Morgunblaðið - 09.02.2017, Page 57
UMRÆÐAN 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2017
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
TAKK FYRIR TRAUSTIÐ
Vínbúðin fékk hæstu einkunn í flokki smávöruverslana frá ánægðum
viðskiptavinum og var í þriðja sæti yfir öll fyrirtæki í Íslensku ánægjuvoginni.
Starfsfólk í 50 Vínbúðum víðsvegar um landið er stolt af árangrinum
og þakkar traustið. Við erum staðráðin í að halda áfram að gera okkar
besta í þjónustu og samfélagslegri ábyrgð.
VIÐSKIPTAVINIR OKKAR GÁFU VÍNBÚÐINNI TOPPEINKUNN
Nú er sú sprengja
sem ríkisstjórn Jó-
hönnu Sigurðardóttur
og Steingríms J. Sig-
fússonar kokkaði um
árið sprungin. Þetta
fólk sem jarmað hefur
alla sína hundstíð um
jöfnuð allra lands-
manna ákvað að fella
niður skattaafslátt til
sjómanna. Ekki gerðu
þau skötuhjú hins vegar tilraun til
að ná þeim sköttum sem farmenn
hjá íslensku skipafélögunum greiða
til Færeyja skiluðu sér inn í ís-
lenskt samfélag. Farmenn á kaup-
skipum íslensku útgerðanna greiða
enga skatta til íslensks samfélags
þó þeir séu með lögheimili á Íslandi
og njóti allrar samfélagsþjónustu til
jafns við aðra sem greiða þó fulla
skatta á Íslandi. Sjómannaafslátt-
urinn var veittur þeim aðilum sem
lögskráðir voru á sjó og var ákveðin
upphæð fyrir hvern lögskráning-
ardag. Jóhönnu og Steingrími sem
eiga „heiðurinn“ af því að fella úr
gildi þetta ójafnræði milli sjómanna
og landkrabba láðist hins vegar að
fella úr gildi á sama tíma ójafnræði
milli almennings annars vegar og
embættismanna ásamt litlum sér-
útvöldum hópum eins og flugliðum
hins vegar. Síðast þegar sjómenn
nutu sjómannafsláttar nam fjárhæð
þeirra innan við eitt þúsund krón-
um fyrir hvern lögskráningardag.
Ferðadagpeningar geta hins vegar
numið allt að 50.000 fyrir hvern
ferðadag þeirra sem fá þá greidda.
Lögum samkvæmt eru þeir frá-
dráttarbærir frá tekjuskattstofni en
aðeins að því leyti sem þeir eru
nýttir til greiðslu ferðakostnaðar á
vegum vinnuveitanda. Núverandi
ríkisskattstjóri hefur staðið sig af-
burðavel í að tryggja embætt-
ismönnum og flugliðum í millilanda-
flugi algjöra friðhelgi við að svíkja
undan skatti mismun fenginna dag-
peninga og raunverulegs ferða-
kostnaðar. Ríkisskattstjóri, sem á
þó að hafa það starf með höndum
að tryggja að skattgreiðendur telji
rétt fram og greiði skatta í sam-
ræmi við það, hefur sem sagt lagst
á árarnar með umræddum skatt-
svikurum til að tryggja að þeir
haldi ránsfeng sínum óskertum.
Það gerir hann með því að gera
ekki kröfu um að þeir sem fá
greidda dagpeninga sanni að það
sem þeir færa til frádráttar sé að
sömu fjárhæð og varið er til
greiðslu ferðakostnaðar. Reyndar
gerir hann kröfu um að aðeins að-
ilar í eigin rekstri sanni útgjöld sín,
sem verður að teljast verulega
vafasamt sé litið til jafnræðisreglu.
Núverandi ríkisskattstjóri er eng-
inn eftirbátur forvera sinna hvað
þessa hluti varðar. Skattrannsókn-
arstjóri hefur heldur ekki séð
ástæðu til að taka á þessu misferli
en kýs þess í stað að láta starfs-
menn sína eltast við fé í felum á
suðrænum slóðum erlendis sem
væntanlega er svo vel falið að jafn-
vel þefnæmustu kommahundar
gætu ekki snuðrað það uppi. Vænt-
anlega njóta starfs-
menn hennar þá skatt-
svikinna dagpeninga á
ferðum sínum í þess-
um erindagjörðum þó
þar sé tæplega hægt
að hafa upp á upp-
hæðum sem nemur svo
mikið sem hálfbaun í
samanburði við þær
upphæðir sem emb-
ættismanna- og flugli-
ðaelítan svíkur undan
með þessum hætti. Í
stað þess að gera
kröfu um að fá sjómannaafsláttinn í
gildi aftur ættu sjómenn að beina
þeim kröfum að viðsemjendum sín-
um að fá greidda ferðadagpeninga
fyrir hvern lögskráðan dag en þar
sem ríkisskattstjóri hefur nú þegar
lagt blessun sína yfir að ákveðnir
hópar fái óáreittir að svíkja þessar
greiðslur undan skatti ættu sjó-
menn að komast upp með það einn-
ig á sama hátt. Á móti gætu þeir
gefið örlítið eftir af skiptaprósent-
unni, sem öll er tekjuskattskyld og
því ekki eins verðmæt í launa-
umslaginu. En hvers vegna skyldu
ríkisskattstjóri og skattrannsókn-
arstjóri ekki sinna embættis-
skyldum sínum í að uppræta þenn-
an þjófnað í stað þess að styðja
svindlarana? Það er vel þekkt að
jafnvel þó gisting og fæði sé greitt
fyrir þingmenn og embættismenn á
ferðalögum þá þiggja þeir jafn-
framt fulla dagpeninga sem oftar
en ekki eru verulega rangt fram
taldir. Hvaða ferðakostnað bera
flugliðar á ferðum sínum? Fyrir ut-
an það þá eru flugliðar ekki utan
venjulegs vinnustaðar þegar þeir
eru í umræddum ferðum. Það
skyldi þó ekki vera að ríkisskatt-
stjóri sjálfur njóti einhverra vafa-
samra hlunninda eins og skattsvik-
inna ferðadagpeninga? Og hvað
með yfirmann ríkisskattstjóra, fjár-
málaráðherrann? Hvar í flokki sem
hann hefur verið hverju sinni hefur
hann ekki verið mjög ræðinn hvað
þessa hluti snertir.
Eftir Örn
Gunnlaugsson »Nær væri að semja
um dagpeninga
frekar en að endurvekja
sjómannaafsláttinn. Þá
má svíkja undan skatti á
sama hátt og flugliðar
og embættismenn gera.
Örn Gunnlaugsson
Höfundur er atvinnurekandi.
Sjómannaafslátt eða skattsvikna dagpeninga?
Atvinnublað
alla laugardaga
Sendu pöntun á augl@mbl.is eða
hafðu samband í síma 569-1100
Allar auglýsingar birtast bæði í
Mogganum og ámbl.is
ER ATVINNUAUGLÝSINGIN
ÞÍN Á BESTA STAÐ?