Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.1999, Page 15

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.1999, Page 15
til þess að sumar kvennanna með alvarlega vanlíðan séu klínískt þunglyndar. Há tíðni hugmynda um sjálfsmeiðingar í þessum hópi styður þær ályktanir erlendra rannsókna að nokkrar konur hugleiði, reyni eða fremji sjálfsvíg, þrátt fyrir að tíðni sjálfsvíga á fyrsta ári eftir barnsburð sé helmingi lægri en á öðrum þroskaskeiðum kvenna (Appleby og Turnbull, 1995; Appleby, 1991). Niðurstöðurnar eru áskor- un um aukna geðheilsuvernd. Hár en veginn stigafjöldi þriggja undirkvarða á streituprófi fyrir foreldra (PSI/SF) gefur til kynna að hætta sé á að börn mæðra, sem þjáðust samtímis af mikilli streitu og þunglyndi, verði fyrir illri meðferð (vanrækslu, höfnun, ofbeldi) skv. grein- um eftir Milgrom og McCloud (1996) og Abidin (1990). Abidin (1990) mælir með skjótum viðbrögðum fagfólks í tilvikum þar sem streita foreldra mælist um eða yfir 90% dreifingar á streituprófi, þar sem veruleg hætta sé á illri meðferð. Ekki er ólíklegt að þunglyndar og streittar mæður lendi í eins konar vítahring óværðar, streitu og þunglyndis, þar sem sýnt hefur verið bæði fram á samband óværðar ungbarns og streitu móður og einnig samband þunglyndis- einkenna móður og óværðar ungbarns (Milgrom og McCloud, 1996; Murray og fl., 1996; van den Boom, 1988; Thome, 1989). Ályktun um samvirkni þunglyndis og óværðar er studd af frásögnum 19 mæðra þar sem bati mæðranna eða aukinn hæfileiki þeirra til að lifa við vanlíðan var skýrður með því að vandamál hjá börnunum hefðu minnkað. Að mati kvennanna sinntu heilbrigðisstéttir ungbörnum yfirleitt vel þótt vanlíðan mæðranna hafi oftast ekki náð eyrum þeirra. Núverandi áherslur á ungbarnavernd í heilsugæslu geta verið ein af ástæðunum fyrir því að sam- bandi á milli vanlíðanar mæðra og óværðar ungbarna er ekki veitt nægileg athygli og að tíðir geðrænir kvillar mæðra eftir barnsburð fá ekki þá athygli sem þyrfti til að vera bæði börnum og mæðrum til heilla. Heilbrigðisþjónusta og önnur aðstoð Þær niðurstöður, að fáar íslenskar konur fái aðstoð frá fag- stéttum vegna vanlíðanar, gefa til kynna að íslenskar heil- brigðisstéttir leiti að, greini og meðhöndli þunglyndi og/eða aðra vanlíðan eftir fæðingu jafnsjaldan og erlend starfs- systkini (Mclntosh, 1993; Lloyd og Redman, 1992). í þessum heimildum kemur fram að konurnar leituðu sjaldan eftir aðstoð fagstétta, og er það í samræmi við lítið frumkvæði íslenskra kvenna við að leita eftir aðstoð fag- stétta. í fyrrgreindum rannsóknum og hjá Murray og fl. (1996) hefur skortur á frumkvæði kvenna við að leita sér aðstoðar vegna vanlíðanar og óværðar barns verið túlkuð á tvo vegu: 1. Skortur á frumkvæði við að leita sér aðstoðar er einkenni þunglyndis; 2. þunglyndar konur með erfið ungbörn eiga erfitt með að leita sér faglegrar aðstoðar vegna ríkjandi hugmynda í þjóðfélaginu um fyrir- myndarbörn. Þegar barn getur ekki uppfyllt vonir móður- innar um „eðlilega hegðun" getur það fyllt þær sektar- kennd vegna frammistöðu þeirra sem mæðra og fælt þær frá því að leita sér faglegrar aðstoðar. í heilbrigðisskýrslum heilsugæslustöðva hafa vanlíðan, óværð og áhættuþættir um þunglyndi að jafnaði ekki eða í mjög litlum mæli verið skráð. Þrátt fyrir að mælingar með ofangreindum kvörðum hafi staðfest tilvist þessara þátta og að foreldrar hafi staðfest réttmæti mælinganna fundust mjög takmarkaðar upplýsingar um þessa þætti í heilsu- farsskýrslum (Björg Skúladóttir og fl., 1996). Það vekur spurningu um hvort heilbrigðisstéttir greini vanlíðan mæðra og óværð ungbarna en skrái það ekki? Niðurstöður úr viðtölum þessarar rannsóknar benda hins vegar frekar til þess að vanlíðan mæðra sé sjaldan greind og að þær skorti frumkvæði til að bera líðan sína upp við heilbrigðis- stéttir eins og fram kemur í erlendum rannsóknum (Mclntosh, 1993; Lloyd og Redman, 1992). Þegar konur eru tregar til að leita aðstoðar hjá heilbrigðisstéttum og fagstéttir taka ekki frumkvæði í að leita kerfisbundið að þunglyndi og annarri vanlíðan, mætist framtaksleysi beggja aðila. Þetta leiðir til ómeðhöndlaðrar vanlíðanar hjá stórum hópi kvenna (Cox, 1989). Lýsingar kvennanna á ástæðum þess að þær leita ekki oftar en raun ber vitni til heilsugæslustöðva kunna að vekja efasemdir einstakra heilbrigðisstarfsmanna um réttmæti niðurstaðnanna. Því ber að taka fram að svörin endurspegla eingöngu skynjun mæðra.á því sem ábótavant er. Niður- stöðurnar eru því einhliða mat á geðheilsuverndarstarfi heilsugæslustöðva frá sjónarhóli skjólstæðinga en meta ekki raunverulegt geðheilsuverndarstarf sem einstakir starfs- menn og einstakar heilsugæslustöðvar inna af hendi. Til að fá gleggri mynd af geðheilsuverndarstarfi á íslandi þyrfti að kanna það frekar með öðrum rannsóknaraðferðum. Vísbendingar um meðferðarúrræði Skýringar kvenna á ástæðum vanlíðanar gefa til kynna að fyrri dæmi um þunglyndi sé algeng ástæða fyrir langvar- andi vanlíðan eftir barnsburð. Niðurstöður erlendra rann- sókna benda til sambands á milli fyrra þunglyndis (sem getur verið tengt eða ótengt barnsburði) og þunglyndis eftir barnsburð. Því ættu heilbrigðisstéttir að skrá sögu um þunglyndissjúkdóma í mæðraskýrslur og nýta þær upplýs- ingar í fyrirbyggjandi skyni eftir fæðingu (Wickberg og Hwang, 1997; Beck, 1996; Appleby og fl., 1994; Watson og fl., 1984; Garvey og fl., 1983). Samskiptaerfiðleikar við sína nánustu (maka, börn, aðstandendur) eru einnig algeng ástæða alvarlegrar vanlíðanar og rennir það stoð- um undir rannsóknaniðurstöður sem sýna samband á milli þunglyndis og samskipta- og sambúðarörðugleika (Boyce, 1994; Thome, 1992). Þessar niðurstöður benda til þess að samskipta- eða fjölskyldumeðferð geti verið mikilvæg fyrir þunglyndar mæður og fjölskyldur þeirra. Fyrir utan ýmsar viðurkenndar aðferðir við að meðhöndla þunglyndi benda niðurstöður til þess að virkari streitustjórnun í 231 Tímarit hjúkrunarfræðinga ■ 4. tbl. 75. árg. 1999

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.