Morgunblaðið - 09.02.2017, Page 83

Morgunblaðið - 09.02.2017, Page 83
MINNINGAR 83 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2017 Minn kæri vinur Eiður er lát- inn. Það var mikið áfall þegar sonur hans Halli hringdi til mín með þessar fréttir. Við Eiður höfðum talað saman á gamlárs- kvöld eins og ævinlega, en það var fastur siður okkar að hringja um tólfleytið. Hann hress að vanda. Við Eiður kynntumst í skáta- hreyfingunni sem ungir menn. Eiður þá 15 ára og ég 18 ára og vorum við frá þeim tíma ætíð bestu vinir. Eiður var alinn upp af ein- stæðri móður sem seldi verka- mönnum fæði. Hann hafði því ekki úr miklu að spila á þeim tíma. Faðir hans hafði látist þeg- ar Eiður var 10 ára að mig minnir. Þar sem Eiður var mjög vel gefinn var honum umhugað um að menntast. Hann fór í Mennta- skólann í Reykjavík, þar sem hann kynntist góðum vinum sem áttu eftir að fylgja honum alla ævi. Síðar nam hann stjórnmála- fræði í Bandaríkjunum. Sem vin- ur Eiðs var ég svo lánsamur að kynnast vinum hans líka og var það mér til mikils happs. Einn vina Eiðs var Pétur Axel Jónsson, sonur Jóns Axel Péturs- sonar, bankastjóra Landsbank- ans. Jón Axel reyndist okkur vel og gerðist velgjörðarmaður okk- ar Eiðs. Eftir að Eiður varð fullorðinn vann hann hin merkustu störf ætíð með þeirra alúð og um- hyggju sem einkenndi hann. Það er of langt mál að telja upp öll störf sem Eiður leysti af hendi en þau voru t.d. sjónvarpsmaður, ráðherra og margfaldur sendi- herra. Þrátt fyrir sínar annir brást aldrei að Eiður hringdi í mig og við heimsóttum Jón Axel ætíð á aðfangadag allt þar til hann lést. Svo tryggur var Eiður vinum sín- um. Eiður vissi að mig langaði að einnig að læra og hann var mér alltaf innan handar ef ég þurfti aðstoð og hvatti mig til dáða. Hann lét vini sína kenna mér fyr- ir gagnfræðaprófið. Eiður var alltaf sá sem hægt var að reiða sig á. Eiður bar sennilega traust til mín þar sem hann bað mig að kenna tveim börnum sínum að aka bíl og var það mér ánægja. Eiður kynntist Eygló Haralds- dóttur, þá bæði kornung, og hún var honum besta eiginkona sem nokkur getur óskað sér. Við vorum í skátaflokki sem nefndist Refir og þrátt fyrir hans miklu annir alltaf hafði hann tíma til að sinna þeim hópi vina sinna og gegndi hann trúnaðarstörfum fyrir skátahreyfinguna um skeið. Ábyrgðarfullur var hann með eindæmum og þegar við t.d. vor- um að þvælast um sveitir Suður- lands og bíllinn bilaði, sem gerð- ist nokkrum sinnum, var Eiður ekki í rónni fyrr en hann gat látið vita að hann yrði seinn heim. Nú þegar Eiður er allur og þegar Halli hringdi í mig varð mér svo mikið um að ég gleymdi að votta samúð mína, en sagði að- eins nú fá þau Eygló að vera sam- an á ný. Ég samhryggist innilega börn- um hans sem ég hef þekkt frá fæðingu og öllum ættingjum og vinum. Blessuð sé minning Eiðs. Baldur Oddsson. Vinur minn Eiður Guðnason var sannur eðalkrati sem alla tíð bar loga gamla Alþýðuflokksins í sálu sinni. Hann barðist alla tíð af einurð fyrir sterku velferðarsamfélagi en þreyttist aldrei á að prédika að hin hliðin á klassískri jafnað- arstefnu var sterkt og heilbrigt