Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.1999, Qupperneq 20

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.1999, Qupperneq 20
með uppköstum. Lotugræðgi dylst mun betur en lystar- stol, konan er hvorki áberandi grönn né feit, og hún felur uppköstin vandlega. Nærtækt er, þegar skýringa á orsökum átröskunar er leitað, að líta til félagslegs umhverfis. Frá fæðingu læra stúlkur að matarlyst sé ókvenleg að „aðlaðandi sé konan ánægð“ og að velgengni hennar og hamingja velti á innföllnum maga og ósýnilegum brjóstum og mjöðmum. Þannig útlit minnir vissulega fremur á karlmann en konu enda má segja að langt gengið lystarstol sé afskræming á fullþroska konu. Kvenleg einkenni eru afmáð og konan verður eins og óöruggt og ráðvillt barn sem lætur sig ekkert annað varða en eigin spegilmynd. Á því er ekki vafi að sjúkleg áhersla tískunnar á grannan líkama hefur áhrif á tíðni átröskunar en þó er varasöm einföldun að leita orsaka átröskunar eingöngu í ytra umhverfi. Kona sveltir sig ekki vegna tískunnar en hins vegar hefur félagslegt umhverfi áhrif á hvernig persónulegur vandi hennar brýst fram. En hvaða vandamál eru þess eðlis að þau taki á sig mynd átröskunar og af hverju frekar hjá konum en körlum? Hér vel ég að reifa hugmyndir um áhrif sambands móður og dóttur, en þó svo að konur með átröskun geti átt margt sameiginlegt þá eru þær hver annarri ólíkar. Um er að ræða samspil félagslegs umhverfis, samskipta innan fjölskyldu og persónuleika einstaklingsins og er misjafnt hvað ræður mestu hjá hverri og einni. Þess vegna er ekki hægt að alhæfa um orsakir átröskunar heldur þarf að gaumgæfa sögu hverrar og einnar. Þeir sem hafa mótað skilning minn á átröskun mest eru femíniskir sálgreinar sem stofnuðu The Women’s Therapy Centre í London fyrir rúmum 20 árum. Þeim fannst ýmis- legt vanta á eigin skilning og annars fagfólks á sérstökum vandamálum kvenna, ekki síst átröskun. Þeim kom saman um að til þess að skilja vandamál kvenna þyrfti að skilja mótun þeirra. í stað þess að heimfæra hugmyndir um mótun karlmanna yfir á konur, eins og Freud gerði, tóku þær að endurmeta kenningar sálgreiningar um mótun kvenna sem þeim fannst ófullnægjandi eða beinlínis rangar og á þeim skilningi byggja þær meðferðarvinnu sína. í anda viðfangstengslakenningar (object relations theory) horfa þær til fyrstu tengsla sem nýfætt barn myndar sem í langflestum tilvikum er við konu. Það hefur að þeirra mati afdrifaríkar afleiðingar fyrir stúlkubarn að móðirin er sama kyns og hún sjálf. Móðir á auðveldara með að samsama sig dóttur en syni en hún á að sama skapi erfiðara með að aðgreina sig frá dóttur og skynja hana sem sjálfstæðan einstakling með aðrar langanir og þarfir en hún. Því eiga mæðgur það til að festast í fari sem einkennir samskipti móður og nýfædds barns (Winnicott, 1965, bls. 37-56). Þau samskipti lýsa sér gjarnan í óvenju- miklu næmi móður fyrir þörfum nýfædda barnsins. Móðirin „veit" hvers barnið þarfnast, ekki vegna rökhugsunar eða Aquacel eru há-rakadrægar sáraumbúðir og henta á öll vessandi sár. AQUACEL Pharmaco Hörgatúni 2, 210 Garðabær Sími 535 7000 236 Tímarit hjúkrunarfræðinga • 4. tbl. 75. árg. 1999
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.