Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.1999, Blaðsíða 28
Valgerður Katrín Jónsdóttir
þjóðfélagsfræðingur og ritstjóri
ICN kuiKÁ'CAð Á'CíK
Á fjórða þúsund hjúkrunarfræðinga víðs vegar úr
heiminum sameinuðust í því að halda hundrað
ára afmæli alþjóðasamtaka hjúkrunarfræðinga,
ICN, hátíðlegt í London í lok júní en þar voru
alþjóðasamtökin stofnuð 1899.
Hátíðarhöldin hófust með veglegri setningarhátíð
í Royai Albert Hall þar sem stjórn samtakanna
var kynnt en í henni á íslenskur hjúkrunarfræð-
ingur sæti í fyrsta sinn, Ásta Möller, sem er
fulltrúi Norðurlandanna.
Þá voru fulltrúar landanna 119, sem eiga aðild að ICN,
kynntir og þjóðfánar landanna mynduðu fánaborg niður af
svölunum í salnum. Einkunnarorð hundrað ára hátíðar-
haldanna báru með sér að haldið skyldi upp á fortíð og
horft til framtíðar. „Fyrir hundrað árum kom hópur hug-
rakkra kvenna saman og deildi með sér draumi um að
hjúkrun gæti orðið afl til félagslegra framfara. Ekki bara í
samfélagi þeirra sjálfra heldur um allan heim, afl sem gæti
barist fyrir grundvallarmannréttindum, réttinum til að njóta
góðrar heilsu," sagði Kirsten Stallknecht í opnunarræðu
sinni. Hún sagði enn fremur að sem dæmi um framsýni
þessara kvenna hefðu þær ekki haft kosningarétt í eigin
löndum á þessum tíma og litið hafi verið á allt tal um
lágmarkslaun, heilsutn/ggingar og rétt til góðrar heilsu sem
hugarfóstur þeirra sem höfðu orð á slíku. Síðan fór
Stallknecht með áhorfendur í ferð inn í 21. öldina þar sem
tækninýjungar, alþjóðamenning og samfélagsbreytingar
munu setja svip sinn á heilbrigðisþjónustuna og hlutverk
hjúkrunarfræðingsins. Hún lagði áherslu á mikilvægi þess
að tæknin yrði notuð í þjónustu hjúkrunarinnar með auk-
inni umhyggju og mannúð. Að lokinni ræðu forseta ICN
var slegið á léttari strengi og fram komu The Performers
Company Besses O’The Barn brass band og Paperback
Beatles. Þeir síðastnefndu vöktu gríðarlegan fögnuð
viðstaddra enda gömlu bítlalögin endurvakin og að lokum
stóðu fundargestir upp úr sætum sínum og sveifluðu sér í
takt við „Bítlana".
Fyrstu alþjóðlegu samtök heilbrigðisstarfsfólks
Það var hinn 1. júlí 1899 sem frú Bedford Fenwick, sem
hét reyndar Ethel Gordon að skírnarnafni, lagði til að
alþjóðasamtök hjúkrunarfræðinga yrðu stofnuð að við-
244
Judith A. Oulton, aðalframkvæmdastjóri ICN og Christine
Hancock, aðalritari RCN, prúðbúnar á leið í móttöku.
stöddum 200 konum, þar á meðal hjúkrunarfræðingum
víða úr heiminum. Ræturnar liggja þó lengra aftur í tímann
til alþjóðasamtaka kvenna sem stofnuð höfðu verið áður,
eða 1888, að frumkvæði Susan B. Anthony og May
Wright Sewall. Á fimm ára afmæli samtakanna var stofnuð
deild hjúkrunarfræðinga innan samtakanna, þar mættu
þeir sem einstaklingar en voru ekki fulltrúar félaga. Lafði
Aberdeen, sem var fyrsti forseti samtakanna, skipulagði
ráðstefnu útivinnandi kvenna sem varð síðan árlegur
viðburður. Á fyrstu ráðstefnu útivinnandi kvenna mættu
fulltrúar hjúkrunarsamtaka og ýmis hjúkrunarmálefni voru
til umfjöllunar. Á ráðstefnu, sem haldin var í Croydon í
október 1897, mætti frú Bedford Fenwick sem fulltrúi
hjúkrunarfræðinga og mælti með að stofnuð yrðu samtök
hjúkrunarfræðinga til aukins hagræðis fyrir hjúkrunarstétt-
ina. Nokkrum árum áður höfðu leiðir þeirra Fenwick,
Laviniu Dock frá Bandaríkjunum og Agnes Karll frá Þýska-
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 4. tbl. 75. árg. 1999