atvinnulíf. Sú arfleifð sígildrar jafnaðarstefnu einkenndi einmitt Samfylkinguna fyrsta áratuginn þegar hún varð stærsti flokkur þjóðarinnar og naut ráða, reynslu og atfylgis manna eins og Eiðs. Eiður var til æviloka í þeim til- tölulega þrönga hópi sem ég leit- aði jafnan ráða hjá í flóknum póli- tískum stöðum. Í júní 1993 varð ég arftaki hans sem umhverfis- ráðherra þegar hann hvarf úr virkum stjórnmálum og við tók glæsilegur ferill í utanríkis- þjónustunni. Á þeim örstutta tíma sem til stefnu var setti hann mig af mikilli kostgæfni inn í vandasömustu mál ráðuneytisins, varaði mig við torfærum fram undan og sýndi mér einstaka hlýju og örlæti. Löngu síðar hvatti hann mig eindregið til að verða utanríkisráðherra og jós þá ótæpilega úr djúpum sjóðum reynslu sinnar. Á erfiðum dögum bankahrunsins þegar ég var í hópi fjögurra ráðherra sem stýrðu landinu um örmjótt ein- stigi var hann trúnaðarmaður minn. Síðar komst ég að því að póstar millum okkar voru mikil- vægt gagn rannsóknarnefndar Alþingis við að búa til tímalínu at- burðarásar í hraðskák nokkurra örlagaríkustu daganna. Ég naut þess að Eiður var vin- ur foreldra minna beggja úr hreyfingum frímúrara og skáta. Uppi á vegg yfir skrifborði föður míns hékk jafnan mynd af honum og nokkrum glæsilegum ungum mönnum í kjól og hvítu eftir fund í stúkunni Glitni. Í þeim hópi var Eiður. Stundum komu þeir heim í Bólstaðarhlíðina eftir fundi, betri stofan var opnuð, og nóttin ómaði af söng og gleði. Menn gengu ekki endilega hægt um gleðinnar dyr á þeim nóttum. Fyrstu pólitísku samskipti okkar voru þó ekki farsæl. Ég var ritstjóri Þjóðviljans og lenti í harðri blaðadeilu sem tengdist Eiði. Af tilviljun mætti ég þá Eiði í fyrsta sinn fullorðinn í Alþing- ishúsinu. Hann nam staðar, hristi vísifingurinn eins og þegar hon- um varð heitt í hamsi og sagði: „Mundu hverjir foreldrar þínir eru.“ Það fundust mér giska þung orð. Vinátta okkar bast svo þegar ég varð þingmaður 1991 og varð formaður í þingflokki sem líklega var best mannaða sveitin sem jafnaðarmenn sendu á Alþingi fyrr og síðar. Þar urðu oft sjóð- heitar umræður, enda var það einkenni Alþýðuflokksins að þar tókust menn harkalega á um mál- efni án þess að persónuleg sam- skipti biðu hnekki. Oft naut ég þá ráðsnilldar Eiðs við að leiða erfið og umdeild mál til lykta. Þar birt- ist önnur hlið á hinum heitfengna stjórnmálamanni, sáttfýsi, hjálp- semi og diplómatía. Leiðir okkar skildu aldrei eftir þetta og urðu því sterkari sem báðir eltust. Í leiðarlok þakka ég mínum góða félaga fyrir liðsinni hans við mig, við jafnaðarstefnuna og fyr- ir að vera alltaf trúr sínum hug- sjónum. Guð blessi minningu góðs drengs og þá góðu fjöl- skyldu sem hann lætur eftir. Össur Skarphéðinsson, fv. utanríkisráðherra. „Mínir vinir fara fjöld …“ Sú er sameiginleg lífsreynsla allra minna jafnaldra. Vinir okkar fara fjöld. Við hverja brottför slitnar strengur. Römm taug, sem hnýt- ir okkur ekki bara við þann sem fór heldur við alla þá daga þegar við vorum enn virkir þátttakend- ur. Sterk taug sem tengir okkur við minninguna um liðin ævi- skeið. Þegar við enn áttum