Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.1999, Qupperneq 42

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.1999, Qupperneq 42
önnum kafnir við að gera það sem mest er aðkallandi, svo minni tími gefst til að taka eftir „smáatriðum" sem þessum. Hjúkrunarfræðingar verða að nota ICNP-kerfið og reyna með því að auka gæði hjúkrunar og skrá þau einkenni sem þeir taka eftir. Það er eina leiðin til að skrá það sem skiptir mestu máli í hjúkrun. Með því móti geta menn skráð athuganir sínar og eigin viðbrögð við þeim. Þetta er samspil tilfinninga og þekkingar." Og hún bætir við að hún skilji ekkert í þeim rannsakendum sem eru að berjast gegn ICNP. „Þó Florence Nightingale væri mér eflaust ekki alltaf sammála þá var það með skráningu sem hún bjargaði hundruðum mannslífa svo við erum ekki að gera neitt nýtt. En áhersla á skráningu þarf ekki að fela í sér minni samúð gegn skjólstæðingnum." „Við þurfum að gera meira en að lifa af erfiðar aðstæður“ Kirsten bendir á að við séum svo iánsöm að búa í þeim hluta heimsins þar sem friður ríkir. Hún rifjar upp ferð sína til Suður-Afríku þar sem hún heimsótti m.a. sjúkraskýli í Rúanda. Aðbúnaður var allur mjög lélegur. „Þetta var föstudagskvöld og ég spurði einn hjúkrunarfræðinginn af þeim sjö starfsmönnum sem þarna voru á vakt hvað þau byggjust við mörgum sjúklingum. Hún sagði að þau gerðu ráð fyrir að þurfa að búa um skotsár 15-20 sjúklinga. Ég man ég horfði á hana og hugsaði með mér að í Danmörku finnst okkur það hörmulegt að þurfa að sinna sjúklingi með skotsár einu sinni á ári og ég spurði: „Hvernig getið þið þetta?" Hún horfði á mig eins og hún skildi ekki spurninguna og ég man eflaust eftir svip hennar alla ævi er hún svaraði: „Við lifum þetta af.“ Og það er einmitt það sem hjúkrunarfræðingar heimsins hafa gert í hundrað ár. Þeir hafa þyrpst til staða þar sem mest þörf hefur verið fyrir þá og unnið af sannfæringu um mikilvægi hjúkrunar- innar, einhverri innri hvöt, og af þessu getum við hjúkrunar- fræðingar verið stoltir. Þeir vinna við aðstæður sem eru afar erfiðar, þar sem skortur er á lyfjum, sáraumbúðum, jafnvel vatni. Stundum eru aðstæður svo erfiðar að hjúkr- unarfræðingar geta ekki verið við hjúkrunarstörf nema í örfáa daga til að örmagnast ekki, en það koma nýir og leysa þá af. Nú er verið að sinna berklaveikum sjúklingum í fangelsum í Rússlandi og hjúkrunarfræðingar koma hvaðanæva úr heiminum. í hundrað ár hafa hjúkrunar- fræðingar heimsins tekist á við þau verkefni sem þeir hafa staðið frammi fyrir og lagt sitt af mörkum til að lina þján- ingar. En við sem erum svo lánsöm að búa á þeim stöðum jarðarinnar þar sem meiri friður ríkir eigum að vera tals- menn þess að betur sé búið að fólki við hjúkrunarstörf á þessum slóðum, það fái þau lyf og hjálpargögn sem það þarf til hjúkrunarstarfa og við eigum almennt að láta í okkur heyra varðandi aðbúnað fólks í þessum löndum." Tími okkar er á þrotum og Kirsten er að lokum spurð hver séu lokaorð hennar til hjúkrunarfræðinga framtíðar- innar. „Það verður að leggja mesta áherslu á aukin gæði hjúkrunar. Við verðum að leggja áherslu á hjúkrunarskrán- ingu því hún er nauðsynleg til að fá fjármagn til verkefna. Hjúkrunarfræðingar eiga að ganga uppréttir og vera stoltir af því sem þeir hafa afrekað, vera stoltir af þeirri grund- vallarþjónustu sem þeir hafa veitt árum og áratugum sarnan." 'téÍAA '[v’íðAv'^^luliðA á íslandi (FFÍ) Félag friðargæsluliða var stofnað 22. janúar 1999. í frétta- tilkynningu frá félaginu segir að allmargir íslendingar hafi á undanförnum áratugum tengst friðargæslu Sameinuðu þjóðanna og sambærilegum störfum á vegum NATO og ÖSE og hafi flestir starfað við heilbrigðisþjónustu eða löggæslu. Félagið bendir hjúkrunarfræðingum, sem hafa hug á að fara til friðargæslustarfa, á að hafa samband við stjórnarmeðlimi Félags friðargæsluliða þar sem þeir geti á ýmsan hátt liðsinnt þeim og fjölskyldum þeirra áður en starfið hefst, meðan friðargæsluliðar eru erlendis og eftir heimkomuna. Tilgangur Félags friðargæsluliða er að: * Efla kynni þeirra sem hafa gegnt friðargæslu eða sam- bærilegum störfum. * Kynna friðargæslu og friðarstörf og vera til ráðgjafar um þessi mál. * Gæta hagsmuna þeirra sem gegna eða hafa gegnt friðargæslu eða sambærilegum störfum. * Vinna með sambærilegum erlendum félögum. Á fyrsta aðalfundi félagsins, sem haldinn var 27. mars 1999, voru kjörnir í stjórn: Halldór Baldursson, læknir, formaður, netfang halldorba@isholf.is, Björn Halldórsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn, varafor- maður, netfang bh@rls.is, Stefán Alfreðsson, hjúkrunarfræðingur, ritari, netfang stalf@isholf.is, Erla K. Sigurgeirsdóttir, hjúkrunarfræðingur, gjaldkeri, s. 561 1345, Lars Hólm, meðstjórnandi, s. 557 2710. 254 Tímarit hjúkrunarfræðinga • 4. tbl. 75. árg. 1999
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.