Tímarit hjúkrunarfræðinga


Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.1999, Qupperneq 46

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.1999, Qupperneq 46
fram ákveðnir þættir og hver og einn þáttur fær ákveðið vægi. í töflunni hér á eftir eru taldir upp þættir HAC- starfs- matskerfisins. Þegar störfin eru metin fær hver þáttur starfsins stig í samræmi við þær kröfur sem gerðar eru til starfsins og með því að leggja stigin saman fæst heildar- mat á viðkomandi starfi samkvæmt starfsmatinu. Innan stofnananna, sem tóku þátt í tilraunaverkefninu, voru skipaðar 2 nefndir, stýrinefnd og starfsmatsnefnd. Hlutverk stýrinefndar var m.a. að hafa umsjón með gerð starfsmatsins innan stofnananna, aðlaga starfsmatskerfið, kynna starfsmatskerfið, velja fulltrúa í starfsmatsnefnd og gera tillögur að vægi þátta innan kerfisins. Hlutverk starfs- matsnefndar var að meta störfin út frá starfslýsingum. Hafa ber í huga í umræðu um kerfisbundið starfsmat að þó starfsmat hafi á sér yfirbragð hlutlægra vísinda þá liggja að baki niðurstöðum starfsmats margar huglægar ákvarðanir, t.d. um val á þáttum, skilgreiningar á þáttum, ákvarðanir um hlutfallslegt vægi þátta og ekki síst matið sjálft. Með starfsmati er þó reynt að koma böndum á hug- lægni við mat á innihaldi starfa og reynt er af fremsta megni að skilgreina forsendur fyrir mati á störfum og setja þær fram á skipulagðan hátt. Niðurstöður tilraunaverkefnisins á Ríkisspítölum Meðal þeirra starfsheita, sem metin voru á Ríkisspítölum, voru hjúkrunarfræðingar og hjúkrunardeildarstjórar. Bæði þessi starfsheiti komu mjög vel út úr þessu tilraunaverkefni um starfsmat, aðeins sérfræðilæknar og yfirlæknar raðast hærra. í töflunni hér á eftir er sýnt hvernig þau störf, sem metin voru á Ríkisspítölum, raðast innbyrðis út frá niðurstöðum stýrinefndar Ríkisspítala um vægi þátta: Starfsheiti / launaheiti Stigabil hjúkrunarritarar 301-350 býtibúr/ræstingar, starfsfólk í eldhúsi 351-400 læknaritarar, vaktmenn 401-450 rafvirkjar, vélfræðingar 451-500 sjúkraliðar 501-550 matarfræðingar 551-600 tæknifræðingar 601-650 sjúkraþjálfarar 651-700 hjúkrunarfræðingar, yfirverkfræðingur 701-750 hjúkrunardeildarstjórar 751-800 801-850 851-900 sérfræðilæknar, yfirlæknir 901-950 I skýrslunni er einnig sýnt hvernig störfin raðast inn- byrðis ef gengið er út frá því að vægi allra þátta sé jafnt. í umfjöllun stýrinefnda og starfsmatsnefnda í skýrslunni er að finna ýmsar athugasemdir er varða kerfið og til- raunaverkefnið í heild sinni. Bent var á að hugsanlega væru ákveðin störf, s.s. ýmis skrifstofu- og þjónustustörf, vanmetin í kerfinu og ýmislegt mætti laga bæði í kerfinu og í framkvæmd þess ef nota ætti kerfið sem grunn að launa- ákvörðunum starfsmanna. Skýrsla félagsmálaráðuneytisins um „Starfsmat gegn kynbundnum launamun" er fróðlegt rit fyrir alla sem vilja kynna sér aðferðafræði kerfisbundins starfsmats. í henni er mikið af upplýsingum sem án efa eiga eftir að gagnast bæði stéttarfélögum, atvinnurekendum og öðrum þeim aðilum er hyggjast nýta sér kerfisbundið starfsmat sem grunn að launaákvörðunum í framtíðinni. Námskeið um viðbrögð víð áföllum og áfallahjálp síðustu helgí októbermánaðar SÍysavarnafélagið Landsbjörg, landssamband björgunarsveita, stendur fyrir námskeiðum um áfallahjálp dagana 28. til 31. október næstkomandi. Dr. George S. Everly og dr. Jeffrey T. Mitchell kenna á fjórum tveggja daga námskeiðum. Fyrri tvo dagana munu þeir kenna saman á grunnnámskeiði um áfallahjálp og á námskeiði um áfallahjálp og börn. Seinni tvo dagana kenna þeir á tveimur framhaldsnámskeiðum, annars vegar verður framhaldsnámskeið um hefðbundna áfallahjálp, skipulagningu og framkvæmd úrvinnslufunda og hins vegar námskeið um maður-á-mann áfallahjálp. 4 Námskeiðin fara fram á ensku og eru haldin á Grandhótel Reykjavík, Sigtúni 38. Hvert námskeið kostar 20.000,- en séu tvö námskeið sótt kostar seinna námskeiðið 12.000,- krónur. Innifalið i námskeiðsgjöldum eru öll námskeiðs- gögn og kaffi og meðlæti tvisvar á dag ásamt fyrirlestri Jóhönnu O’Flaherty sem kemur sérstaklega hingað til lands vegna þessa, en hún er einn þekktasti fyrirlesari heims á sviði áfallahjálpar. Fyrirlestur hennar verður haldinn í lok síðasta námskeiðsdags, sunnudaginn 31. október. Skráning og allar frekari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Slysavarnafélagsins Landsbjargar í síma 570-5900. 258 Tímarit hjúkrunarfræðinga • 4. tbl. 75. árg. 1999
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.