er- indi. Leiðir okkar Eiðs Guðnasonar lágu fyrst saman á vordögum árið 1978. Árin áður og lengi síðan var Alþýðublaðið blaðamannaskóli til uppeldis á fréttamönnum, sem síðan létu að sér kveða á öðrum og stærri fjölmiðlum. Eiður var einn þessara stjörnufréttamanna sem ólust upp á Alþýðublaðinu en var kominn til starfa hjá sjón- varpinu þegar ég mætti til leiks. Annar stjörnufréttamaður af Al- þýðublaðinu, Árni Gunnarsson, vann þá hjá Ríkisútvarpinu, hljóðvarpi. Aðrir úr skóla Al- þýðublaðsins voru áberandi í störfum fyrir aðra fjölmiðla. Allir nutu þeir mikillar virðingar í sinni stétt. Örfáum árum síðar, á vordögum 1978, lágu leiðir okkar þriggja saman. Þegar þeir Eiður og Árni, ásamt Vilmundi heitnum Gylfasyni og fleiri ungum körlum og konum gengu opinberlega til liðs við íslenska jafnaðarstefnu og áttu stóran hlut í þeim sigur- vinningi sem vannst í Alþingis- kosningunum árið 1978. Síðan hefur varla liðið sá dagur að við höfum ekki átt sameiginlega veg- ferð, sameiginleg baráttumál og sameiginleg tjáskipti. Hvort sem Eiður Guðnason var nálægur eða fjarri í viðfangsefnum sínum sem alþingismaður, ráðherra og sendiherra voru öll okkar sam- skipti jafn traust og jafn náin. Þegar baráttan stóð um samein- ingu jafnaðarmanna, sem okkur tókst að ljúka farsællega þó við- takendur hafi glutrað því niður, og úrslitum réði að fjárhagur okkar gamla flokks, Alþýðu- flokksins, yrði farsællega leystur, þá kom enginn einn einstaklingur til meiri aðstoðar en Eiður Guðnason. Var hann þó löngu hættur opinberum afskiptum. Þannig var Eiður. Traustur, vin- fastur, drenglyndur. Fjörutíu ára vinátta. Fjörutíu ára sameiginleg vegferð. Þegar svo sterkur strengur brestur er ekkert eitt né heldur eitthvað fátt sem kemur upp í hugann. Hálft æviskeiðið með öllum sínum at- burðum, ánægjustundum og áföllum lifnar við. Örmyndirnar kvikna í heimi hugans. Ein af annarri. Koma og fara – en geta aldrei orðið nákvæmlega eins aft- ur. Því strengur er slitinn. Okkar hlutverk, sem eftir lifum, er hlut- verk áhorfandans. Okkar veru- leiki er myndirnar sem birtast á þili hugans. Síðustu ár Eiðs og Eyglóar voru erfið. Eiginkona Eiðs, hún Eygló, greindist með erfiðan sjúkdóm. Sá sjúkdómur var ekki síður erfiður eiginmanninum. Eftir að Eygló lést hlaut Eiður stundarhvíld en bar ávallt þunga byrði söknuðar. Andlát Eiðs bar brátt að. Engin veiklun né vanlíð- an. Maðurinn með ljáinn kvaddi ekki einu sinni dyra. Hann bara birtist – og tók. Allir þeir vinir mínir, sem farið hafa fjöld, hafa hver um sig kvatt tilveruna með sínum hætti. Að fá að fara eins og Eiður hygg ég að sé sá besti kost- ur sem boðist getur. Því trúi ég. Lífsdögum Eiðs er nú lokið. Svo tekur aftur einn dagurinn við af öðrum hjá okkur, vinum hans. Löng eða stutt röð daga þar sem hver um sig líkist öllum hinum. Uns kvöldar og sól sest. Sighvatur Björgvinsson. Fregnin sem barst í liðinni viku, að Eiður Guðnason hefði orðið bráðkvaddur á heimili sínu, minnti okkur enn á það að líf mannlegt endar skjótt. En minn- ingin um Eið lifir – um dugnað hans, einlægni og ríka réttlætis- kennd sem einkenndi öll hans störf. Kornungur