Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.1999, Síða 35

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.1999, Síða 35
Valgerður Katrín Jónsdóttir þjóðfélagsfræðingur og ritstjóri „Pur{uw. A§ HOtA ÍÆkmiAA til A& AukA Aœði kjúkrunAr“ -segir Kirsten Stallknecht, forseti ICN Kirsten Stallknecht er 23. forseti ICN. Hún hóf störf sem hjúkrunarfræðingur í Danmörku 18 ára að aldri og lét snemma til sín taka á sviði félagsmála. Forseti danska hjúkrunarfélagsins varð hún 30 ára að aldri og í forseta- stólnum sat hún í 28 ár eða þar til hún varð forseti ICN árið 1996. Stallknecht var einnig forseti Norrænu hjúkrunar- samtakanna, SSN, og samstarfsnefndar hjúkrunarfræð- inga í Evrópu. Hún hefur auk þess átt sæti í ýmsum nefnd- um og ráðum á vegum danskra stjórnvalda. Hún hefur verið óþreytandi í að berjast fyrir bættum kjörum hjúkrunarfræðinga og hefur m.a. lagt áherslu á mikilvægi þess að þeir fái launauppbætur vegna óþægi- legs vinnutíma og að þeir geti sameinað vinnu og fjöl- skyldulíf. í opnunarræðu sinni í Albert Hall sunnudaginn 27. júní varð Stallknecht tíðrætt um hvað framtíðin gæti borið í skauti sér og setti á svið tvær mismunandi fram- tíðarmyndir, annars vegar þar sem tæknin réð ferðinni á kostnað góðrar hjúkrunar og hins vegar þar sem tæknin var nýtt í þágu betri hjúkrunar. „Já, það er eitt af helstu viðfangsefnum sem hjúkrunar- fræðingar framtíðarinnar standa frammi fyrir að nota tækn- ina til að bæta hjúkrun," segir hún í stuttri stund milli stríða í bakherbergi inn af blaðamannaherberginu í Westminster Central Hall þar sem haldið var upp á hundrað ára afmæli ICN. Auk ritstjóra Tímarits hjúkrunarfræðinga er prófessor Michael Herbst ritstjóri hjúkrunartímarits í Suður-Afríku á staðnum en Kirsten hefur barist ötullega gegn pyndingum og því hvernig fólk er tekið af lífi með lyfjagjöf en þær aðferðir eru m.a. notaðar af stjórnvöldum í Afríku. Hún nefnir sem dæmi að tæknin hafi haft í för með sér að fólk geti lifað lengur með hjálp ýmissa véla og sumir séu meira eða minna meðvitundarlausir í lengri eða skemmri tíma. Hún leggur áherslu á að hjúkrunarfólk og læknar verði að gera sér grein fyrir því að sýna þurfi fólki nærgætni þó það virðist meðvitundarlaust því heyrnin sé það skilningarvit sem sé virkt hjá sjúklingnum allt fram á síðustu stundu. „Hjúkrunarfræðingar geta talað við fólk jafnvel þó það sé í öndunarvélum og geti ekki svarað. Jafnvel mjög veikt fólk getur heyrt það sem fram fer þó það geti ekki tjáð sig, það getur ekki einu sinni látið vita að það heyri. Við vitum því aldrei hvort sjúklingarnir heyra í „Jafnvel mjög veikt fólk getur heyrt það sem fram fer þó það geti ekki tjáð sig.“ okkur eða ekki. Því verðum við að vera nærgætin þegar við hjúkrum fólki sem er þannig ástatt um og gæta þess að tala ekki um sjúklingana eins og þeir séu ekki til staðar því þeir heyra kannski í okkur. Við getum líka snert sjúklingana og verðum að reyna að gæta þess að þeim líði eins vel og kostur er, að það sé eins vel búið að þeim líkamlega og hægt er, jafnvel þó við vitum ekki hvort þeir finna til eða ekki. Ég held það sé mjög mikilvægt að tæknin stjórni ekki ferðinni varðandi hjúkrunina og að við gleymum því ekki að þó að sjúklingurinn virðist með- vitundarlaus, geti t.d. ekki tjáð sig, þá getum við samt haft samband við hann með því að koma við hann og annast hann vel. Sjúklingar kvarta oft yfir því að starfsfólkið, læknar, hjúkrunarfræðingar og aðrir, tali hvað við annað yfir 251 Tímarit hjúkrunarfræðinga • 4. tbl. 75. árg. 1999

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.