Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.1999, Blaðsíða 66

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.1999, Blaðsíða 66
Fréttatílkynning frá heilbrigðisdeild Háskólans á Akureyri Heilbrigðisdeild HA tekur nú þátt í samevrópsku verkefni sem heitir „Interactive Multimedia in Nursing education. To improve Quality on preclinical studies“. Verkefnið er styrkt af Evrópuráðinu sem LEONARDO DA VINCI verkefni. Verkefnið var styrkt til tveggja ára og hófst undirbúningsvinna við það á vordögum 1998 og lýkur á sama tíma vorið 2000. Verkefninu er stjórnað af þeim Öyvind Christiansen og Tone K. Oddvang við Háskólann í Bodö í Noregi. Þau starfa við hjúkrunardeild Háskólans í Mo í Rana og áttu þau upphaflegu hugmyndina að verkefninu og sóttu um styrk eftir að hafa staðfest samstarf frá fjórum öðrum löndum. Með í verkefninu eru svo auk Háskólans í Bodö: * Heilbrigðisdeild HA, * School of Nursing, Midwifery and Health Visiting, Manchester háskóla, Englandi, * Várdhögskolan i Boden, Svíþjóð, * Luleá sjukhus, Luleá, Svíþjóð, * Alicante háskóli, Spáni, * Háskólasjúkrahúsið í Alicante, Spáni og * Rana Sykehus, Mo í Rana, Noregi. Frá heilbrigðisdeild HA taka Ingibjörg Þórhallsdóttir og Sigríður Sía Jónsdóttir þátt í verkefninu. Yfirmarkmiðið með verkefninu er að meta notagildi kennsluefnis á tölvutæku formi annars vegar við kennslu hjúkrunarnema og hins vegar við endurmenntun hjúkrunarfræðinga. Norðmenn og Svíar eru einu þátttakendurnir sem sjá um síðari hlutann en allar þjóðirnar taka þátt í mati við hjúkrunarkennslu. Með það í huga að útkoman úr mati á kennsluefninu verði jákvæð, þ.e. notkun á kennsluefninu skili aukinni þekkingu til viðkomandi, er gert ráð fyrir að í framhaldi af niðurstöðum verði grundvöllur til að þróa verkefni á tölvutæku formi sem nota megi í ölium löndunum og samræma þannig þekkingu hjúkrunarnema og hjúkrunarfræðinga í viðkomandi löndum auk annarra Evrópulanda og gera þannig hjúkrunarfræðingum auðveldara fyrir að starfa við hjúkrun í hinum ýmsu löndum Evrópu. Við umsókn til Evrópuráðsins var gert ráð fyrir að öll löndin mundu meta sama námsefnið á tölvutæku formi en við undirbúningsvinnu kom í ljós að það mundi ekki henta og varð niðurstaðan sú að við hér við HA ákváðum að taka fyrir hjúkrun fyrir og eftir aðgerð (pre- and post op). Notað er námsefni á geisladiski sem samið var af hjúkrunarfræðingum við Brigham Young University, College of Nursing, Utah, og dreift er gegnum fyrirtækið Concept Media sem sérhæfir sig í námsefni á tölvutæku formi. Síðastliðinn vetur var námsefnið notað hjá nemendahópnum í námskeiðinu hjúkrun IV þar sem farið er í hjúkrun fyrir og eftir aðgerð. Of snemmt er að segja nokkuð til um niðurstöður en næsta vetur verður námsefnið einnig notað og mati á þekkingu nemendanna haldið áfram. Fyrir þá sem vilja kynna sér nánar verkefnið, þátttakendur og þjóðir þeirra sem og fylgjast með þróun verkefnisins er heimasíða verkefnisins: http://www.ecimn.man.ac.uk Akureyri, 30. júlí 1999 Sigríður Sía Jónsdóttir 278 Tímarit hjúkrunarfræðinga ■ 4. tbl. 75. árg. 1999
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.