gerðist Eiður blaðamaður við Alþýðublaðið en réðst að loknu háskólanámi – sem hann stundaði samhliða blaða- mennskunni og öðrum ritstörfum – sem fréttamaður til hins ný- stofnaða íslenska sjónvarps árið 1967. Í því starfi varð hann brátt þjóðþekktur – vinsæll og vel met- inn gestur í stofum landsmanna. Á miklum umbrotatímum í ís- lenskum stjórnmálum árið 1978 kvaddi Eiður fréttamennskuna og bauð sig fram fyrir Alþýðu- flokkinn í Vesturlandskjördæmi. Framboð hans fékk þegar mikinn stuðning, og hann var kosinn á þing þá um vorið. Hann átti síðan sæti á Alþingi við góðan orðstír í 15 ár. Þótt leiðir okkar Eiðs lægju oft saman á þeim árum sem hann starfaði við fjölmiðla kynntumst við ekki persónulega fyrr en ég fór í framboð til Alþingis fyrir Al- þýðuflokkinn árið 1987. Atvikin réðu því að við unnum saman í að- draganda kosninganna það ár að gerð kynningarefnis fyrir fram- boð flokksins. Þá kynntist ég því vel hversu orðvís og ritfær hann var og jafnframt vel skipulagður og afkastamikill til ritstarfa. Þar naut hann reynslu sinnar sem blaðamaður og sjónvarpsmaður. Með honum var gott að starfa. Ég met það mikils að ég fékk að ferðast með Eiði um kjördæmi hans í kosningabaráttunni árið 1987 og fór með honum á fundi, heimili og vinnustaði. Þá kynntist ég því vel hversu vinsæll og virt- ur hann var í kjördæminu um leið og ég naut frábærrar leiðsagnar hans um land og sögu Vestur- lands. Eiður var starfsamur þing- maður og einkar laginn að koma vandasömum málum fram. Gott dæmi um þetta er lagasetningin um stjórn fiskveiða á árunum 1988 til 1990. Þá beitti Eiður sér ásamt öðrum þingmönnum Al- þýðuflokksins fyrir því að sam- komulag náðist um þá grundvall- arreglu laganna að nytjastofnar á Íslandsmiðum eru sameign ís- lensku þjóðarinnar og úthlutun veiðiheimilda samkvæmt þeim myndar ekki eignarrétt. Þrátt fyrir langvarandi ágreining um framkvæmd þessarar löggjafar stendur þessi meginregla óhögg- uð. Á þeim árum sem Eiður starf- aði sem blaðamaður og sjón- varpsmaður vakti vandað málfar hans og flutningur efnis verð- skuldaða athygli. Hann hlaut í viðurkenningarskyni verðlaun úr Móðurmálssjóði Björns Jónsson- ar 1974. Til hinstu stundar hafði hann vakandi auga á málfari og málsmeðferð í fjölmiðlum og sendi frá sér mola um það efni daginn sem hann féll frá. 1991 varð Eiður umhverfisráð- herra og norrænn samstarfsráð- herra í ríkisstjórn Sjálfstæðis- flokks og Alþýðuflokks. Undir forystu hans markaði hún fyrst íslenskra ríkisstjórna heildar- stefnu í umhverfismálum þar sem mið var tekið af sjálfbærri þróun. Um mitt ár 1993 sagði Eiður af sér þingmennsku og ráðherrastörfum og gekk til liðs við utanríkisþjónustuna, þar sem hann starfaði með ágætum víða um lönd. Við Laufey vorum svo lánsöm að geta sótt þau Eið og Eygló heim bæði í Ósló og Pek- ing. Við hittum á heimilum þeirra fjölmarga kollega Eiðs frá ýms- um löndum. Á þeim fundum kom glöggt fram hversu góðir fulltrú- ar Íslands og Norðurlanda þau hjónin voru – hvar sem var í heiminum. Þessum orðum fylgja innilegar samúðarkveðjur frá okkur Lauf- eyju til barna Eiðs og fjölskyldna