Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.1999, Side 7

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.1999, Side 7
Það er því Ijóst að í hjúkrunar- stéttinni felst mikið afl og eins og Stallknecht bendir á getur hún haft mikið að segja um þróun heilbrigðismála á nýrri öld. Ritstjóraspjall Afmælisáríð 1999 Afmælishátíðir hjúkrunarfélaga setja svip sinn á árið 1999, rétt eins og allir keppist við að Ijúka einhverjum áratug rétt fyrir alda- mótin. 100 ára afmæli ICN var haldið hátíðlegt í London á dög- unum, danska hjúkrunarfélagið er að halda upp á 100 ára afmæli í þessum mánuði og íslenskir hjúkr- unarfræðingar halda upp á 80 ára afmæli félagsins 6. nóvember nk. Við slík tímamót er gjarnan litið til fortíðar og framtíðar, enda var það yfirskrift ráðstefnunnar og hátíðar- haldanna í London. Víst er að heilbrigðisstéttir sem og aðrir íbúar heimsins hafa aldrei staðið frammi fyrir eins miklum tæknibreytingum og eiga sér stað um þessar mundir. Það er því eðlilegt að velta fyrir sér hvaða áhrif tæknin hefur á þróun þjóðfélagsins, starfsstétta og samskipta. Tæknin er Kirsten Stallknecht hugleikin og hún segir í viðtali í blaðinu að menn þurfi að gera upp við sig hvort aukin tækni eigi að verða þjónn eða húsbóndi hjúkrunarinnar. í þessu tölublaði er einnig litið til fortíðar, rifjuð upp merk ártöl í sögu hjúkrunar á íslandi í tilefni 80 ára afmælis og rætt við Vigdísi Magnúsdóttur sem hefur verið gerð að heiðursfélaga FÍH og heiðruð verður á 80 ára afmælinu. Eins og fram kemur í saman- tekt um ICN eru upptök alþjóða- samtakanna í alþjóðlegum félög- um kvenna og staða hjúkrunar- fræðinga hefur alla tíð mótast af stöðu kvenna almennt. Þetta má meðal annars sjá af þróun hjúkr- unarbúningsins en Erla Dóris Halldórsdóttir, hjúkrunarfræðingur og sagnfræðingur, hefur tekið saman fróðlegt yfirlit um það efni. Það er einnig athyglisvert að alþjóðasamtök hjúkrunarfræðinga eru fyrstu alþjóðlegu samtök heil- brigðisstétta en hjúkrunarfræð- ingar eru jafnframt langfjölmenn- asta stéttin innan heilbrigðisgeir- ans, eða um 80 prósent þeirra sem starfa að heilbrigðismálum. HARTMANN lVlenalind Vernd fyrir viðkvæma húð BEDCO & MATHIESEN EHF Bæjarhrauni 10 sími 565 1000 • fax: 565 1001 Tímarit hjúkrunarfræðinga • 4. tbl. 75. árg. 1999 223

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.