Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.1999, Blaðsíða 10

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.1999, Blaðsíða 10
þunglyndiseinkenni og mjög mikil streita í foreldrahlutverki sem eru talin áhættusöm heilsu móður og þroska barns. Fyrir utan þá þjáningu, sem einkennin valda mæörum, geta þau átt þátt í seinkun vitsmunaþroska barna og tafiö fyrir öruggri tengslamyndun (Murray og fl., 1996; Sharp og fl., 1995; Abidin, 1990; van den Boom, 1988). Þunglyndi Tíð þunglyndiseinkenni eru hvorki talin eðlileg afleiðing barn- eigna né eðlilegur þáttur í sálfélagslegri aðlögun sængur- kvenna. Lítill hópur þeirra kvenna sem eiga börn, eða ein kona af hverjum tíu í vestrænum löndum, má þó búast við að verða þunglyndur innan þriggja mánaða eftir fæðingu (Wickberg og Hwang, 1997; Cox og fl.,1993; Cooper og fl., 1988). Sjöunda hver íslensk kona má búast við tíðum þunglyndiseinkennum á sama tíma, og er það álíka há tíðni og í öðrum vestrænum löndum (10-15%). Algengi og alvarleiki þunglyndiseinkenna íslenskra mæðra eru háð streitu í foreldrahlutverki, óværð ungbarna og félagslegri stöðu mæðra (Thome, 1998 og 1996). Sýnt hefur verið fram á að u.þ.b. sex prósent þeirra kvenna, sem verða fyrir tíðum þunglyndiseinkennum tveimur til þremur mánuðum eftir barnsburð, eru enn þá með tíð og langvarandi einkenni sex mánuðum eftir fæðinguna (Thome, 1992 og 1999). Þessar niðurstöður eru í samræmi við niðurstöður erlendra rannsókna sem benda til að geðrænir kvillar séu þrisvar sinnum algengari fyrstu mánuðina eftir fæðingu en á öðrum tímum ævinnar. Þunglyndi minnkar með tímanum hjá flestum mæðrum. Þrátt fyrir meðferð á þunglyndi virðist um það bil þriðjungur mæðra ekki ná bata fyrir sjötta mánuð (Cox og fl.,1993; Holden og fl., 1989). Komið hefur í Ijós að konur með langvarandi og/eða endurtekið klínískt þunglyndi rekja upphaf sjúkdómsins oftar til tímabilsins eftir barnsburð en til annarra tímabila á frjósemisskeiði. Þunglyndi eftir barnsburð virðist hafa áhrif á þróun þunglyndis meðal kvenna og hefur slæm áhrif á samskipti við maka/sambýling (Boyce, 1994; Cox og fl.,1993). Samband er á milli langvarandi þunglyndis mæðra og erfiðra félagslegra aðstæðna þeirra (Hall og fl., 1991). Átta þættir, sem auka líkur á þunglyndi eftir barnsburð, eru þekktir samkvæmt niðurstöðum allsherjargreiningar á fjölda rannsókna (meta- analysis) (Beck, 1996). í rannsókn Becks kemur fram að af þessum átta þáttum eykur þunglyndi á meðgöngu mest líkurnar á þunglyndi eftir fæðingu. Nokkuð sterkt samband er einnig milli eftirfarandi sjö þátta: Streitu í umönnun barna, lífsstreitu, félagslegs stuðnings, kvíða á meðgöngu, fæðingardepurðar, samskiptaerfiðleika í sambúð og fyrri dæma um þunglyndi sem ótengt er barnsburði. Þótt fjöldi rannsókna með fylgnisniði hafi staðfest samband fjölmargra þátta við þunglyndi eftir fæðingu, verður ekkert ályktað um orsakasamband þar sem fylgnistuðlar milli breyta veita engar upplýsingar um það. Talið er að rannsóknir á sam- virkni líffræðilegra og sálfélagslegra þátta, þar sem notast er við annað snið en fýlgnisnið, séu nauðsynlegar til að öðlast þekkingu á orsökum þunglyndis eftir barnsburð. Greinarhöf- undur hefur fjallað um hugsanlegar orsakir þunglyndis eftir barnsburð í annarri grein (Thome, 1992). Þekktar spá- breytur hafa verið notaðar til að búa til mælitæki, sem átti að greina hvort þungaðar konur ættu á hættu að verða þung- lyndar eftir barnsburð (Appleby og fl., 1994). Hvorki tókst með þessu mælitæki né Edinborgar-þunglyndiskvarðanum að spá fyrir um hverjar mundu verða þunglyndar eftir barnsburð. Með Edinborgar-kvarðanum var þó hægt að segja fyrir um hverjar yrðu ekki þunglyndar. Niðurstöðurnar staðfesta hins vegar fyrri rannsóknarniðurstöður um tengsl tveggja þátta við þunglyndi eftir barnsburð (Appleby og fl., 1994). Þeir eru þunglyndi á meðgöngu og fyrra þunglyndi ótengt barnsburði. Konur með þessa þætti voru í þrefalt meiri hættu á að verða þunglyndar eftir barnsburð. Það er í samræmi við aðrar rannsóknaniðurstöður (Beck, 1996; Appleby og fl., 1994; Watson og fl. 1984; Garvey og fl., 1983). Það einkennir þunglyndi eftir barnsburð að sjálfsvíg og tilraunir til þess eru helmingi færri fyrsta árið eftir barnsburð en hjá öðrum konum á barneignaskeiði (Appleby, 1991). Þrátt fyrir lága tíðni alvarlegra sjálfsmeiðinga kvenna eftir fæðingu verða heilbrigðisstéttir að átta sig á því að hættan er fyrir hendi, sérstaklega á fyrsta mánuði (Appleby ogTurnbull, 1995). Streita í foreldrahlutverki Streita í foreldrahlutverki er talin eðlilegur fylgifiskur þess að ala upp og annast börn. Flestir foreldrar finna fyrir henni en í mismiklum mæli eftir aldri barnsins. Mjög mikil streita í foreldrahlutverki, sem tæp 10% íslenskra mæðra finna fyrir, er talin áhættusöm fyrir bæði foreldra og börn (Thome, 1998; Abidin, 1990). Tíð þunglyndiseinkenni mæðra auka líkurnar á mikilli streitu í foreldrahlutverki og á aðlögunarerfiðleikum (Thome, 1998; Milgrom og McCloud; 1996; Romito, 1990; Hall og Farel, 1988). Samband 226 Tímarit hjúkrunarfræðinga ■ 4. tbl. 75. árg. 1999
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.