Morgunblaðið - 09.02.2017, Síða 40
40 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2017
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Hinn 2. febrúar síðastliðinn voru 40
ár liðin frá einum frægasta blaða-
mannafundi sem haldinn hefur verið
á Íslandi. Á fundinum gerði þýski
lögregluforinginn Karl Schütz grein
fyrir niðurstöðum rannsóknar sem
hann og íslenskir lögreglumenn
höfðu unnið á hvarfi Geirfinns Ein-
arssonar og Guðmundar Ein-
arssonar. Niðurstöður vinnu þeirra
varð grundvöllur saksóknar og
dóma í þessu frægasta sakamáli
seinni ára á Íslandi.
Höfundur þessarar greinar sat
blaðamannfundinn fyrir hönd Morg-
unblaðsins og rifjar hann upp á þess-
um tímamótum. Þetta er einn eft-
irminnilegasti fundurinn sem
höfundur hefur setið á löngum ferli.
Upphaflega var fundurinn boð-
aður 1. febrúar 1977 í sakadómi
Reykjavíkur sem þá var starfandi í
Borgartúni 7 í Reykjavík. Sakadóm-
ur annaðist bæði rannsóknir afbrota
og dæmdi í sakamálum. Síðar var
fyrirkomulaginu breytt og rann-
sóknir og dómsvald aðskilið.
Fundi frestað um einn dag
Síðan gerist það að fundinum er
frestað til 2. febrúar og engin skýr-
ing var gefin á því. Síðar uppgötvuðu
menn að sama dag, árið áður, það er
2. febrúar 1976, urðu heitar umræð-
ur á Alþingi Íslendinga um meint
fjárhagsleg tengsl Framsókn-
arflokksins við veitingahúsið Klúbb-
inn. Kveikjan var m.a. grein í dag-
blaðinu Vísi þar sem ráðuneyti
dómsmála var sakað um að hefta
rannsókn Geirsfinnsmálsins. Sig-
hvatur Björgvinsson hóf umræðuna
en Ólafur Jóhannesson svaraði, en
hann var þá dómsmálaráðherra. Ef
menn vilja kynna sér betur þessar
umræður er ítarlega sagt frá þeim í
Morgunblaðinu 3. febrúar 1976.
Blaðið má nálgast á timarit.is.
Við umræðurnar sagði Ólafur Jó-
hannesson þessa eftirminnilegu
setningu. „Nú, ég hef nú ekki ætlað
mér að nota þennan dag til þess að
skjóta á þúfutittlinga.“ Var hann
væntanlega að vísa til þess að 2.
febrúar 1967 lést Guðbjartur sonur
Ólafs eftir erfið veikindi, aðeins 19
ára gamall. Var það að undirlagi
Ólafs að blaðamannfundinum var
frestað um einn dag? Vildi hann að
niðurstaða málsins yrði birt 2. febr-
úar? Margir voru þeirrar skoðunar
en það fékkst aldrei staðfest.
En snúum okkur á blaðamanna-
fundinum. Hann hófst síðdegis í
fundarsal sakadóms í Borgartúni 7.
Gögnum úr málinu hafði verið komið
fyrir upp um alla veggi. Þá var hin
fræga stytta Leirfinnur á fund-
arborðinu. Væntanlega hefur fram-
kvæmd fundarins verið eins og tíðk-
aðist í Vestur-Þýskalandi en
íslenskir blaðamenn höfðu ekki áður
setið fund með svona „útlensku“ yf-
irbragði. Viðstaddir auk Karl Schütz
voru Halldór Þorbjörnsson yf-
irsakadómari, sakadómsfulltrúar,
rannsóknarlögreglumenn og aðrir
þeir sem að rannsókninni höfðu
komið. Karl Schütz hafði orðið á
fundinum. Hann fór yfir málið og
talaði hægt og rólega á þýsku. Pétur
Eggerts sendiherra túlkaði yfir á ís-
lensku. Blaðamannafundurinn var
mjög langur og stóð í tvær og hálfa
klukkustund. Á fundinum fengu
blaðamenn ýmis gögn afhent, svo
sem myndir af þeim einstaklingum
sem voru viðriðnir málið. Blaða-
mannafundurinn hófst klukkan 17
og lauk ekki fyrr en um klukkan
19.30. Blaðamenn þurftu því að hafa
snarar hendur til að gera efni fund-
arins skil í dagblöðunum sem komu
út daginn eftir.
Ítarlega var sagt frá fundinum í
Morgunblaðinu 3. febrúar.
Í frétt á baksíðu var niðurstaða
rannsóknarinnar samandregin:
„Rannsókn Geirfinnsmálsins er lok-
ið og málið upplýst. Liggja fyrir
játningar þriggja manna, þeirra
Sævars Marinós Ciesielskis, Krist-
jáns Viðars Viðarssonar og Guðjóns
Skarphéðinssonar um að þeir hafi
orðið Geirfinni að bana í Drátt-
arbraut Keflavíkur að kvöldi 19. nóv-
ember 1974. Þeir Sævar og Kristján
hafa áður viðurkennt að hafa orðið
Guðmundi Einarssyni að bana í
Hafnarfirði í janúar 1974. Á fund-
inum upplýsti þýzki sakamála-
sérfræðingurinn Karl Schütz að
Geirfinnur hefði hitt Sævar og
Kristján á dansleik í veitingahúsinu
Klúbbnum að kvöldi sunnudagsins
17. nóvember 1974. Tóku Geirfinnur
og Sævar tal saman og urðu ásáttir
um að eiga viðskipti með spíra.
