Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.1999, Qupperneq 57

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.1999, Qupperneq 57
-Hík klíðin. I x VI l Susan Haraldsson er ein þeirrra kvenna sem átti verk á handverkssýningunni sem haldin var í tengslum við Hjúkrun ’99. Susan er frá Bretlandi en hefur búið lengi hér á landi. Tíkin Tess var úti að viðra sig þegar leiðin lá í heimsókn til þeirra í Kópavoginum til að fá upplýsingar um leyndar- dóminn að baki þrívíddar- myndum sem hún átti á sýningunni. Tíkin Tess heitir eftir skáldsögu Tómasar Hardy en hann bjó í Dorset og margar skáldsögur hans gerast á þeim slóðum. Það var líka í Dorset sem Susan vann áður en leið hennar lá hingað. Susan kemur með Ijósmynd af gömlum herragarði sem breytt hafði verið í elliheimili, með vel snyrtri garðflöt fyrir framan og keilulaga klipptum trjám í röðum. Myndina tók hún er hún var þar á ferð fyrir nokkrum árum og rifjar upp veru sína þar. „Þarna voru draugar, kakkalakkar og leður- blökur," segir hún og það fer hrollur um hana við tilhugs- unina. Hún segir að það hafi ekki verið notalegt að vera þar á næturvakt, ekki einu sinni þó þær hafi verið tvær saman. í ferð, sem hún fór í nýlega til að rifja upp vera sína í Dorset, varð henni hugsað til skáldsagnanna sem áttu að gerast á þessum slóðum. „Ég labbaði inn í bókabúð og ætlaði að kaupa mér bókina Tess eftir Thomas Hardy því það var svo langt síðan ég hafði lesið hana. Mér fannst mjög merkilegt að hundurinn minn héti í höfuðið á bókinni og sagði bóksalanum frá því. Honum fannst það síður en svo merkilegt. „Hér um slóðir heitir önnur hver tík Tess.““ Það var einmitt hundamynd á korti sem kveikti í Susan varðandi gerð þrívíddarmyndanna. „Ég sá svona myndir fyrst í Englandi. Ég var í heimsókn hjá vinkonu minni sem er mikil handverkskona og hún sýndi mér þrívíddarmyndir sem hún hafði gert. Ég varð alveg heilluð af þessu. Hún kenndi mér að búa tii eitt kort með hundamynd og gaf mér efni í aðra mynd. Ég fór svo á námskeið þegar ég hafði tíma til. Mér fannst þetta fyrst afar flókið og hugsaði með mér að þetta gæti ég aldrei. En ég gat það! Og síðan hef ég verið óstöðvandi." Og Susan nær í fjölmörg kort sem hún hefur unnið. Kortið með hundinum á ætlar hún ekki að láta frá sér, né fyrstu myndina sem hún vann eftir það. Hún tínir upp úr pappakassa alis kyns tækifæriskort, sum hver hefur hún unnið úr gjafapappír. „Myndirnar eru byggðar upp þannig að sama myndin er búin til í mörgum eintökum og þeim raðað saman hverri ofan á aðra og sílikon sett á milli. Myndirnar eru svo málaðar en þetta er mjög seinleg vinna, stundum þarf að klippa út hundruð örlítilla blóma eða lauf- blaða og líma saman þannig að þau myndi blómsveiga eða tré.“ Þarna má sjá margar ævintýralegar myndir, svp sem af örsmáum músum í fötum sitjandi í herbergi eða að sinna hinum og þessum störfum, en mýsnar segir hún mjög vinsælar í Bretlandi. Smekkur fóiks er misjafn eftir löndum, blómin og dýramyndirnar eru vinsælli í Bretlandi en hér. Hún nær í bæklinga sem hægt er að panta ýmsar myndir úr. Hún hefur búið til myndir eftir pöntun úr þessum bæklingum, en flestar myndanna velur hún þó sjálf og hefur nú búið til tæplega 40 ólíkar tegundir. Hún nær í annan kassa sem er fullur af myndum sem hún ætlar að vinna á næstunni. En hefur hún selt eitthvað af myndun- um? „Ég er engin sölukona," segir hún og bætir við að vinkona sín í Bretlandi hafi sagt henni að hún myndi ekki efnast á þessu. Vinna við hverja mynd tekur a.m.k. 2-3 vikur því Susan hefur í mörg horn að líta, er í 80% starfi í heimahjúkrun Heilsuverndarstöðvarinnar og að passa barnabarn sitt á daginn. Myndirnar ætlar hún að halda áfram að vinna sér til ánægju og ef til vill einnig öðrum til yndisauka. Nokkrar myndir Susan á handverkssýn- ingu sem haldin var í tengslum við Hjúkrun ’99. 269 Tímarit hjúkrunarfræðinga ■ 4. tbl. 75. árg. 1999
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.