Morgunblaðið - 09.02.2017, Síða 46
46 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2017
SVIÐSLJÓS
Atli Vigfússon
laxam@simnet.is
„Það er mikil umferð hérna og
fleiri farþegar en í janúar í fyrra.
Síðasta ár var stærsta ár í sögu
Húsavíkurflugvallar og þá fluttum
við 20.341 farþega. Nokkur hundr-
uð farþegar töpuðust vegna þoku
og dimmviðris, en það stendur til
bóta því það á að fara að gefa út
nýtt aðflugskort sem er með lægra
lágmarki,“ segir Guðmundur Karl
Sigríðarson flugvallarstjóri, sem nú
er búinn að starfa á Húsavík-
urflugvelli í nær 40 ár.
„Það er í gangi áhættumat vegna
þess að Flugfélagið Ernir var að fá
sína fyrstu vél sem á að geta flogið
þetta aðflug. Um er að ræða GPS-
tæki sem er mjög dýrt og er stað-
sett í flugvélinni sjálfri,“ segir Guð-
mundur Karl, sem er mjög ánægð-
ur með það að þetta skuli loksins
vera að verða að veruleika. Hann
segir að þessi búnaður sé vænt-
anlegur í allar vélar félagsins, en
búnaðurinn er settur í flugvélarnar
í Danmörku og munu þær fara
þangað hver af annarri, alls fjórar
vélar.
„Það er alveg magnað hvað
Flugfélagið Ernir hefur þjónað
okkur vel og það er almenn ánægja
hér á svæðinu með þjónustuna. Í
vetur hefur þetta gengið alveg eftir
vonum og það eru ekki margir dag-
ar sem hafa fallið úr,“ segir Guð-
mundur Karl og hlakkar til þess
þegar ekki þarf að aka farþegum
til Akureyrar þegar þoka og dimm-
viðri hamla flugi, og hægt verður
að lenda á Húsavík þó að skyggnið
sé ekki gott. Þegar vel viðrar tekur
ferðin milli Húsavíkur og Reykja-
víkur einungis 45-50 mínútur, en 19
sæta vélar félagsins henta ágæt-
lega í þetta flug.
Flugmiðar á magnafslætti
„Ernir fóru að fljúga hingað 15.
apríl 2012 og það ár voru 6.444 far-
þegar, þannig að fjölgunin er mikil
á milli ára. Félagið er mjög ánægt
með þetta flug því farþegafjöldinn
er mun meiri en reiknað var með í
upphafi. Áætlunarflug til Húsavík-
ur hafði legið niðri frá árinu 2000,
en þá hætti Mýflug sem var síðast
með fastar ferðir á völlinn. Við vor-
um ákveðinn hópur sem var búinn
að ýta á ýmsa aðila til þess að hefja
flug að nýju, sem svo tókst þegar
flugfélagið Ernir fékkst til að prófa
þetta. Þetta voru einstaklingar á
svæðinu, Atvinnuþróunarfélag Þing-
eyinga og fleiri sem byrjuðu
þessa vinnu með góðum árangri
eins og ljóst er orðið,“ segir Guð-
mundur Karl, sem er líka mjög
ánægður með Framsýn stéttar-
félag, sem hefur gert kraftaverk
fyrir félagsmenn sína með miða-
kaupum á magnafslætti. Félagar
í Framsýn fá ferðir sínar ódýrari
vegna þessa og þetta hvetur fólk til
þess að ferðast. Guðmundur segir að
fleiri stéttarfélög séu að koma inn í
þetta og nefnir í því sambandi Kenn-
arasamband Íslands og BHMR.
Miklar framkvæmir sl. sumar
Í sumar voru miklar framkvæmdir
á Húsavíkurflugvelli og var skipt um
slitlag og ljósabúnað. Þetta var
stærsta verk Isavia á landsbyggðinni
í sumar og segir Guðmundur að
þetta sé allt annað líf og búið sé að
ná miklum áfanga. Þá segir hann að
búið sé að kaupa nýjan snjóblásara
og gamla blásaranum hafi verið lagt
enda hafi hann verið orðinn 64 ára.
Húsið sem hýsir flugturninn og
farþegasalinn er orðið 32 ára, en það
lítur mjög vel út enda hefur alltaf
verið hugsað vel um það. Hins vegar
kemur, að sögn Guðmundar Karls,
að því að húsið þurfi viðhald, en
hann segir enn fremur að allir séu
mjög sáttir við aðstöðuna á Húsavík-
urflugvelli.