Ákváðu þeir stefnumót, sem varð í
Dráttarbraut Keflavíkur að kvöldi
19. nóvember. Þar kom í ljós að fyr-
irhuguð viðskipti byggðust á mis-
skilningi Sævars og Geirfinns. Kom
til átaka sem lauk á þann veg, að
Geirfinnur beið bana.“
Málið enn til umfjöllunar
Síðan þessi blaðamannafundur
var haldinn eru liðin 40 ár og margt
hefur gerst síðan í þessu marg-
slungna og sögufræga sakamáli. Nú
er að störfum nefnd sem skoðar end-
urupptöku málsins undir forystu
Björns L. Bergssonar. Þá hefur
Davíð Þór Björgvinsson verið settur
saksóknari í Guðmundar- og Geir-
finnsmálinu.
Er sannleikurinn kominn fram í
þessu ótrúlega máli, á hann eftir
koma fram eða kemur hann aldrei
fram? Því er ósvarað.
Sögulegur blaðamannafundur
Hinn 2. febrúar voru liðin 40 ár frá frægum blaðamannafundi þýska sakamálasérfræðingsins Karl
Schütz Skýrði frá játningum í Guðmundar- og Geirfinnsmálum sem urðu síðar til sakfellingar
Morgunblaðið/Friðþjófur Helgason
Blaðamannafundurinn 1977 Við borðsendann er þýski sakamálasérfræðingurinn Karl Schütz og við hlið hans er Pétur Eggerz sendiherra, sem var túlk-
ur. Fyrir miðri mynd má sjá greinarhöfund, blaðamann Morgunblaðsins, ræða við Halldór Þorbjörnsson yfirsakadómara. Gögn málsins eru á veggjum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Héraðsdómur 2016 Fjallað um endurupptöku Geirfinnsmálsins. Erla
Bolladóttir ásamt tökumanni, en BBC er að gera mynd um málið.
Geirfinnur
Einarsson
Guðmundur
Einarsson
Sjá síðu 42
„Ég vil sérstaklega tjá þeim starfs-
hópi, sem unnið hefur að þessum
málum, þakklæti mitt,“ sagði Ólafur
Jóhannesson, þáverandi dóms-
málaráðherra, í samtali við Morg-
unblaðið sem birtist daginn eftir
blaðamannafundinn.
„Ég tel þá hafa unnið ákaflega vel
og að martröð sé létt af þjóðinni, því
að málið er nú þannig upplýst að það
þykir nú hæft til sendingar til rík-
issaksóknara og þá væntanlega til
ákæru. Það verður svo dómstólanna
að segja sitt,“ sagði Ólafur.
Ráðherrann var gagnrýndur
nokkuð fyrir að taka svona sterkt til
orða áður en málið hafði farið í gegn-
um dómstóla landsins.
„Það hefði verið óskemmtilegt, ef
málið hefði ekki upplýstst. Þá hefðu
að minnsta kosti fjórir menn og
kannski fleiri verið tortryggðir allt
sitt líf, legið undir
grun. Það er ljót-
ur leikur. En mér
er efst í huga
þakklæti til
mannanna, sem
unnið hafa að
þessu og sér-
staklega Karls
Schütz, þýzka
sakamála-
sérfræðingsins,“
sagði ráðherrann einnig í samtalinu.
„Strax og hann hvarf eða mjög
skömmu á eftir varð mér ljóst, hver
afdrif hans höfðu orðið,“ sagði
Guðný Sigurðardóttir, eiginkona
Geirfinns Einarssonar, í viðtali við
Morgunblaðið eftir fundinn.
„Þá strax byrjaði sorgin, sem hef-
ur verið þrúgandi þessi tvö ár sem
liðin eru, jafnframt því stríði að
verja börnin fyrir þeirri sorpblaða-
mennsku, sem átt hefur sér stað,
þegar borið var á manninn minn að
hann hefði jafnvel staðið í einhverju
glæpsamlegu athæfi, svo sem smygli
og spírasölu. Meðal annars vegna
þessa, fagna ég niðurstöðum rann-
sóknarinnar, sem hreinsa Geirfinn
af öllum slíkum gróusögum.“
Guðný Sigurðardóttir tók sér-
staklega fram, er Morgunblaðið ósk-
aði eftir viðtali við hana, að það væri
eina blaðið sem hún vildi eða myndi
ræða við „vegna réttlátra skrifa um
málið“. Hún sagði: „Einhver erf-
iðasti hjallinn, sem ég hef þurft að
ganga í gegnum og hefur reynzt mér
erfiðastur, eru sorpblaðaskrifin um
hvarf Geirfinns, þar sem blöð hafa
ekki skirrzt við að verzla með tilfinn-
ingar annarra til þess eins að selja
blaðið.“
„Martröð létt af þjóðinni“
Eiginkona Geirfinns fagnaði niðurstöðu rannsóknarinnar
Ólafur
Jóhannesson
Laugavegi 53 | Sími 552 3737 | Opið mán.-fös. 10-18, lau. 10-17
DIMMALIMM
Nýjar vörur
Vor/Sumar
2017
Útsöluvörur
50-70% afsl.
Kjóll kr 5.795
DimmalimmReykjavik.is