Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.1999, Blaðsíða 22
upptekin af útliti sínu þá snýst málið hvorki um hégóma,
fáfræði eða óskiljanlegan geðsjúkdóm. Frá sjónarhóli sál-
greiningar er átröskun einkenni um ómeðvitaða viðleitni
einstaklings til að finnast hann vera sterkur og hafa stjórn
á lífi sínu þegar hann er í raun bæði ráðvilltur og fullur efa-
semda um sjálfan sig. Þess vegna getur markmið með-
ferðar ekki verið að fita sjúkling heldur að gera honum
kleift að bera skynbragð á tilfinningar sínar og tengja þær
atburðum í daglegu lífi. Slík meðferð getur tekið langan
tíma því sjúklingurinn þarf að finna fyrir tilfinningum sem
hann hefur hingað til óttast og slíkt er ekkert áhlaupaverk.
Á þann hátt fær hann smám saman fyllri mynd af sjálfum
Fjarkennsla í verkjameðferð
Háskólinn í Sydney í Ástralíu (The University of Sidney
Pain Management and Research Center Royal North
Shore Hospital) býður upp eftirfarandi fjarkennslu í
verkjameðferð:
Graduate Certificate (eitt ár, hlutanám)
Graduate Diploma (tvö ár, hlutanám)
Master of Medicine (þrjú ár, hlutanám)
Master of Science (þrjú ár, hlutanám)
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð fást hjá
Prófessor Ross Harris: rharris@med.usyd.edu.au og á
heimasíðu www.painmgmt.usyd.edu.au/
Upplýsingar er einnig að fá á skrifstofum Náms-
brautar í hjúkrunarfræði og Félags íslenskra hjúkrunar-
fræðinga.
sér og öðrum og verður færari um að meta hvort sjálfs-
afneitun gagnast honum í raun og veru eða hvort hann vill
styrkja sjálfsmynd sína á annan hátt.
Jafnvel þó að meðferð átröskunar komi ekki almennt til
kasta hjúkrunarfræðinga skiptir þekking og afstaða svo
fjölmennrar heilbrigðisstéttar máli. Hvaða skilning leggja
hjúkrunarfræðingar í að konur hafi stöðugar áhyggjur af
þyngd sinni og séu eilíflega óánægðar með útlit sitt, hvort
sem þær eru grannar eða feitar? Telja þeir að kenna þurfi
stúlku með lystarstol að borða eða ber að huga að innra lífi
hennar? í ákafanum gegn offitu og sjúkdómum tengdum
henni vill gleymast að margar konur, sem eru hreystin
uppmáluð, öðlast útlit sitt með mjög óheilbrigðum aðferð-
um, s.s. svelti, uppköstum, ofnotkun hægða- og þvagræsi-
lyfja og ofþjálfun. Hjúkrunarfræðingar þurfa að vera vakandi
fyrir vanda þessara kvenna og sjá í gegnum lymskulegan
áróður llkamsdýrkunar, sérstaklega þegar honum er teflt
fram I nafni heilbrigðis.
Heimildalisti
Bruch, H. (1979). The Golden Cage. The Enigma of Anorexia Nervosa.
New York, Vintage Books.
Chodorow, N. (1989). Feminism and Psychoanaiytic Theory. Cambridge,
Polity Press.
Ernst, S., and M. Maguire (ritstjórar). (1987). Living with the Sphinx. Papers
from the Women's Therapy Centre. London, The Women's Press.
Hörður Þorgilsson og Jakob Smári (ritstjórar). (1993). Sálfræðibókin.
Reykjavík, Mál og menning.
Lawrence, M. and M. Dana (ritstjórar). (1990). Fighting Food. Coping
With Eating Disorders. London, Penguin Books.
Orbach, S. (1986). Hungerstrike. New York, Avon Books.
Sæunn Kjartansdóttir (væntanleg haustið 1999). Hvað gengur fólki til?
Leit sálgreiningar að skilningi. Reykjavík, Mál og menning.
Winnicott, D.W. (1965). The Maturational Processes and the Facilitating En-
vironment. London, Karnac Books and The Institute of Psycho-Analysis.
Starfsfólk Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga og víðverutímí
Herdís Sveinsdóttir, formaður, alla virka daga kl. 9-17,
netfang: herdis@hjukrun.is
Aðalbjörg Finnbogadóttir, ráðgjöf og námsmat,
mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga, fimmtudaga
kl. 9-16, netfang: adalbjorg@hjukrun.is
Ingunn Sigurgeirsdóttir, fjármálastjóri, alla virka daga
nema föstudaga kl. 9-17, netfang: ingunn@hjukrun.is
Áslaug Guðjónsdóttir, skrifstofumaður, alla virka daga
kl. 9-17, netfang: aslaug@hjukrun.is
Soffía Sigurðardóttir, skrifstofumaður, alla virka daga
kl. 9-17, netfang: soffia@hjukrun.is
Valgerður Katrín Jónsdóttir, ritstjóri, mánudaga,
miðvikudaga og fimmtudaga kl. 9-17, föstudaga kl. 9-12,
netfang: valgerdur@hjukrun.is
Magnús Heimisson, viðskiptafræðingur, alla virka daga
kl. 9-17, símaviðtalstími mánudaga, miðvikudaga og
fimmtudaga kl. 9-12, netfang: magnus@hjukrun.is
Skrifstofa félagsins að Suðurlandsbraut 22 er opin-virka
daga kl. 9-17, síminn er 568 7575.
Skrifstofa félagsins sér um, auk almennrar skrifstofuþjón-
ustu og upplýsingamiðlunar, þjónustu við sjóði félagsins,
s.s. starfsmenntunarsjóð, vísindasjóð, orlofssjóð og minn-
ingarsjóði. Skrifstofan sér auk þess um sölu á varningi á
vegum félagsins og leigu á íbúð í Reykjavík og sumar-
bústöðum félagsins utan sumarleyfistlma.
238
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 4. tbl. 75. árg. 1999