Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.1999, Side 32
íslensku fulltrúarnir vöktu
verðskuldaða athygli í bún-
ingum sínum. Hér eru þær
Ásta Möller, alþingismaður,
sem á sæti í stjórn ICN,
Herdís Sveinsdóttir,
formaður FÍH, og Aðalbjörg
Finnbogadóttir,
hjúkrunafræðingur FÍH, við
setningu ráðstefnunnar.
fræðingar frá Suður-Afríku kynntu hvernig hjúkrunarfræð-
ingar þar eru að móta nýja heilbrigðisstefnu og hvernig
þeim hefur tekist að leysa kynþáttaágreining innan samtaka
þeirra. (tilefni af 100 ára afmælinu hefur verið tekin saman
saga ICN sem var kynnt við þessi tímamót. Breskir
hjúkrunarfræðingar kynntu nýjar viðmiðunarreglur til að
þekkja og meta sársauka barna en reglurnar eru byggðar á
rannsókn sem var gerð á börnum á aldrinum 2-18 ára.
Reglurnar eiga að auðvelda hjúkrunarfræðingum að gera
sér grein fyrir hvað veldur sársauka hjá börnunum en þau
eru í mörgum tilfellum ófær um að lýsa hvernig þau finna til.
í tilefni afmælisársins var kynnt nýtt alþjóðlegt merki
hjúkrunar, hvítt hjarta. Það á að tákna umhyggju, þekkingu
og mannúð sem einkennir störf hjúkrunarfræðinga. Hvíti
liturinn hefur verið litur á hjúkrunarbúningum um heim allan
og tákn hreinleika. Hvíti liturinn er einnig grunnliturinn í öll-
um öðrum litum og táknar grundvallarreglu hjúkrunarfræð-
inga, að hjúkra skuli öllum án tillits til kynþáttar eða trúar-
bragða. Hjartað táknar mannúð, kærleika og umhyggju
fyrir öðrum.
Leikarinn Christopher Reeve, sem áður lék Superman
á hvíta tjaldinu, var verndari hundrað ára afmælisins en
hann hefur þurft mikla aðstoð hjúkrunarfræðinga vegna
veikinda sinna en hann lamaðist 42 ára að aldri er hann féll
af hestbaki 1995. Hann hefur lagt áherslu á hve hjúkrunar-
fræðingar hafi átt mikinn þátt í bata sínum og endur-
hæfingu og leggur áherslu á að hið sama gildi eflaust um
þær milljónir um heim allan sem njóti starfskrafta þeirra við
aðrar aðstæður. Reeve hefur síðan, eftir að hafa verið hetja
hvíta tjaldsins, orðið hetja raunveruleikans og berst nú fyrir
málefnum fatlaðra og stendur fyrir söfnun fjármuna til
rannsókna á mænuskaða og endurmyndun taugafrumna
en framfarir á því sviði gætu haft úrslitaáhrif fyrir hann í
framtíðinni og komið honum aftur á fætur. Hann er nú for-
maður American Paralysis Foundation (www.apacure.org).
Franski innanríkisráðherrann, Jean Pierre Chevenement,
sem var hætt kominn vegna hjartastopps í skurðaðgerð sl.
sumar, var einnig verndari afmælisins.
Breska konungsfjölskyldan lagði sitt af mörkum til að
gera hátíðarhöldin „konungleg". Hennar hátign, drottningin
af Englandi, bauð hjúkrunarfræðingum til móttöku og
Anna prinsessa ávarpaði ráðstefnugesti í lokin.
Að auki var ráðstefnugestum boðið í heimsóknir á
sjúkrahús, heilsugæslustöðvar og hjúkrunarheimili í
London og nágrenni.
Lokaathöfnin fór svo fram í Westminster Abbey að
viðstöddu miklu fjölmenni.
Hvað var að gerast í heiminum fyrir hundrað
árum?
Mohandas Ghandi var ungur laganemi í Suður-Afríku.
Sara Bernhardt lék Hamlet í leikhúsi Söru Bernhardt í
París.
Rannsóknir í læknavísindum leiddu í Ijós mismunandi
blóðflokka manna.
Nýja-Sjáland varð fyrsta ríkið til að veita konum
kosningarétt.
Vísindamaðurinn Martius Bijerinck uppgötvaði tilveru
veira.
11 stunda vinnudagur var lögleiddur í Frakklandi.
Lítt þekktur listamaður, Pablo Picasso, var að hefja
bláa tímabilið í listsköpun sinni.
248
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 4. tbl. 75. árg. 1999