Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.07.1999, Page 27

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.07.1999, Page 27
„'RöAA 1/tjúkruiAArfrœðíviAA oa steY,k“ - segir Herdís Sveinsdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga Herdís Sveinsdóttir, dósent, er nýsest í stól formanns Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Hvernig líkar henni nýja starfið? „Þetta er spennandi og ég hlakka til að takast á við þetta starf," svarar hún. Hún segir það hafa komið sér á óvart hve mikil starfsemi fari fram hjá félaginu og hversu virkar fag- og svæðisdeildir eru. „Sem sýnir að hér er ekki eingöngu unnið að kjara- og réttindamálum. Fagleg málefni skipa mikinn sess, sem og vinna við að móta og hafa áhrif á stefnu í heilbrigðismálum. Hjúkrunarstéttin er ein sterkasta heilbrigðisstéttin í dag, er farin að hafa áhrif á skipulag og stefnumótun heilbrigðisþjónustunnar og ef stéttin stendur vel saman getur hún áorkað miklu. Kjara- og réttindamál eru þó að sjálfsögðu áberandi í starfsem- inni. Hjúkrunarfræðingar leita mikið hingað vegna þeirra mála og það veit enginn hjúkrunarfræðingur hvenær hann þarf á aðstoð félagsins að halda. Ég tel að öll vinna, sem unnin er á vegum félagsins, skipti mjög miklu máli fyrir hinn almenna félagsmann. Ásta Möller sagði í síðasta tölublaði að hjúkrunarfræðingar hafi skapað sér rödd. Ég tel að þessi rödd sé voldug og sterk. Á hana er hlustað." Herdís lauk B.S. prófi í hjúkrunarfræði vorið 1981. Að loknu fyrsta námsári tók hún sér hlé í eitt ár og kenndi 13 ára börnum í Breiðholtinu samfara því að sitja tíma í bók- menntafræði við Háskóla íslands. „Þetta var skemmtilegur vetur en að hausti ákvað ég að fara aftur í hjúkrun. Ég er nefnilega vön að Ijúka því sem ég byrja á!“ segir hún brosandi. Aðspurð hvað hafi valdið því að hjúkrun varð fyrir valinu, segist hún ekki hafa nærtækar skýringar. Þrjár föðursystur hennar eru þó hjúkrunarfræðingar og þær eru fjórar bræðradætur sem hafa lagt hjúkrun fyrir sig. Á menntaskólaárum vann hún tvö sumar á Kleppsspítala, var m.a. ein á kvöld- og næturvöktum 16 ára gömul. Að loknu hjúkrunarnámi fór Herdls aftur í bókmennta- fræðina. „Las kvennabókmenntir hjá Helgu Kress, full áhuga á að skoða ímynd hjúkrunarfræðinga eins og hún birtist í íslenskum bókmenntaritum. Framhald á því verk- efni bíður þó síns tírna." Herdís hefur víðtæka reynslu af því að vinna á sjúkra- húsum, en segist þurfa að bæta vel við þekkingu sína á starsemi heilsugæslunnar. Hún er í doktorsnámi við háskólann í Umeá og þar dvaldi hún ásamt elsta syni sínum í sex mánuði á síðasta ári, þar sem bæði voru við nám. Doktorsverkefnið fjallar um fyrirtíðarspennu og eru leiðbeinendur Astrid Norberg, fyrsti prófesssor I hjúkrun í Svíþjóð, og Torbjörn Báck- ström, prófessor í kvensjúkdómafræðum. „Býst við að Ijúka árið 2000, ef gögnin týnast ekki í 2000 vandanum!" Hún segist alltaf hafa verið ákveðin í að fara í framhalds- nám, meistaranámið hafi þó frestast þar sem hún varð barns- hafandi að öðru barni sínu. Doktorsnámið frestaðist einnig vegna meðgöngu yngsta sonarins, sem nú er fjögurra ára. Herdís var í framhaldsnámi í hand- og lyflækninga- hjúkrun í Bandaríkjunum en þar var hún ásamt eiginmanni sínum, Rolf E. Hansson tannlækni, sem var við nám í tannholdssjúkdómum. Allt klínískt nám tók hún á kven- lækningadeild. Hugur hennar stóð til þess að sækja um stöðu deildarstjóra á kvenlækningadeild Landspítalans sem var auglýst sumarið sem hún lauk námi. Mál þróuðust þó þannig að hún sótti um stöðu lektors við námsbrautina. Ásta Thoroddsen var að fara í nám og enginn til að taka að sér kennslu í stærsta klíníska námskeiðinu, hjúkrun sjúklinga á hand- og lyflækningadeildum, eins og nám- skeiðið hét þá. Herdís hefur starfað við háskólann í 12 ár og segir árin hafa verið lærdómsrík og skemmtileg. „Sér- lega var gaman að vinna með Guðrúnu Marteinsdóttir fyrsta veturinn, en við unnum saman að rannsóknaverkefni sem við kynntum í Calgary vorið 1998.“ Herdís varð svo formaður námsbrautarinnar 1989, en fram að því var Ingibjörg R. Magnúsdóttir námsbrautarstjóri. Tímarit hjúkrunarfræðinga • 3. tbl. 75. árg. 1999 171

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.