Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.1999, Page 18
Styrkveitingar iððð
Stjórn vísindasjóðs Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga
úthlutaði styrkjum úr B-hluta vísindasjóðsins 10. júní í
samsæti I húsnæði félagsins. Að þessu sinni hlutu 9
hjúkrunarfræðingar styrki til 7 verkefna, alls að upphæð
1.570.000 kr. Hjúkrunarfræðingar, sem eiga aðild að
sjóðnum, geta sótt um styrki úr honum til að sinna fræði-
mennsku.
Sjóðsstjórn skipa Anna Lilja Gunnarsdóttir, formaður,
Guðrún Yrsa Ómarsdóttir, Halla Grétarsdóttir og Dagrún
Hálfdánardóttir.
Þeir sem hlutu styrki voru:
Anna Birna Jensdóttir o.fl.
Samanburður á starfsemi fimm daga og sjö daga
öldrunarlækningadeildar á öldrunarsviði SHR
400.000 krónur.
Ásta Snorradóttir, Rannveig Þöll Þórsdóttir
Könnun á þörf fyrir geðhjúkrunarráðgjöf 200.000
krónur.
Dórothea Bergs
Konur sem hugsa um eiginmenn með COPD:
Hvernig upplifa þær sín lífsgæði? 100.000 krónur.
Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, Sigríður Lóa Rúnarsdóttir
Samanburðarrannsókn á fræðslu til sjúklinga
sem fengið hafa kransæðastíflu 100.000 krónur.
Styrkþegar B-hluta vísindasjóðs 1999.
Margrét Björnsdóttir
Gæðastjórnun - Gæði frá sjónarhóli sjúklinga
300.000 krónur.
Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir
Aðlögun systkina barna með langvinnan astma-
sjúkdóm 300.000 krónur.
Vilborg Ingólfsdóttir
Könnun á umfangi hjúkrunarþjónustu sem
íslendingar, 95 ára og eldri, fá og hvaða aðra
heilbrigðis- og félagslega þjónustu svo og stuðning
þeir sem búa heima fá helstan frá aðstandendum
170.000 krónur.
Fékk styrk frá Rannsóknarráði íslands
Ingibjörg H. Elíasdóttir er fyrsti meistaraneminn í hjúkrun við námsbraut í hjúkrunarfræði sem
fær styrk úr rannsóknarnámssjóði Rannsóknarráðs íslands. Umsóknir um styrkina voru 78 en
38 fengu úthlutað. Ingibjörg fékk framfærslustyrk að upphæð 840 þúsund. Ingibjörg útskrifaðist
úr HSÍ 1975 og lauk námi í gjörgæsluhjúkrun við Ríkisspítalann í Osló 1979. Hún hóf
meistaranám haustið 1998. Rannsókn hennar er á sviði heilsuverndar starfsmanna og nefnist
„Sjálfstjórn í vinnuumhverfi, vellíðan og vanlíðan" og er markmiðið að athuga áhrif einstakra
þátta sjálfstjórnar og álags í vinnuumhverfi hjá báðum kynjum á vellíðan, kvíða og þunglyndi.
Leiðbeinendur eru dr. Rúnar Vilhjálmsson, prófessor, og dr. Guðrún Kristjánsdóttir, dósent.
234
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 4. tbl. 75. árg. 1999