Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.1999, Blaðsíða 60
WENR Á (SLANDI
Starfshópur evrópskra hjúkrunarfræðinga sem stunda
rannsóknir, WENR, (The Workgroup of European Nurse
Researchers) var stofnaður 1978 og er hann styrktur af
félögum hjúkrunarfræðinga í Evrópu. Tilgangur WENR er
að styrkja samvinnu hjúkrunarrannsakenda í því skyni að
efla vöxt og þróun hjúkrunarrannsókna og stuðla þannig
að auknum gæðum hjúkrunar. Á vegum WENR er haldin
ráðstefna annað hvert ár fyrir evrópska hjúkrunarfræðinga
og aðra sem tengjast rannsóknum í hjúkrun. Þar býðst
evrópskum hjúkrunarfræðingum gott tækifæri til að kynna
rannsóknir sínar og/eða kynnast því nýjasta í hjúkrunar-
rannsóknum í Evrópu.
Á næsta ári býður Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga í
samvinnu við WENR til 10. ráðstefnunnar og verður hún
haldin í Háskólabíói dagana 25.-27. maí 2000
Heiti ráðstefnunnar er: Verkefni hjúkrunarfræðinga á
21. öldinni: Heilsuefling, forvarnir og meðferð.
Gestafyrirlesarar:
Sigríður Halldórsdóttir, RN, Ph.D, prófessor við
Háskólann á Akureyri, fjallar um aukna heilbrigðisvitund og
vellíðan sem árangur faglegrar umhyggju.
Ingalill Rahm Hallberg, RN, Ph.D, prófessor við
Háskólann í Lundi, fjallar um hjúkrunarmeðferð, forgangs-
verkefni, aðferðafræðilegar hindranir og möguleika í hjúkrun.
Nancy Fugate Woods, RN, Ph.D, prófessor við
háskólann í Washington, ræðir um framlag hjúkrunarrann-
sókna til heilbrigðis kvenna.
Alls verða fluttir rúmlega hundrað 25 mínútna fyrir-
lestrar á ensku, en enska er það mál sem notað verður á
ráðstefnunni. Auk fyrirlestra verða veggspjaldakynningar
og vinnusmiðjur.
Hjúkrunarfræðingar eru hvattir til að senda inn útdrætti
fyrir fyrirlestra eða veggspjaldasýningu. í útdrætti þurfa
eftirtalin efnisatriði að koma fram; vandamál, aðferð, úrtak,
mælitæki, niðurstöður og ályktanir. Efni í vinnusmiðju þarf
að tengjast hjúkrunarrannsóknum. Sjá nánar Abstract
form á heimasíðu ráðstefnunnar, http://www.hjukrun.is
Útdrættir þurfa að hafa borist fyrir 30. október 1999.
Ráðstefnugjald fyrir þá sem greiða fyrir 15. febrúar 2000
er kr. 33.000,- og nemagjald kr. 20.000. Sérstakt ráð-
stefnugjald er fyrir meðlimi Félags íslenskra hjúkrunar-
fræðinga kr. 20.000 og nemendur í heilbrigðisfræðum
við H.í og H.A. kr. 10.000. Nemendur þurfa að skila vottorði
frá skóla um að þeir séu í fullu námi. Innifalið í ráðstefnugjaldi
er aðgangur að öllum fyrirlestrum og vinnusmiðjum, ráð-
stefnugögn, veitingar í kaffihléum, bitabox í hádegi alla dag-
ana og móttaka í Ráðhúsinu. Nánari upplýsingar eru undir
Registration á heimasíðunni http://www.hjukrun.is
Allar nánari upplýsingar veita:
Heimasíða WENR http://www.hjukrun.is
Úrval Útsýn ráðstefnudeild, sími 585 4000,
netfang: congrex@icelandtravel.is
Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, sími 568 7575,
netfang: adalbjorg@hjukrun.is
Undirbúningshóp skipa:
Auðna Ágústsdóttir formaður, Aðalbjörg J. Finnbogadóttir,
Anna Birna Jensdóttir, Elsa Friðfinnsdóttir, Herdís
Sveinsdóttir, Hildur Helgadóttir og ingibjörg Hjaltadóttir.
Könnun FÍH á vinnuálagi hjúkrunarfræðinga
Ert IdÚ. búin að skila?
\ vor voru sendir út spurningalistar vegna könnunar Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga á
vinnuálagi félagsmanna. Heimtur hafa því miður ekki verið nógu góðar. Þar sem könnunin er
kostnaðarsöm og miklu skiptir að hún skili árangri eru hjúkrunarfræðingar hvattir til að skila sem
fyrst. Ef einhverjir hafa glatað spurningalistanum eru þeir hvattir til að hafa samband við Pál
Biering, sérfræðing hjá Rannsóknarstofnun í hjúkrunarfræði við Háskóla íslands (s. 525 5280 eða pb@hi.is), og fá
nýja lista, en Páll veitir auk þess allar nánari upplýsingar um könnunina. Mikilvægt er að sem flestir svari svo
niðurstöður verði marktækar. Niðurstöður könnunarinnar munu auðvelda forsvarsmönnum hjúkrunarfræðinga og
stjórnendum heilbrigðisstofnana að bregðast við langvarandi manneklu og miklu vinnuálagi en það er vaxandi
áhyggjuefni öllum þeim sem láta sig varða hag og framtíð íslenskra hjúkrunarfræðinga. Könnunin mun einnig veita
fræðimönnum á sviði hjúkrunar mikilvægar upplýsingar um áhirfaþætti og afleiðingar vinnuálags hjúkrunarfræðinga.
272
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 4. tbl. 75. árg. 1999