Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.2006, Page 42
Vigdís Hallgrímsdóttir, vigdis@hjukrun.is
HVAÐ ER EFN?
"Whether in schools,
the workplace or
traditiona! health-
care settmgs, nurses
are at the forefront
of promoting good
EFN eru samtök hjúkrunarfræðinga í Evrópu. Samtökin voru stofnuð 1971 með það að
eiðarljósi að vera rödd hjúkrunarfræðinga og gæta hagsmuna þeirra innan Evrópu. I
dag er EFN málsvari yfir milljón hjúkrunarfræðinga í Evrópu. Aðild að EFN eiga 25 félög
hjúkrunarfræðinga frá löndum innan Evrópusambandsins auk Króatíu, Noregs, Islands og
Sviss. Fulltrúar aðildarfélaga hittast á aðalfundi tvisvar sinnum á ári. Þar eru mikilvæg málefni
rædd og ákvarðanir teknar. Stjórn EFN hittist auk þess tvisvar sinnum á ári og nefndarvinna
fer fram á milli aðalfunda.
í stjórn EFN sitja sjö fulltrúar aðildarfélaga; formaður, varaformaður, gjaldkeri og fjórir
meðstjórnendur. Næsta kjör til stjórnar EFN verður á aðalfundi samtakanna í október
2006.
40
Tímarit hjúkrunarfræðinga - 3. tbl. 82. árg. 2006