þeirra. Við minnumst hans með þakklæti og virðingu. Jón Sigurðsson. Með nokkrum orðum minnist ég míns góða vinar, Eiðs Guðna- sonar. Margs er að minnast við svo óvænt og ótímabært fráfall hans. Við höfðum vitað hvor af öðr- um en kynntumst ekki fyrr en við áttum saman setu á Alþingi á ár- unum 1978-1993. Samstarf okkar hlaut að verða nokkuð. Við vorum formenn þingflokka okkar sam- tímis um átta ára skeið, vorum fulltrúar Íslandsdeildar Norður- landaráðs, sátum saman í ríkis- stjórn árin 1991-1993. Þar gegndi Eiður stöðu um- hverfisráðherra af áhuga og festu. Umhverfismál snertu mig mjög. Því var það að við ræddum oft saman um þann málaflokk. Barátta okkar, og margra ann- arra, gegn tiltekinni framkvæmd hins opinbera er minnisstæð, þótt ekki hefðum við sigur þar. Þá hittumst við oft á Hjúkr- unarheimilinu Sóltúni þar sem eiginkonur okkar voru vistmenn síðustu ár þeirra. Þær létust báð- ar árið 2015 með fárra mánaða bili. Svo vorum við grannar í Garðabæ síðustu árin. Við vorum ekki alltaf sammála í pólitíkinni. Það vissum við fyrir. En við höfðum margt að ræða og Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Minningargreinar Móðir mín, tengdamóðir og amma, HJÖRDÍS ÞÓRUNN HJÖRLEIFSDÓTTIR, lést á Hrafnistu í Reykjavík laugardaginn 28. janúar. Jarðarförin var frá Fossvogskapellu þriðjudaginn 7. febrúar. Starfsfólki Hrafnistu er þökkuð góð aðhlynning. Skúli Guðmundsson Sigríður Guðný Jóhannesd. María Skúladóttir Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, GERÐA T. GARÐARSDÓTTIR, Hrafnistu, Hafnarfirði, áður Hólabraut 15, lést föstudaginn 3. febrúar. Við þökkum starfsfólki Hrafnistu fyrir góða umönnun og hlýju í hennar garð. Útför hennar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 10. febrúar klukkan 15. Elsa Aðalsteinsdóttir Björn Árnason Auðunn Gísli Árnason Fríða J. Jónsdóttir og fjölskyldur Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, FRÚ RAGNHEIÐUR ÁRNADÓTTIR hjúkrunarfræðingur, Akureyri, lést á dvalarheimilinu Hlíð sunnudaginn 5. febrúar. Útför fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 13. febrúar klukkan 13.30. Snorri Jóhannsson Maureen Patricia Clark Þórólfur Jóhannsson Guðrún Birgisdóttir Heimir Bragason Ragnhildur D. Hannesdóttir Birgir Rafn Snorrason Ragnheiður Thelma Snorradóttir Viktor Már Snorrason Marín Jacobsen Kara Lind Snorradóttir Hannes Heiðar Þórólfsson Eva María Þórólfsdóttir Magnea Rún Thelmudóttir Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞÓRÓLFUR JÓNSSON, Hánefsstöðum, Svarfaðardal, lést á heimili sínu 1. febrúar. Útförin fer fram frá Dalvíkurkirkju mánudaginn 13. febrúar klukkan 13.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja minnast hans er bent á dagdeild göngudeildar Sjúkrahússins á Akureyri. Fyrir hönd aðstandenda, Þorbjörg Alfreðsdóttir Ástkær dóttir, móðir og systir okkar, ERLA LÓA ÁSTVALDSDÓTTIR, lést á sjúkrahúsi á Ítalíu 7. febrúar. Útförin verður auglýst síðar. Ástvaldur Eiríksson Linda og Carlo Marco og Veronica Erika og Edo Ólafur og Lára Lárus og Kristín Helga og Ágúst og fjölskyldur
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.