Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.07.1999, Síða 25
Þvagrannsókn er gerð til þess að finna þætti sem tengjast
eða geta stuðlað að þvagleka t.d. ef um þvagfærasýkingu
er að ræða. Aðrar og sérhæfðari rannsóknir eru gerðar á
þeim konum sem ekki er hægt að hjálpa eftir grunnmatið.
Þessar rannsóknir eru t.d. á virkni neðri þvagfæra (uro-
dynamic tests), speglanir og röntgenmyndatökur (Barker
o.fl., 1998; Fantl, o.fl., 1996).
Meðferð á þvagleka
Meðhöndlun á þvagleka má í grófum dráttum skipta í
atferlismeðferð, lyfjameðferð og skurðaðgerðir. Fyrst þarf
að kynna fyrir konunni þau úrræði sem eru í boði og hæfa
henni. Það ætti að hafa fyrir reglu að byrja á að prófa þá
meðferð sem er einföldust fyrir konuna og í mörgum til-
fellum er það atferlismeðferð. Dæmi um atferlismeðferð
eru reglulegar salernisferðir, blöðruþjálfun og grindarbotns-
æfingar (Fantl o.fl., 1996). Markmiðið með reglulegum
salernisferðum er að halda konum, sem eru ófærar um að
komast á salerni, þurrum. Sá sem annast konuna sér um
að hjálpa henni á salernið á 2-4 klst. fresti allan sólar-
hringinn. Það hefur sýnt sig að þessi aðferð skilar árangri
(Godec, 1994). Blöðruþjálfun er aðallega ráðlögð konum
sem hafa bráðaleka og blandleka. Þegar konu er ráðlagt
að þjálfa blöðruna er mikilvægt að fræða hana fyrst um
lífeðlisfræði grindarbotnsins. Blöðruþjálfun felst í því að
kenna konunni aðferðir til að halda í sér þegar hún þarf að
hafa þvaglát og hafa þvaglát á ákveðnum tímum og með
reglulegu millibili. Fyrst um sinn er tíminn á milli þvagláta
2-3 klst. en síðan er bilið aukið smátt og smátt. Þjálfunin
getur tekið marga mánuði en á meðan hún fer fram fær
konan reglulega leiðbeiningar og stuðning frá meðferð-
araðilanum (Fantl o.fl., 1996). Blöðruþjálfun hefur reynst
árangursrík en það er erfitt að beita henni hjá þeim sem
eru andlega skertir (Fantl, Wyman, McClish o.fl., 1991).
Rannsóknir hafa leitt í Ijós að grindarbotnsæfingar eru
árangursríkar fyrir konur með álagsleka (Dougherty,
Bishop, Mooney, Gimoty og Williams, 1993; Sigurður G.
Halldórsson o.fl., 1995). Þær geta einnig verkað vel með
blöðruþjálfun fyrir konur með bráðaleka (Dougherty o.fl.,
1991). Þegar grindarbotnsæfingar eru ráðlagðar er mjög
mikilvægt að kenna konunni rétta aðferð við að herpa
grindarbotnsvöðvana. Ein aðferðin er að finna með fingri í
leggöngum hennar hvort hún notar rétta vöðva og segja
henni hvort svo sé (Barker, 1998). Önnur aðferð er sú að
halda hlut að ákveðinni þyngd í leggöngunum. Einnig
gagnast „biofeedback" meðferð við að kenna konum að
gera æfingarnar. Grindarbotnsæfingar eru framkvæmdar
með því að draga inn eða lyfta upp vöðvum í leggöngum
og hringvöðva endaþarmsins. Það þarf að segja konunni
að halda hverjum samdrætti í a.m.k. 10 sekúndur og svo
að slaka á í jafnlangan tíma. Til þess að árangur náist þarf
að gera æfingarnar 30-80 sinnum á dag í a.m.k. 8 vikur
(Fantl o.fl., 1996).
Ýmis lyf hafa reynst
vel við meðferð á þvag-
leka en þegar ákveða
þarf hvort gefa eigi lyf
þarf að vega og meta
hversu gagnleg þau eru
og aukaverkanir þeirra.
„Anti cholinergic" lyf eru
gagnleg við þvagleka af
völdum ósjálfráðra sam-
drátta í blöðrunni. Ein
tegund þeirra er oxúbú-
týnín (dítrópan) sem verk-
ar sennilega á þann hátt
að auka vöðvaspennu í
hringvöðva blöðrunnar og
að auka rúmtak þvag-
blöðrunnar. Estrógentöfl-
ur eða krem geta gagn-
ast konum sem eru
komnar yfir tíðahvörf og
hafa álagsleka eða bland-
leka. Önnur lyf sem hafa
gagnast fólki með þvag-
leka eru t.d. imipramine
(tófraníl) hjá öldruðum og
alfa-agonistar við álags-
leka (Barker, 1998; Fantl
o.fl., 1996).
Skurðaðgerð ætti að-
eins að framkvæma eftir
nákvæmt mat á þvaglek-
anum, áhættuþáttum
konunnar við að fara í
aðgerð og hvort aðgerðin
muni skila árangri. Til eru
ýmsar tegundir skurðað-
gerða bæði við álagsleka
og bráðaleka en ekki
verður fjallað nánar um
þær í þessari grein.
Lokaorð
Við hjúkrunarfræðingar getum stuðlað að því að konur fái
bót á þvagleka sínum. Nú hefur verið komið á fót göngu-
deildum fyrir konur þar sem þær hafa tækifæri til að ræða
vandamál sín, þ.á.m. þvagieka og önnur þvagfæravanda-
mál, og fá mat, greiningu og úrlausnir á þeim. Slíkar deildir
eru t.d. á Heilbrigðisstofnuninni á Egilsstöðum og Heil-
brigðisstofnun Suðurnesja. Á Egilsstöðum er móttaka
kvenna og er hún eingöngu ætluð konum með þvagleka.
Við móttökuna starfa Ijósmóðir, hjúkrunarfræðingur og
iæknir. Ef konan fær ekki bót á þvagleka sínum þar er henni
169
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 75. árg. 1999