Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.1999, Blaðsíða 50

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.1999, Blaðsíða 50
Vigdís ásamt Lillian Langinov hjúkrunardeildarstjóra á Presbyterian St. Lukes Hospital, Chicago, 1959. „Þér megið bara næstum því alveg gera ráð fyrir því“ Hjúkrunarnámið hóf Vigdís í febrúar 1953. En hvernig datt henni í hug að fara í hjúkrun? Hún segir að löngunin til að fara í hjúkrun hafi alltaf blundað í sér. „Ég veit ekki af hverju, það var enginn í fjölskyldunni eða í kringum hana sem hafði áhrif á það. Mamma var ekki hrifin af þessu, hélt að hjúkrun væri svo erfitt starf. Eitt haustið þegar ég kom heim úr sumarvinnunni var hún búin að ráða mig á símstöðina í Hafnarfirði. Þá var mjög erfitt að fá vinnu og ég var því mjög heppin. Við komumst að tvær vinkonur þar sem tvær stúlkur voru að fara á húsmæðraskóla til Noregs. Ég vann á símstöðinni í þrjú ár en losnaði aldrei við þá löngun að verða hjúkrunarkona. Einn góðan veðurdag ákvað ég að sækja um í Hjúkrunarkvennaskólanum og sjá hvort ég kæmist að. Ég var bráðlát, vildi helst komast að í hvelli, en nemendur voru þá teknir inn í ágúst og febrúar. Ég komst ekki að í ágúst en vonaðist til að verða tekin inn í næsta hóp í febrúar. Ákvað ég að fara og tala við frk. Sigríði Bachmann, forstöðukonu, og sagði hún mér að það væri búið að taka inn nemendur sem áttu að hefja nám í febrúar og að ég kæmist ekki að nema það yrðu einhver forföll. Ég varð mjög leið, hafði beðið heitt til Guðs að ég kæmist inn. Mér fannst að ef ég kæmist ekki að þarna ætti ég ekkert að vera að reyna aftur. Ég sagði því við frk. Bachmann á leiðinni út að ef ég kæmist ekki að næst myndi ég taka umsóknina til baka. Hún kallaði þá á eftir mér, þéraði mig auðvitað: „Ég held bara að ég reyni að taka yður inn í febrúar, ég held þér megið bara næstum því alveg gera ráð fyrir því.“ Ég komst svo að í febrúar, var ein af 16 nemendum." Vigdís segist vera svo lánsöm að henni hafi yfirleitt fundist allt skemmtilegt sem hún hafi tekið sér fyrir hendur. „Ég hef oft hugsað um hvað það er mikil guðsgjöf að fara alltaf í vinnuna, vera með væntingar og finnast gaman. Þessi nemaár voru alveg yndisleg. Við bjuggum á þriðju hæð á Landspítalanum, þrjár saman í herbergi. Ég veit ekki hvort hjúkrunarnemar í dag upplifa það sem mér fannst ég gera, dagiega ný verkefni og viðburðir til að tak- ast á við.“ Vigdís segir margar af þeim konum, sem voru stjórnendur í hjúkrunarstétt á þeim tíma, hafa verið miklar hugsjónakonur. Þær hafi e.t.v. verið stjórnsamar og kröfu- harðar en þá ekki síður við sjálfar sig, og að á þeim hafi hvílt mikil ábyrgð. „Það voru forréttindi að fá að starfa með þeim og finna þann kraft og eldmóð sem einkenndi störf þeirra. Á þessum árum var verklegi þátturinn miklu meiri en nú er. Við vorum fljótt settar á vaktir og var viðfangs- efnum úthlutað í samræmi við námsskrá, eða með öðrum orðum gerðar mismunandi kröfur til nemanna með tilliti til þess á hvaða ári þeir voru. Starfshópar inni á sjúkrahúsum voru miklu færri heldur en núna er og margir þeirra jafnvel alls ekki til. Mörg störf, sem hjúkrunarkonur og nemar unnu á þessum tíma, eru nú unnin af öðrum. Kosturinn við þetta var að meðferðin og umönnunin var á miklu færri höndum og það gerði tengsl og traust miklu auðveldari milli sjúklings og starfsmanns." Þegar Vigdís hafði verið í náminu í rúmt ár var beðið um tvo nema á Vífilsstaði og fór hún þangað ásamt skóla- systur sinni þar sem báðar voru ónæmar fyrir berklum. „Okkur fannst þetta mjög spennandi, ég er þó ein af þeim sem hef alltaf verið rög við að reyna eitthvað nýtt og kveið mikið fyrir að þurfa að gefa sprautur. Við vorum svo varla fyrr komnar á staðinn en við vorum beðnar um að gefa allar sprautur þar sem hjúkrunarkonurnar voru komnar með ofnæmi fyrir lyfjunum. Við fengum því góða kennslu og reynslu í að gefa sprautur!" Nemarnir fóru líka út á land og var Vigdís í 6 mánuði í Vestmannaeyjum. Þá vann hún um tíma á Kleppi. „Það var mjög skemmtilegt í Vestmannaeyjum og þar urðum við reynslunni ríkari. Við tókum á móti konum sem voru að fara að fæða, sjúklingum með alls konar sjúkdóma og alla vega slasaða. Öll almenn læknismeðferð fór fram á spítal- anum í Vestmannaeyjum og var þar því ótrúlega margt sem maður lærði að fást við. Á Kleppi bjuggum við nem- arnir í sér húsi í yndislegu umhverfi. Ég lærði mikið af veru minni þar. Þetta er eini tími ævi minnar sem ég hef eytt með geðsjúklingum og hefði ég gjarnan viljað vinna meira með þeim um dagana." Við vinnu beggja vegna Atlantsála Að loknu náminu hóf Vigdís störf á handlækningadeild. Landspítala og var þar í tvö ár. Þaðan lá leiðin til Banda- ríkjanna. „Maður gat fengið það sem kallaðist „exchange student visa“, fékk að vinna í tvö ár en varð að fara aftur til síns heimalands sem skyldi njóta góðs af.“ Hún sótti um að fara til Chicago og var þar í tæpt ár á St. Lukesspítala. Þá voru St. Lukes- og Þresbyterian-spítalarnir sameinaðir, byggður nýr og gefið nafnið Þresbyterian St. Lukes. Vigdís flutti á nýja spítalann ásamt öðrum starfsmönnum. „Ég gat valið um vinnu á ýmsum deildum, vann meðal annars á blandaðri deild, skurðdeild og lyfjadeild, gjörgæsludeild vöknun og fleiri deildum. Hver sjúklingur hafði sinn lækni 262 Tímarit hjúkrunarfræðinga ■ 4. tbl. 75. árg. 1999
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.