1999
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.