Árin á flugvellinum orðin mörg
Guðmundur Karl er enginn ný-
græðingur í starfi. Hans fyrsta að-
koma að flugvellinum var 1978 þegar
hann byrjaði sem hlaðmaður í auka-
starfi hjá Flugfélagi Íslands. 1980
var hann ráðinn starfsmaður Flug-
málastjórnar, sem í dag heitir Isavia.
Hann starfaði þar til ársins 1999 og
fluttist þá til Vegagerðar ríkisins
og sá þá m.a. um flugvöllinn. Þegar
flugið hófst að nýju réði hann sig
hjá Erni og var hjá þeim til 2015 er
Isavia tók aftur við flugvellinum. Í
dag er Guðmundur Karl flugvall-
arstjóri á staðnum.
Framtíð í flugi til Húsavíkur
Á þessu ári eru liðin 60 ár frá því
að fyrsta flugvélin lenti á Húsa-
víkurflugvelli. Það var Gullfaxi sem
lenti 1. desember 1957 á vellinum
og þar með hófst áætlunarflug til
Húsavíkur. Guðmundur Karl segist
vera klár á því að það séu ekki
mörg ár í að stærri vélar fari um
völlinn og farþegum muni fjölga
mikið ef að líkum lætur. Hann telur
að Vaðlaheiðargöng muni ekki
verða ógn við flugið og þessi sam-
göngumannvirki í sýslunni muni
styðja hvort annað.
„Ég hef ólýsanlega mikinn áhuga
á flugi,“ segir hann brosandi.
„Flugið er alltaf skemmtilegt og ég
á margar góðar minningar úr þessu
starfi. Það var heillandi þegar
áburðarflugið var hérna og þá flaug
gamli Páll Sveinsson yfir þing-
eyskar heiðar og sanda. Þetta voru
góðir menn sem hér voru í þá daga
og það myndaðist gott samfélag í
kringum þetta,“ segir Guðmundur
Karl Sigríðarson flugvallarstjóri,
sem er mjög bjartsýnn á framtíð
farþegaflugs til Húsavíkur.
Síðasta ár það stærsta í 60 ár
Mikil aukning í farþegafluginu til Húsavíkur Nýr aðflugsbúnaður í vélum Ernis skiptir sköpum
60 ár frá fyrsta flugi til Húsavíkur Flugvallarstjórinn hefur staðið vaktina í bráðum 40 ár
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Flugvallarstjórinn Guðmundur Karl Sigríðarson hefur starfað á Húsavíkurflugvelli í bráðum fjörutíu ár.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Flugmenn Þeir voru kampakátir í fyrsta flugi Ernis til Húsavíkur sumarið
2012, Hálfdán Ingólfsson flugstjóri og Jónas Guðmundsson flugmaður.
Árið 1955 hófst bygging flug-
vallar í Aðaldal, vestan Laxár.
Flugbrautin var í fyrstu
fremur stutt og ófullkomin, en
var síðan lengd og endurbætt.
Lengi var farþegaskýli og önn-
ur aðstaða mjög ófullnægjandi,
en batnaði mjög með byggingu
nýs flugstöðvarhúss 1984, en
flatarmál þess er 483 fermetr-
ar.
Húsið er ein hæð og flug-
turn. Biðsalur er rúmgóður og
bjartur og góð aðstaða er fyrir
skrifstofur, bílageymslu og af-
greiðslu.
Framkvæmdir
hófust 1955
FLUGVÖLLUR Í AÐALDAL
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Samgöngur Flugvöllurinn aftur
kominn í mikla notkun.
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Húsavík Hörður Guðmundsson, framkvæmdastjóri Ernis, lengst til hægri
ásamt Jónínu Guðmundsdóttur, eiginkonu sinni, Ögmundi Jónassyni, þáv.
samgönguráðherra, Ragnhildi Hjaltadóttur ráðuneytisstjóra og Kristjáni L.
Möller, fv. þingmanni Norðausturkjördæmis, á flugvellinum 2012.
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Sindragata 12c | Ísafirði | Sími 456 1300 | smidjan@velsmidjan.is
Frábær smurefni sem einangra, verja
og koma í veg fyrir tæringu eins og
verkfæra o rafma nsvara.
100% eins árs RAKAVÖRN